Minni hagvöxtur í helstu viðskiptalöndum Íslands

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn spáir því að hag­vöxtur muni minnka og verð­bólga lækka hjá helstu við­skipta­löndum Íslands.

Samkvæmt nýrri hag­vaxtar- og verð­bólgu­spá Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS) mun hag­vöxtur minnka í ell­efu af fjórtán helstu við­skipta­löndum Íslands. Í spánni kemur fram að af helstu við­skipta­löndum Íslands muni hag­vöxtur ein­göngu aukast í Póllandi, Japan og Kína. Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá Lands­bank­ans.

AGS lækkar hag­vaxt­ar­spá sína fyrir evru­svæðið úr 1,9 pró­sent niður í 1,3 pró­sent og hefur það mest áhrif. Mesta breyt­ing frá síð­ustu spá í októ­ber síð­ast­liðnum er þó hjá Svíþjóð en spá sjóðs­ins fyrir landið lækkar um eitt pró­sent.

AGS segir enn­fremur að alþjóða­hag­kerfið hafi róast und­an­farin miss­eri og hægt hafi á hag­vexti. Meðal ástæðna fyrir því sé tolla­stríð milli Banda­ríkj­anna og Kína, auk vax­andi póli­tískrar óvissu í mörgum löndum.

Lægri verðbólguspá fyrir evrusvæðið

Þó að AGS spái minni hag­vexti í helstu við­skipta­löndum Íslands, hefur sjóð­ur­inn lækkað verð­bólgu­spá sína fyrir löndin og gerir ráð fyrir 1,9 pró­sent verð­bólgu á tíma­bil­inu 2019 til 2023. Lægri verð­bólgu­spá skýrist helst af því að spáin fyrir evru­svæðið hefur lækkað um 0,4 pró­sent.

Hag­fræði­deildin segir að lægri verð­bólga í þessum löndum komi til með að styðja við lægri verð­bólgu hér á landi. Hún spáir því þó að verð­bólga muni hækka hér á landi næstu mán­uði og að hún verði 3,2 pró­sent í apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár