Hafi bendlað Sævar og Kristján Viðar við hvarfið til að sleppa sjálfur úr fangelsi

Vitni sagði fyrrum sam­býl­is­mann sinn hafa samið við lög­reglu um að bendla Sævar Ciesielski og Kristján Viðar Við­ars­son við hvarfið á Guðmundi Ein­ars­syni gegn því að sleppa sjálfur úr fang­elsi. Hann hafi borið ábyrgð á hvarf­inu sjálfur.

Vitni sem gaf sig fram við lög­reglu fyrir nokkrum árum síðan sagði frá því að fyrr­ver­andi sam­býl­is­maður hennar hafi ekið á Guðmund Ein­ars­son kvöldið sem hann hvarf í jan­úar 1974. Hún greindi einnig frá því að hún hafi verið við­stödd þegar þessi sami maður hafi samið við lög­regl­una og full­trúa yfir­saka­dóm­ara um að veita upp­lýs­ingar um það að Kristján Viðar Við­ars­son og Sævar Marínó Ciesielski hafi tengst hvarfi Guð­mundar, gegn því að vera leystur úr afplánun.

Þetta kemur fram í úrskurði end­ur­upp­töku­nefndar í máli Sævars, en nefndin komst að þeirri nið­ur­stöðu í dag að heim­ila ætti að dómur gegn honum og fjórum öðrum sak­born­ingum í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu yrði tek­inn upp að nýju. Úrskurð­irnir eru gríð­ar­lega langir og umfangs­miklir, sá um Sævar telur tæp­lega 1300 blað­síður.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sendi rík­is­sak­sókn­ara orð­send­ingu vegna kon­unnar þann 9. októ­ber árið 2014. Konan var fyrr­ver­andi sam­býl­is­kona manns, sem bendl­aði Sævar og Erlu Bolla­dóttur upp­haf­lega við póst­svika­málið svo­kall­aða, en það var ástæða þess að þau voru upp­haf­lega hand­tekin og sett í gæslu­varð­hald.

Konan sagði frá því að hún hefði verið far­þegi í bíl sem sam­býl­is­maður hennar þáver­andi keyrði, ásamt þriðja manni, þegar ekið hafi verið á Guðmund Ein­ars­son í Engidal á Hafn­ar­fjarð­ar­vegi aðfara­nótt 27. jan­úar 1974. „Guð­mundur hafi verið tek­inn upp í bif­reið­ina en svo dregið af honum og hann verið orð­inn þög­ull þegar vitnið fór úr bif­reið­inni á dval­ar­stað þess í Voga­hverfi Reykja­vík­ur­borgar,“ segir í úrskurð­inum.

Þessi ábend­ing var rann­sökuð af lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu síð­ast­liðið sumar. Konan rakti þessa atburð­ar­rás hér að ofan í sam­skiptum við lög­reglu í kjöl­farið en bar jafn­framt um það að hafa verið við­stödd þegar mað­ur­inn hafi samið við lög­regl­una og full­trúa yfir­saka­dóm­ara um að veita upp­lýs­ingar um að Kristján Viðar og Sævar tengd­ust hvarfi Guð­mundar gegn því að vera leystur úr afplánun.

Menn­irnir tveir sem um ræðir, Stefán Almars­son og Þórður Jóhann Eyþórs­son, voru hand­teknir í júní í fyrra, eins og greint var frá í fjöl­miðlum þá. Þeir neit­uðu báðir allri aðild að mál­inu, bæði hjá lög­reglu og í fjöl­miðlum. Stefán sagði lög­reglu að hann hefði á þessum tíma verið sífellt að ljúga í lög­regl­una sögum. 

Þá komu bæði annar rann­sókn­ar­lög­reglu­mann­anna sem ann­að­ist póst­svika­málið og Guð­mund­ar­málið í upp­hafi og fyrrum full­trúi yfir­saka­dóm­ara til lög­reglu vegna máls­ins. Þeir hafi verið inntir eftir því hvaða ein­stak­lingur hafi komið þeim upp­lýs­ingum til lög­reglu að Sævar hafi verið við­rið­inn hvarf Guð­mundar. „Þeir hafi ekki munað eftir því og hafi aðspurðir hvor­ugur kann­ast við að þessi maður hafi komið ábend­ingu á fram­færi við þá eða munað til þess að samið hafi verið við mann­inn um til­hliðr­anir varð­andi afplánun hans.“

Rannsókn lög­regl­unnar lauk þann 18. ágúst í fyrra og málið var fellt niður í kjöl­far þess að rann­sókn­ar­gögnum var komið á fram­færi við end­ur­upp­töku­nefnd, í októ­ber síð­ast­liðnum.

Var sleppt úr fangelsi í tvígang

Þetta telj­ast engu að síður meðal nýrra gagna í mál­inu, sem lúta beint að hvarfi Guð­mundar og veita vís­bend­ingu um það á hvaða hátt böndin bár­ust að þeim dæmdu.

Fyrr í úrskurð­inum kemur fram að þessi umræddi maður strauk af Litla-Hrauni ásamt Krist­jáni Viðari þann 11. nóv­em­ber 1975, þar sem þeir voru báðir í afplánun. Sagt er frá því í úrskurð­inum að Kristján Viðar hafi sagt honum frá aðild Erlu og Sævars að póst­svika­mál­inu. „Í kjöl­far stroks­ins og frá­sagnar af aðild þeirra dóm­felldu Erlu og end­ur­upp­töku­beið­anda [Sævars] að svik­unum var afplánun manns­ins af eins árs refsi­dómi frestað að fyr­ir­mælum full­trúa yfir­saka­dóm­ara 11. des­em­ber 1975,“ segir í úrskurð­inum. Degi síðar, 12. des­em­ber, var Sævar hand­tek­inn og settur í gæslu­varð­hald, og þann 13. des­em­ber var Erla hand­tekin og sett í gæslu­varð­hald. 

Þann 18. des­em­ber var Erla yfir­heyrð og ját­aði þann dag aðild að póst­svika­mál­inu. Samkvæmt skrif­legri skýrslu lauk yfir­heyrsl­unni klukkan 19.30, en dag­bók fang­els­is­ins við Síðumúla segir aðra sögu. Þær dag­bækur voru ekki í heild sinni lagðar fyrir á sínum tíma. Þar kemur fram að yfir­heyrslur hafi staðið til klukkan 22:30, en engin skýrsla liggur fyrir um það sem fram fór eftir að bók­aðri skýrslu lauk.

Sama dag klukkan þrjú var umræddur maður fluttur í fang­elsið vegna inn­brots í fiski­skip. Það er bókað í sam­an­tekt­ar­skýrslu um það inn­brot að mað­ur­inn hafi átt að fara í afplánun á eft­ir­stöðvum refs­ingar en þess í stað hafi hann verið lát­inn laus dag­inn eftir „að boði full­trúa yfir­saka­dóm­ara.“ Hann hafi þá verið búinn að játa inn­brotið. Honum var boðið að fljúga austur á firði að boði full­trúa yfir­saka­dóm­ara, en engar skýr­ingar voru gefnar á þeirri ákvörðun.

Þetta var 19. des­em­ber 1974, en þann 20. des­em­ber var Erla tekin til skýrslu­töku enn á ný, en þá sem vitni vegna þess að lög­regl­unni hafði boris til eyrna að Sævar, þáver­andi sam­býl­is­maður hennar, gæti hafa verið við­rið­inn hvarf Guð­mundar Ein­ars­sonar. „Um er að ræða fyrstu form­legu lög­reglu­skýrsl­una sem gerð var vegna gruns um aðild allra dóm­felldu að hvarfi Guð­mundar sem hratt rann­sókn máls­ins úr vör.“

Þó oft hafi verið um það fjallað, og „nafn þessa manns ítrekað borið á góma í tengslum við Guð­mund­ar­málið“, hefur aldrei opin­ber­lega verið upp­lýst um upp­haf þess að grunur í Guð­mund­ar­mál­inu beind­ist að þeim sem síðar voru ákærð og dæmd, að því er segir í úrskurð­inum.

Fyrir liggur að þessi maður veitti lög­reglu upp­lýs­ingar sem leiddu til þess að Erla og Sævar ját­uðu sakir í póst­svika­mál­inu. Í úrskurð­inum segir: „Þegar horft er til þess og að sami maður var hand­tek­inn í kjöl­far inn­brots í bát og færður í Síðu­múlafang­elsi, sama dag og dóm­fellda Erla virð­ist fyrst hafa verið yfir­heyrð um hvarf Guð­mundar Ein­ars­sonar, þykja tals­verðar líkur leiddar að því að rann­sókn á hvarfi Guð­mundar hafi verið beint að dóm­felldu á grund­velli upp­lýs­inga frá nefndum manni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár