Leiguverð upp um fjögur prósent á þremur mánuðum

Vísitala leigu­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað um 3,9% á þremur mán­uðum. Þar af hækk­aði hún um 1,3 pró­sent milli sept­em­ber og októ­ber. Þetta kemur fram í gögnum Þjóð­skrár, sem tekur saman vísi­tölur leigu­verðs og íbúða­verðs í hverjum mán­uði út frá þing­lýstum samn­ingum.

Þegar litið er til síð­ast­lið­inna tólf mán­aða hefur vísi­tala leigu­verðs hækkað um 8,5 pró­sent, en vísi­talan sýnir breyt­ingar á vegnu með­al­tali fer­metra­verðs og á að varpa ljósi á þróun leigu­verðs sam­kvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma.

Fer­metra­verð í leigu­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var hæst í stúd­íó­í­búðum í Reykja­vík, vestan Kringlu­mýr­ar­brautar, og Sel­tjarn­ar­nesi. Þar var með­alleigu­verðið á hvern fer­metra 3.463 krónur, á meðan það var tæp­lega 2.700 krónur í tveggja her­bergja íbúðum, 2.356 krónur í þriggja her­bergja íbð­uðum og 1.926 krónur í fjög­urra til fimm her­bergja íbúðum á sama svæði.

438 leigu­samn­ingum var þing­lýst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í októ­ber síð­ast­liðnum, sem er 18 pró­senta aukn­ing miðað við sama mánuð í fyrra.

Vísitala íbúða­verðs hefur aftur á móti hækkað um 13,6% á höf­uð­borg­ar­svæð­inu und­an­farna 12 mán­uði, um 3,2% síð­ustu þrjá mán­uði og tvö pró­sent milli sept­em­ber og októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár