Er Deutsche Bank hættulegasti banki veraldar?

Áhyggjur af slæmri stöðu evr­ópskra banka magn­ast nú með hverjum deg­inum. Þar bein­ast spjótin ekki síst að Deutsche Bank.

Það sem af er ári hefur gengi hluta­bréfa í þýska bank­anum Deutsche Bank, fallið um tæp­lega 60 pró­sent. Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn og Seðla­banki Banda­ríkj­anna hafa sagt að bank­inn sé í „áhættu­samri“ stöðu, og hafa meðal ann­ars vitnað til þess að bank­inn hafi ekki stað­ist strangt próf banda­ríska yfir­valda um fjár­hags­legan styrk banka. Tveir af 33 stórum bönkum í Banda­ríkj­unum, stóð­ust ekki próf yfir­valda, og var Deutsche Bank í Banda­ríkj­unum annar þeirra.

Heildarstaðan erfið

En það eru ekki aðeins ein­staka starfs­stöðvar bank­ans sem valda áhyggjum heldur er það heild­ar­efna­hags­staða bank­ans. Í pistli sem Simon Jack, rit­stjóri efna­hags­frétta hjá breska rík­is­út­varp­inu BBC, skrif­aði á vef BBC 6. júlí síð­ast­lið­inn, þá er Deutsche Bank með ein­kenni­legan verð­miða í augna­blik­inu. Í síð­ustu viku var heild­ar­virði bank­ans 20 millj­arðar evra (Evran = 136 ISK), sem er innan við þriðj­ungur af bók­færðu hans. Fjár­festar virð­ast því hafa afar litla trú á því í augna­blik­inu, að bank­inn geti haldið áfram rekstri nema með veru­legri upp­stokkun eða breyt­ingum, þar sem eigna­hlið bank­ans þykir óstöðug og að lítið þurfi til þess að þurrka út allt eigið fé bank­ans.

Aðalgreinandinn opinberar áhyggjur

Í við­tali við Welt am Sonntag í gær segir David Folkerts-Landau, aðal­hag­fræð­ingur Deutsche Bank, að evr­ópska banka vanti í það minnsta 150 millj­arða evra, til að end­ur­fjár­magna skuldir og rétta af slæma stöðu. Hann tal­aði ekki sér­tækt um Deutsche Bank en í ljósi þess að bank­inn hefur ára­tugum saman verið hryggjar­stykki í evr­ópska banka­kerf­inu, þá er óhjá­kvæmi­legt að spjótin bein­ist að honum. Upphæðin sem hann nefnir er líka há, eða sem nemur marg­földu mark­aðsvirði bank­ans miðað við stöðu mála í síð­ustu viku. „Ég sé fram á langa, hæga og djúp­stæða nið­ur­sveiflu,“ sagði Folkerts-Landau í við­tal­inu. Hann sagði efna­hags­lega stöðu Evrópu vera veika. Ekki væru komnar upp sömu aðstæður og í aðdrag­anda hremm­ing­ana 2007 og 2008, en til lengri tíma litið þá benti fátt til ann­ars en erf­ið­leika í Evrópu. En hann ítrek­aði að taf­ar­lausra aðgerða væri þörf, til að bæta slæmt ástand í evr­ópska banka­kerf­inu.

Deutsche Bank og Ísland

Óhætt er að segja að þýski risa­bank­inn hafi verið með mikla teng­ingu við Íslands og íslenska fjár­festa fyrir hrunið hér landi, í októ­ber 2008. Þá hefur bank­inn oft verið nærri ýmsum málum sem tengj­ast kröfu­höf­unum eftir hrunið.

Eftir hrunið hefur bank­inn verið með putt­ana í ýmsum stærstu hags­muna­málum hag­kerf­is­ins og aug­ljós­lega verið að gæta hags­muna sinna. Þar má nefna ýmis atriði til sög­unnar.

Bankinn bauðst til að taka yfir Icesave-skuld­ina, og eignir á móti, þegar deilur um inn­stæð­urnar stóðu sem hæst milli íslenskra stjórn­valda, þrota­bús Lands­bank­ans og yfir­valda í Hollandi og Bret­landi.

Þá hefur bank­inn komið að skulda­bréfa­út­gáfu fyrir íslensk fyr­ir­tæki í tölu­vert miklu mæli eftir hrunið, meðal ann­ars sem milli­göngu­að­ili fyrir Lands­virkjun árið 2010, þegar flest sund voruð lokuð erlendis fyrir íslensk fyr­ir­tæki. Samtals var útgáfan upp á 180 millj­ónir evra í það skiptið, eða tæp­lega 30 millj­arða króna. Hún var mik­il­væg fyrir Lands­virkjun og eig­and­ann íslenska ríkið, þó vext­irnir hafa sögu­lega verið óhag­stæðir.

Deutsche Bank fékk einnig greidda 35 millj­arða frá Peru, dótt­ur­fé­lagi Lýsingar, innan úr hafta­hag­kerf­inu í mars 2012 en Pera var veð­sett bank­anum til trygg­ingar fyrir lán­veit­ingum til Lýs­ing­ar­sam­stæð­unnar á þessum tíma.

Stærsta ein­staka skuld­bind­ing Deutsche Bank gagn­vart Íslandi fyrir hrunið var ríf­lega fjög­urra millj­arða evra lán sem bank­inn beitt Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni, til að yfir­taka Actavis. Eftir hrunið var bank­inn svo stærsti kröfu­haf­inn í end­ur­skipu­lagn­ingu á öllu eigna­safni Björg­ólfs Thors, en með sam­ein­ingu við önnur lyfja­fyr­ir­tæki, og mikla end­ur­skipu­lagn­ingu í rekstri, hefur bank­inn fengið þessa skuld til baka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár