Barbie og Ken og Jeppi á Fjalli

Árni B. Helgason fjallar um lög og fram­kvæmd laga – um mun­inn á þessu tvennu, í orði og á borði. Um það, sem mótar stjórn­ar­far, rétt­ar­far og sam­fé­lags­lega miðlun hug­mynda – um frelsi manna til orðs og æðis og höml­urnar sem mönnum eru þó settar.

LÖG LÝÐRÆÐISRÍKJA OG lög ein­ræð­is­ríkja geta verið keim­lík í fjöl­mörgum atriðum, jafn­vel nán­ast hin sömu, þótt fram­kvæmd lag­anna sé ger­ó­lík. Á það raunar við um lög­form­lega skipan allra félaga, fyr­ir­tækja og stofn­ana – allt frá hús­fé­lögum og trygg­inga­fé­lögum til æðsta ákæru­valds, allt frá spari­sjóðum og bönkum til æðsta þing­ræð­is­valds, allt frá fjár­mála­eft­ir­liti til hins æðsta for­seta­valds... að hinn form­legi texti, lög, reglur og sam­þykktir sem eru lögð til grund­vallar svo marg­vís­legri sýslan, ramm­inn er lýtur að inn­taki og eðli sýsl­an­ar­innar, hver sem hún ann­ars er, segir ekk­ert að sjálf­gefnu um hina eig­in­legu fram­kvæmd, hve lýð­ræð­is­leg hún sé eða þrúguð af ein­ræð­is­hneigð eða á hvaða stigi hún kunni að vera ein­hvers staðar þar á milli. Eða allt eins á ein­hverju stigi stigi alræðis, mið­stýr­ingar, van­stjórnar, stjórn­leysis eða jafn­vel sjálfs­stjórnar.

En þeim mun meiri sem mun­ur­inn er á lýð­ræð­is­legri laga­setn­ingu og á hinni eig­in­legu lag­anna fram­kvæmd, þeim mun fremur ræður geð­þótt­inn ríkjum, að ekki sé þá talað um spill­ing­una, enda nær­ist þetta yfir­leitt hvort á öðru í dýrð­legum fagn­aði.

Þeim mun lengur sem fram­kvæmda­valdi þókn­ast að túlka lögin að vild sinni, hvað þá ef það væri fyrir stuðn­ing dóms­valds­ins, þeim mun rík­ari verður hefðin fyrir ólýð­ræð­is­legri fram­kvæmd lag­anna – sama hve lögin kunna að vera snyrti­lega orðuð og stjórn­ar­skráin fag­ur­lega stoppuð upp. Lög­gjaf­ar­valdið er þá í hlut­verki puntu­dúkka á borð við Barbie og Ken, fal­legt hillu­skraut handa hirð ein­ræð­is­herra til að leika sér að – og þá ekki síst til að flagga frammi fyrir alþjóð og umheimi til sann­inda­merkja um frá­bært stjórn­ar­farið.

Það fæli trú­lega í sér stór­kost­legar ýkjur að ætla að halda ein­hverju slíku fram, að gæti átt við hér– nema þá vissu­lega ef væri á afmörk­uðum sviðum, að finna megi lítil ríki í litla rík­inu, jafn­vel svo máttug örríki að vart verði við þeim hróflað – enda skyldi ávallt gæta með­al­hófs!

Í stað þess að hagga við fram­kvæmda­vald­inu, þrátt fyrir ríka eft­ir­lits­skyldu lög­gjafans, þá er gjarnan brugðið á það hóf­sama ráð að lappa frekar upp á sjálf lögin, jafn­vel þótt þau kunni að vera góð og gild og lítt sé að þeim að finna – frekar en að gera þó þá lág­marks­kröfu til fram­kvæmda­valds­ins að það fari að lög­unum og fylgi þeim eftir. Lögin kunna þá með tím­anum að verða svo djúp og marglaga og flókin að gerð, sem þeim er aftur á móti minna fylgt eftir, að jafn­vel þurfi jarð­fræð­ing til að graf­ast fyrir um ein­föld­ustu hluti til að skýra fyrir lög­fræð­ingum – hvað þá að almenn­ingur botni í kúnstunum. Nema hrein­lega að þeir sjálfir, fræð­ing­arnir í lögum, marg­s­legnir til ridd­ara sem hinir virðu­leg­ustu opin­beru sýsl­un­ar­menn, neyti þá einmitt færis og túlki lögin að vild sinni, algjör­lega að geð­þótta sínum, enda þá vart á færi nema snjöll­ustu jarð­laga­fræð­inga að sjá í gegnum klæk­ina, prett­ina og svikin.

Þeim mun flókn­ari að bygg­ingu sem hinar lýð­ræð­is­legu stoðir eru, hvað þá lögin lík­ari völ­und­ar­húsi, þeim mun víð­feðm­ari verður akur hinna sér­fróðu að plægja – í dýrð­legum fagn­aði. Jeppi á Fjalli má sín þá lít­ils á sinni litlu skák, eða Nilla með heim hans á herðum sér, and­spænis skri­fræð­inu við að tefla. Facebook er þá barna­bók­ar­lær­dómur að glíma við, sama hve lífs­reyndir not­endur kunna að vera, hvort TikTok er þá ekki barna­leikur. Svo snubb­ótt hátíð er þá staf­rænt ofbeldið, á við gleði­leik skrif­finn­anna – lávarð­anna og lafð­anna gagna­vinnslu og gaman.

I.

ALMANNA- OG RÉTTARÖRYGGI er sann­ar­lega ekki á eina bók­ina lært! Hvað þá að hafðri hlið­sjón af fjórða vald­inu, valdi fjöl­miðla og allra­handa sam­fé­lags­miðla, til við­bótar hinu þrí­skipta og lög­form­legra valdi. Án þessa áhrifa­valds færi vit­an­lega lítið fyrir lýð­ræð­inu – að því til­skyldu eðli­lega að það end­ur­spegli frjáls skoð­ana­skipti en ekki hömlu­laus eða rit­skoðuð. Lýð­ræð­is­legt aðhald áhrifa­valds­ins kann þó auð­veld­lega að snú­ast upp í and­hverfu sína taki hinar lög­form­legu valda­stoðir að þókn­ast umræð­unni í von um hylli lýðs­ins.

Er það þó eðli lög­gjaf­ar­valds­ins að keppa um hylli kjós­enda, þá gjarnan með lof­orð upp í ermi um bætt lög og betri, plástur hér og plástra þar, hvað sem ann­ars kann að líða valds­mögu­leikum þess til fjár­veit­inga, til eft­ir­fylgni lag­anna, þegar á hólm­inn er komið. Lög­gjaf­ar­valdið getur því vissu­lega lagað lögin að geð­þótta sínum, ekk­ert síður en að duttl­ungum lýðs og allra­handa áhrifa­valds, hvað sem ann­ars hver segir, sama hvort tístir á Twitter eða teygir YouTube-lopa á TikTok. Lögin skyldu þá allt­ént falla að vilja lýðs og þjóðar, að því gefnu að kosn­inga­kerfið sé lýð­ræð­inu og sjálfu sér sam­kvæmt.

Dóms­valdi og fram­kvæmda­valdi skyldi aftur á móti vera allar slíkar popúl­ískar bjargir bann­aðar – í lýð­ræð­is­ríki. Svo algjör­lega eru þessar mátt­ar­stoðir tvær háðar því að fara að lög­unum einum, og þá eðli­lega að með­töldum fjár­lögum, hvernig sem koma megi ann­ars hvoru tveggja heim og saman. Gildir þá einu um löngun mátt­ar­valds til að ávinna sér hylli lýðs og áhrifa­valds – sama þó að leikur sé að læra á Facebook – dóms­vald og fram­kvæmda­vald starfar í umboði þings­ins eins, fyrir vald­heim­ildir þess eins, en ein­ungis þingið eitt í umboði almenn­ings, þá raunar ein­ungis fyrir atfylgi og atkvæði kjós­enda einna.

Það er því lög­gjaf­ar­valdið eitt sem hefur alla þræði í hendi sér – jafnt með að móta lögin og að fylgja fram­kvæmd þeirra eftir, að sé lög­unum sam­kvæm. Liggur þá í hlut­ar­ins eðli að það tryggi fjár­veit­ingar til allrar fram­kvæmdar, for­sjár og eft­ir­fylgni, eðli­lega að með­tal­inni fram­kvæmd lög­reglu- og ákæru­valds, og þá ekki síður að það tryggi fjár­hag dóm­stóla. Ella eru lög lýð­skrum.

Sjái fjár­veit­inga­valdið sér það hins vegar ekki fært að styðja við lög af ein­hverju tagi, þá hlýtur hið sama lög­gjaf­ar­vald ein­fald­lega að skil­greina þau sömu lög upp á nýtt, með slíkri ein­földun þeirra, með afnámi við­ur­laga eða með hóf­legri kröfum um borg­ara­lega hlýðni og skyldur, að hinar tak­mörk­uðu fjár­veit­ingar dugi þá til fram­kvæmdar og raun­veru­legrar eft­ir­fylgni lag­anna – svo fremi að lög­gjaf­inn felli ekki bein­línis hin ýmsu lög úr gildi...

Að öðrum kosti er boðið til hinnar dýrð­legu veislu. Sitja þá við háborðið hinir æðstu emb­ætt­is­menn dóms- og fram­kvæmda­valds með hirðir sínar krunk­andi allt um kring, bít­and­ist um bestu bit­ana, að geð­þótta sínum og duttl­ungum. Óhjá­kvæmi­lega hlýtur þá mörgu að vera leift og margt að vera illa kroppað af slíkum allsnægta­borðum þar sem fram­boð ætis er ekki ein­ungis miklu meira en eft­ir­spurnin, heldur eru borð svo mar­grétta og hlaðin girni­legum réttum að allt hið lítt kræsi­leg­asta hlýtur að sóp­ast undir borð eða í salt leggj­ast.

II.

ÁKÆRUVALDIÐ HEFUR GJARNAN miðað lág­marks­virði sakar við einnar sam­loku stuld, eða þar um bil, svo fremur illa til fallnir til við­mið­unar sem snær­is­spottar hafa þótt á síð­ari tímum, svo afar mis­langir sem þeir geta líka verið og marg­þættir og snúnir að gerð. Er hverri hinni minnstu slíkri grip­deild nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust jafnað til 30 daga vistar upp á vatn og brauð – en fang­els­is­dómur má eigi vera skemmri sam­kvæmt 34. gr. hegn­ing­ar­laga, sem sagt fyrir úrskurð og atkvæði lög­gjaf­ar­valds­ins. Yfir­leitt felur slík refs­ing þó í sér skil­orð, sjaldan samt skemmra en til tveggja ára, þrátt fyrir náð­ar­sam­lega heim­ild lög­gjafans um allt að eins árs lág­mark skil­orðs­tím­ans, fyrn­ing­ar­tíma refs­ing­ar­innar. Það er því yfir­leitt um 730 daga að tefla, að svengd eða freistni nokkur hin minnsta beri ekki skil­dag­ana ofur­liði.

Reynist sam­lokur ann­ars vera fleiri en ein eða tvær, eða að ígildum talið t.d. í ilm­vötnum, playstation-fjar­stýr­ingum, lamba­hryggjum, bor­vélum, legg­ings eða nær­buxum, þá vegur sökin samt ekk­ert þyngra, nán­ast sama hve grip­irnir eru margir. Eftir ákvæðum hegn­ing­ar­laga að dæma, muni jafn­ræð­is­regla stjórn­ar­skrár­innar því alls ekki eiga við er um slík brot sé að tefla – þá eðli­lega að áliti meiri­hluta Alþingis á sér­hverjum tíma, sem og þá for­seta fyrir stað­fest­ingu sína, og þá ekki síst fyrir djúpa­stæða lög­vísi hlut­að­eig­andi sak­sókn­ara og dóm­ara hverju sinni. Að hin fyrr­nefndu lög skuli þá með öðrum orðum vera æðri hinum altæk­ustu, að minnsta kosti þegar í hlut eiga hin mátt­ar­minnstu á meðal vor...

Nema að gripum verði bein­línis svo deilt að telja megi í yfir­fullum inn­kaupa­kerrum eða bagga­burðum, hvað þá í svo mörgum hest­hús­uðum burðum talið að varða myndi jafn­vel engla alheims nokk­urra mán­aða nauð­ung­ar­vist. Virðist þá og einu gilda þó að sak­ar­efni hafi verið tuggin svo upp til agna að sjálfum sönn­un­ar­gögn­unum hafi bein­línis verið spillt, þá vand­ast samt ekk­ert málið, né hvað þá heldur sak­fell­ingin, svo að séð verði, svo fær sem lög­reglan hlýtur að vera í því að kryfja til mergjar og rann­saka til fulln­ustu þessi hin flókn­ari málin...

Samlokan í nýjasta mál­inu hér að ofan, frá árinu 2020, olli 30 daga hegn­ing­ar­auka, til við­bótar eldri 30 daga refs­ingu á skil­orði. Með sam­lokunni var skil­orð sem sagt rofið og það dæmt upp og hinum seka því gert að dúsa 60 daga í steini – héldi hann ekki nýtt skil­orð til 2ja ára frá birt­ingu dóms. Hinir þrír dóm­arnir hljóð­uðu allir upp á 30 daga fang­els­is­vist, skil­orðs­bundið til 2ja ára líkt og hinn nýjasti. Hin seku í mál­unum frá 2017 og 2020 áttu smá brota­feril að baki en í hinum tveimur eldri frá 2014 og 2016 var fer­ill­inn hreinn. Málið frá árinu 2014 var tví­skipt. Hér er birtur síð­ari hluti ákærunnar, enda var ákærði sýkn­aður af hinum fyrri hluta.

Dómarnir hér að neðan hljóð­uðu báðir upp á 30 daga vist í fang­elsi, skil­orðs­bundið til tveggja ára. Hinn ákærði í mál­inu frá árinu 2020 hafði ekki áður gerst sekur um refsilaga­brot. Í hinu mál­inu, frá árinu 2014, átti sak­born­ingur smá brota­fer­ill að baki.

Það er þó ekki merg­ur­inn máls­ins, hvort mál snú­ist um sam­lokur eða heilu asnaklifjarnar af gulli, hvort sönn­un­ar­gögn hafi verið etin eða séu horfin bak og burt, jafn­vel spor­laust hringlsó­l­andi ein­hverra aflandseyj­anna á milli – heldur sjálf rétt­vísin, sjálft réttar­ör­yggið, almanna­ör­yggið. Hvort verið geti að jafn­ræð­is­regla stjórn­ar­skrár­innar eigi jafn­vel ekki við nema fyrir náð valds­ins, þókn­ist því að vega hana líkt og salt móti þung­lama­legum reglurömmum hegn­ing­ar­lag­anna. Hvort sjálfur Erasmus Montanus, að vel­þóknan sinni, fái það jafn­vel sannað að lög­gjaf­ar­valdið, sjálf móðir lag­anna, sé úr steini? Ella hljóti jörðin að vera flöt en ekki kringlótt... Skyldi kringla ann­ars ekki geta verið hnöttótt? Ergo! Sem sagt hnöttótt, eins og tunglið, eins og torus í fyll­ingu...

En sten kan ikke flyve. Morlille kan ikke flyve. Ergo er mor­lille en sten!

III.

HVE LANGT GETUR hver og einn ann­ars gengið, án minnsta umboðs, bundið mann og annan, sér eða öðrum til hags? Eða meit­lað mann­orð í stein... Hve rangan sak­burð geta menn haft uppi – eða réttan – um refsi­vert athæfi, áður en ein­hver kippir sér upp við það? Hvað þá að nokkur kippi í taumana – nema við­fangið sé sem sagt svo auð­velt viður­eignar að jafn­ist á við eina borð­leggj­andi með roast­beaf og steiktum í 10-11 eða Krónu, að ekki væri talað um geggj­aðar brunchlokur í Bónus. Þá um hæl gjald­andi líku líkt, að mati hinna mæt­ustu manna, með tveggja ára heit­ingum um 30 daga vist í steini. Ellegar, sé við­fangið aftur á móti svo klyfjað og skemmti­lega snúið í taumi, að á við algjöran asna í sirkus sé að elt­ast við, í æsi­legum hasar á fjöl­miðla­torgi – megi þá líða ár og öld og frestir fyrn­inga... og gagna­vinnslu og gam­ans.

Að öðrum kosti muni vart nokkuð minna en hér­aðs­brestur vekja anda Mont­anusar til lífs og fyll­ingar, nema bein­línis að vel­farnan rík­is­ins liggi við borð, að tak­ist þá á loft eins og vind­belgur, vað­andi í skýjum, eins og fullur máni. Og þó vart fyrr en eftir dúk og disk. Sama þó um alla banka­sýslan væri að tefla, jafn­vel mis­notkun á fjár­mála­kerfi heillar þjóðar – fyrr en þá sem sagt eftir dúk og disk, að feng­inni sér­stakri skipan, á borð leggj­andi, hugget í lille mors sten.

En þeim mun lengur sem er dregið að kippa í taumana – og patent­lausnum öfl­ugar beitt til nið­ur­fell­ingar mála, t.d. á ólög­mætum for­sendum fjár­skorts! – þeim mun meiri eru ekki bara lík­urnar á að heilu asnaklifjarnar af gulli hverfi spor­laust, líkt og dæmi munu vera um, heldur getur slíkan sið­ferð­is­brest leitt af spill­ingu að lokum að ekki verði einu sinni barið í brest­ina. Enda öll mis­notkun á aðstöðu þá nán­ast orðin merk­ing­ar­laus – flestum þá sem sagt orðið allt heim­ilt, ein­ungis svo lengi sem grip­deildin verði ekki talin í sam­loku­virðum, jónum, gleðipillum eða í upp­slátt­ar­fregnum rann­sókn­ar­blaða­manna í massa­vís.

Skyldi þó eðli­lega einu gilda um sök, af eða á, hvort um væri að ræða bagga bara fáa eða fjöl­marga hest­burði, hvort sem væru klyfjar sam­loka eða ein­hvers ann­ars virðis fjár, eða bara sekkir mann­virð­inga – hvort sem um ræddi verkn­aði í eitt skipti fyrir öll, færslur úr hirslum eins í buddu ann­ars, nú eða í mal­poka eða í maga, eða sam­an­lagðar milli­færslur um langt ára­bil eða ára­tugum saman, þó ekki væri nema hús­fé­lags­reikn­inga á milli, eða úr mjólk­ur­buddum í hulda sjóði; ellegar bara æru­meið­ingar eða ítrek­aðar hót­anir um ærumorð, hvort sem væru staf­ræns eðlis, rit­aðar á pappír eða mæltar beint af munni fram, hvað þá í heyranda hljóði; eða á hinn bóg­inn full­framdir verkn­aðir, hreinar og klárar lík­ams­meið­ingar, jafn­vel kaldrifjuð morð. Verkn­aðir skyldu ávallt vera samir og jafnir fyrir lögum, sem og verk­anna menn og fórn­ar­lömb, skyldi maður ætla, eðli­lega í ljósi vægi sakar, með hlið­sjón af magni eða meið­ingum, að böggum töldum, hest­burðum eða asnaklifjum, eða kannski bara að töldum tugg­unum, kjafts­högg­unum, meið­ing­unum, gíga­bæt­unum – að hafðri hlið­sjón af jafn­ræð­is­reglu stjórn­ar­skrár...

Annars fer gríð­ar­leg orka í að velja úr réttum og ryðja af borðum, fái ekki eitt og annað að mygla og mynda að lokum dýr­indis dellu­skán, jafn­vel kryddsalt­aða. Kann þá líka einu og öðru að vera hent í smá­fugl­ana, jafn­vel lúx­us­sam­loku í aðstoð­ar­sak­sókn­ara sem aðstoð­ar­maður dóm­ara svo rífur í sig – svona í æfing­ar­skyni að maula, svona eitt­hvað líkt og hér áður­nefnt. En við háborðið sitja þá fygli hin meiri og hest­húsa í sig hin stóru málin, skálar fullar grauts og úr öskum yfir­fló­andi af bók­viti og deila með hirð sinni næst sér, sykr­uðu jafnt sem vel sölt­uðu að kjamsa á, nema að borið hafi svo vel í veiði að sópa megi dell­unni allri og graut­ar­skálum undir borð. Sitja megi þá allir á sárs höfði, að hætti góðra sam­herja, gæð­andi sér á blóði lag­andi hjörtum og villi­göltum, trönum og gæsum, hænsnum og páfuglum pipruðum, öndum og álftum og alls kyns villi­fygli...

Það væru vafa­laust stór­kost­legar ýkjur að ætla að halda ein­hverju slíku fram, að átt gæti þá við annað en bros­lega teikni­mynd, líkt og væru öll dýrin í skóg­inum vinir, í svona lýð­ræð­is­lega þenkj­andi dýra­ríki þar sem eng­inn væri jafn­ari en annar, öll dýrin þá sem sagt sitj­andi við sama borð. Sama þó að vissu­lega kunni að gæta smá ein­ræð­is­hneigðar í líf­rík­inu ef afar vel væri að gáð – jafn­vel að svo máttug örríki þrí­fist að hreint og beint gæti stafað hættu af þeim, líkt og sam­fé­lög skæð­ustu veira eru vissu­lega dæmi um, sem áhöld eru þó um hvort eigi sér nokkra sjálf­stæða til­veru frekar en að nær­ist bara á ver­und og vit­und ann­arra. Á sinn hátt ekki ólíkt og einmitt flest það sem í raun lýtur lög­gjaf­ar­vald­inu...

IV.

ÞAÐ MÆTTI ÞVÍ VISSULEGA spyrja, burt­séð frá hinum stóru málum og góm­sæt­ari, hvort eðli­legt sé að taka harðar en ella á sam­komu­haldi vegna brota á sótt­varn­ar­lögum af því að framá­maður liggi undir grun um þátt­töku í brot­unum – að mál­inu sé svo meira að segja úthlutað flýti­með­ferð á ákæru­sviði, að lok­inni rann­sókn með hraði, jafn­vel fyrir sér­staka áeggjan, á meðan önnur mun mik­il­væg­ari mál séu söltuð eða krydd­lögð í súr, ein­fald­lega af því að áhrifa­vald fjöl­miðla hafi ekki smit­ast af þeim? Er þá líka eðli­legt að afgreiða skotárás á bíl sem minni­háttar eigna­spjöll af því að eig­andi bíls­ins er hvorki framá­maður né áhrifa­valdur? Hvers vegna fær ein­ungis mál framá­manns­ins flýti­með­ferð – svo skjóta sem verða má, algjör­lega eðli máls­ins sam­kvæmt – á meðan máli hins hefur vart verið sinnt né að hann hafi fengið skýr­ingar nema nán­ast út í hött á nið­ur­fell­ingu máls­ins, þrátt fyrir að hafi meira að segja kært máls­með­ferð­ina fyrir löngu?

Hve lengi er sak­sóknurum ann­ars stætt á að safna í sarp sinn, jafn­vel svo árum skipti, án þess þó að málum sé sinnt nema í mýflugu­mynd eða hugað sé einu sinni að nið­ur­fell­ingu þeirra – komi það til álita – fyrr en jafn­vel að fyrn­ing­ar­fresti liðnum, er mál hafi legið í salti eða súr í hálfan ára­tug eða guð má vita hve lengi? Hver er þá ekki sök ákæru­valds­ins í ljósi ákvæða stjórn­sýslu­laga og laga um með­ferð saka­mála, ekki síst um hraða máls­með­ferðar, hvað þá ljósi XIV. kafla hegn­ing­ar­laga, sýni það ekki fullan vilja til þess að halda sig innan ramma lag­anna? Og þá þó nú væri með beiðnum um auka­fjár­veit­ingar til lúkn­ingar málum, standi hníf­ur­inn þar í kúnni...

Sinni lög­gjaf­ar­valdið hins vegar ekki brýnum, rök­studdum beiðnum um auka­fjár­veit­ingar, að ekki sé talað um ítrek­aðar beiðnir, hvað þá vegna yfir­gengi­legs álags á emb­ætti, þá er það einmitt hið sama vald eitt sem ber ábyrgð­ina á broti lag­ara­mmans – en ekki ákæru­valdið, eða hvert sem hið und­ir­setta vald ann­ars er, hvort sem væri dóms- eða fram­kvæmda­vald. Enda hafi lög­bund­inni starf­semi verið sinnt í sam­ræmi við stjórn­sýslu­lög og önnur lög um með­ferð mála, svo lengi sem rekstr­arfé leyfði. Embætti sem á hinn bóg­inn lætur hjá líða að lýsa ábyrgð á úrlausn mála á hendur fjár­veit­ing­ar­vald­inu fyrir sakir fjár­skorts, hlýtur sjálft að svara til saka fyrir þá mein­bugi á emb­ætt­is­færslum sem af skort­inum hafa verið leiddir. Það er þá emb­ættið eitt sem ber alla ábyrgð að lögum – hegn­ing­ar­lögum sem öðrum lögum – gagn­vart þeim sem brot hafa bitnað á, en ekki lög­gjaf­ar­valdið... sama hvað líður eft­irá­skýr­ingum, fyrir náð og vel­þóknan næsta yfir­valds emb­ætt­is­ins.

Hver væri þá ekki líka fjöl­miðl­anna ábyrgð! Hafi ekki einu sinni nokkur þeirra þrýst á mál, hvað þá varla að hinn smá­vægi­leg­asti áhrifa­valdur á sam­fé­lags­miðlum hafi hirt um að sinna... Það er segja, ef rétt væri frá hermt en væri ekki bara óstað­festur orðrómur, jafn­vel ótrú­leg fals­frétt, að einmitt þar liggi hið eina raun­veru­lega vald, hið eina og og sanna rann­sóknar- og dóms­mála­vald...

Þannig mætti lengi spyrja og jafn­vel þrá­spyrja og væru svörin að vonum þó lík­ast til út í hött, að allt væru þetta nú lík­ast til einka­mál hvers og eins, svona aðal­lega, enda hlað­borðið alveg yfir­fullt og ekki pláss fyrir meira. Nema nátt­úr­lega sam­lokur ávallt vel þegnar, bara ekki í slíkum bagga­burðum að verði hinni yngri og óreynd­ari kyn­slóð ofviða á lag­anna vegum þroska­væn­legrar upp­bygg­ingar, fimi til sóknar og stæl­ingar, á met­orð­anna blómum skrýddri ákærenda­braut. Varla að minnsta kosti á svo ýkja langri þyrnum stráðri braut, sé rétt til krufið mergjar, að hinna elstu og bestu manna laga­sýn.

Hvort þá ekki þurfi líka að gæta að fjöl­miðl­unum! Til hvers væru ann­ars rann­sókn­ar­blaða­menn með öll sín stóru og mik­il­vægu mál? Því skyldi ákæru­valdið ann­ars vera að leita eftir auka­fjár­veit­ingum ef ekki væri fyrir þeirra miklu vinnu? Til hvers þá að vera að leita eftir sér­stökum fjár­veit­ingum vegna allra smá­mál­anna fyrst fjöl­miðl­arnir sinna ekki nema örfáum þeirra? Hvar væri ákæru­valdið ann­ars statt ef það ætti ekki fjöl­miðla­valdið að? Samherja sinn! Bara á enda­lausum rann­sóknaræf­ingum að kryfja sam­lokur, alls kyns mauk í maga, hvort þær myndu vera úr Krónunni eða Bónus, með eða án skinku, remúlaði eða roast­beaf og lauk – eða jafn­vel úr Kjarvali? Til hvers væri þá allt þeirra starf og strit? Til hvers þá að vera að læra lög­fræði? Því þá ekki frekar að læra til smur­brauðs­dömu á Jóm­frúnni eða taka hrein­lega skrefið til fulls og fara í lækn­is­fræði?

V.

RANNSÓKNAR- OG EFTIRLITSHEIMILDIR Alþingis eru í raun­inni svo víð­tækar sem það sjálft ákveður. Öllu jöfnu fer emb­ætti rík­is­end­ur­skoð­anda með eft­ir­lits- og rann­sókn­ar­vald á fjár­mála­sviði en emb­ætti umboðs­manns Alþingis með sam­svar­andi vald á hinum ýmsu öðrum sviðum opin­bers rekstrar, hvor tveggja emb­ætt­anna fyrir sam­fellda starf­semi í umboði Alþingis. Þá starfa og ein­stakar nefndir sam­kvæmt lögum um Rann­sókn­ar­nefndir Alþingis, yfir­leitt tíma­bundið vegna ein­stakra verk­efna, auk þess sem ein­stakar þing­nefndir geta kallað menn fyrir og spurt spurn­inga. Það er svo einnig á valdi þings­ins að stofna sjálf­stæðar rann­sókn­ar­nefndir kjósi það svo, líkt og eftir banka­hrunið, nema að það taki jafn­framt skrefið til fulls og skipi sér­stakan sak­sókn­ara í ein­stökum mála­flokkum, eins og var líka gert eftir hrun, og þá eðli­lega með ákæru­valdi, sem vissu­lega hvorki nefnd­irnar né umboðs­maður þings­ins eða rík­is­end­ur­skoð­andi hafa, nema þá reyndar þann sjálf­sagða mögu­leika og að lögum bor­inn rétt, að geta vísað málum til emb­ætta lög­reglu og ákæru­valds.

Alþingi hefur á hinn bóg­inn sett sér þá reglu fyrir löngu að það skuli sem minnst skipta sér af, að minnsta kosti svo lengi sem hafís umlykur ekki landið eða land­vætt­unum er á annan hátt ógnað af til­lits­lausu mátt­ar­valdi, hvað þá af ofur lítt sið­prúðu banka­valdi – alveg sama hve ríkar heim­ildir þingið þó hefur. Sama þótt allar greinar allrar stjórn­sýslu og dóm­sýslu, sem sagt hinar form­legu laga­legu umgjarðir, séu á einn og annan veg vaxnar af meiði lög­gjaf­ar­valds­ins, sem og reyndar, á þann sam­svar­andi laga­lega máta mælt, allar greinar almenns atvinnu­lífs, mennta­lífs, félags­lífs og jafn­vel fjöl­skyldu­lífs.

Það er vart fyrr en eitt­hvað er hrunið eða alveg að hruni komið, eða sem sagt að land­vætt­unum sé með alvar­legum hætti ógnað, að þingið rumskar og kann að haf­ast eitt­hvað að, nán­ast sama þó að vel­farnan rík­is­ins liggi við borð, sama þó að fjár­mála­eft­ir­litið sofi. Líkt og stjórnir félaga og fyr­ir­tækja aðhefð­ust almennt ekk­ert fyrr en rekstur væri að þrotum kom­inn eða langt út í móa, ellegar að bankar og önnur fjár­mála­fyr­ir­tæki kæmust upp með allt – að sjálf­gefnu.

VI.

EMBÆTTI RÍKISENDURSKOÐANDA VIRÐIST vera eina eig­in­lega und­an­tekn­ingin frá þeirri reglu sem hér hefur verið lýst, enda eru slík lög ekki ein­ungis sett emb­ætt­inu, að það skuli sinna marg­vís­legri og sam­felldri eft­ir­lits- og rann­sókn­ar­vinnu, heldur fær það, að því er best verður séð, hvorki meira né minna en full­nægj­andi fjár­veit­ingar! Embættið fær sem sé fé til að fara að lögum... Sem sagt full­nægj­andi rekstr­arfé til að sinna stjórn­sýslu­út­tektum eftir því sem þörf er á, ýmist að eigin frum­kvæði eða eftir beiðnum frá utan­að­kom­andi aðilum, ráðu­neytum og stofn­unum og þó nú væri frá Alþingi, og þá að sjálf­sögðu ekki síður til að sinna fjöld­anum öllum af óform­legri úttektum sem og ekki síst allri þeirri reglu­legu end­ur­skoðun sem emb­ættið hefur með höndum, ásamt því að fylgja eftir allra­handa ábend­ingum sem emb­ætt­inu ber­ast.

Það verður heldur ekki betur séð, eftir árs­skýrslum Rík­is­end­ur­skoð­unar að dæma, en að emb­ættið uni vel hag sínum, sem sagt fjár­veit­ingum, og er árang­ur­inn líka góður eftir því. Það birt­ist til að mynda í því að Alþingi voru afhentar 24 skýrslur vegna stjórn­sýslu­út­tekta árið 2018. Þar af voru sjö aðal­út­tektir, ann­ars vegar þrjár frum­kvæðis­út­tektir og hins vegar fjórar gerðar að beiðni Alþingis. Á árinu 2017 var lokið 138 end­ur­skoð­un­ar­verk­efnum og 30 verk­efnum á sviði stjórn­sýslu, þar af 10 stjórn­sýslu­út­tektum – 8 að eigin frum­kvæði emb­ætt­is­ins, einni að beiðni for­sætis­nefndar Alþingis og einni að beiðni inn­an­rík­is­ráðu­neytis. Á árinu 2016 var lokið við 180 verk­efni á sviði end­ur­skoð­unar, en stjórn­sýslu­sviðið lauk við 29 úttektir á því sama ári, sem var jafn góður árangur og á árinu 2015. Sú und­ar­lega nýbreytni er ann­ars tekin upp í skýrslu árs­ins 2019 að ekki eru birtar sam­svar­andi tölur um fjölda úttekta.

Þrátt fyrir afar víð­tækt vald­svið rík­is­end­ur­skoð­anda þá nær það þó engu að síður nán­ast ein­göngu til þeirra afmörk­uðu þátta er lúta að fjár­sýslu og fjár­reiðum rík­is­ins, að fram­setn­ingu og högun fjár­mála stofn­ana og fyr­ir­tækja sem hafa með höndum rekstur eða fjár­vörslu á vegum rík­is­ins, að svo miklu leyti einnig sem varðar bein fjár­mála­tengsl ríkis og sveit­ar­fé­laga. Starf­semi emb­ætt­is­ins snýr því fyrst og fremst að innviðum fjár­mála­deilda en þeim mun síður að öðrum almennum rekstr­ar­sviðum hins opin­bera, hvað þá heldur að almenn­ingi, að beinum tengslum borg­ar­anna sjálfra við rík­is­valdið.

VII.

VALDSVIÐ UMBOÐSMANNS ALÞINGIS, á hinn bóg­inn, lýtur að flestum öðrum rann­sóknar- og eft­ir­lits­þáttum en þeim er rík­is­end­ur­skoð­andi hefur með höndum – og þá ekki síst að þeirri ásjónu hins opin­bera sem snýr einmitt að almenn­ingi, sjálfum borg­ur­unum. Hvor um sig gegnir raunar sjálf­stæðu hlut­verki umboðs­manns Alþingis, þar sem annar hefur fyrst og fremst með höndum eft­ir­lit og end­ur­skoðun á fjár­sýslu­sviði stjórn­sýsl­unnar, en hinum ber aftur á móti huga að nán­ast öllum öðrum sviðum og þáttum sýsl­anar hins opin­bera.

Að lögum um hinn síð­ar­nefnda umboðs­mann, sbr. 3. gr. laga um emb­ætti hans, tekur starfs­svið hans til nær allrar stjórn­sýslu ríkis – sem og til sveit­ar­fé­laga – og þá einnig til starf­semi þeirra einka­að­ila sem hlotn­ast hefur ýmis­legt opin­bert vald að lögum. Skal hann jafn­framt sinna hlut­verki eft­ir­lits­að­ila á for­sendum samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna gegn pynd­ingum og annarri grimmi­legri eða van­virð­andi með­ferð eða refs­ingu, og tekur starfs­svið hans þá einnig til einka­rek­inna stofn­ana og heim­ila á vegum einka­að­ila sem ann­ast frels­is­svipt fólk. Einu starfs­sviðin sem emb­ætti umboðs­manns Alþingis tekur ekki til, sam­kvæmt laga­grein­inni, eru ann­ars vegar störf sjálfs Alþingis og stofn­ana þess, og þó með und­an­tekn­ingum, og hins vegar störf dóm­stóla. Þá ber umboðs­manni ekki að huga að ákvörð­unum og athöfnum stjórn­valda þegar lög mæla svo fyrir um að menn leiti leið­rétt­ingar með mál­skoti til dóm­stóla – nema umboðs­maður ákveði að eigin frum­kvæði að taka mál til með­ferðar eða þá sjálfa máls­með­ferð stjórn­valds til almennrar athug­unar.

Lögin taka reyndar af öll tví­mæli um hlut­verk umboðs­manns Alþingis í næst fyrstu grein þeirra, grein nr. 2. Skal hann ekki ein­ungis hafa eft­ir­lit með stjórn­sýslu ríkis og sveit­ar­fé­laga og tryggja rétt borg­ar­anna gagn­vart stjórn­völdum lands­ins heldur og einnig gæta þess að jafn­ræði sé í heiðri haft í stjórn­sýsl­unni og að hún fari að öðru leyti fram í sam­ræmi við lög, vand­aða stjórn­sýslu­hætti og siða­reglur settar á grund­velli laga um Stjórn­ar­ráð Íslands og laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins.

Þrátt fyrir ein­dreg­inn vilja umboðs­manns til að fara að lögum þessum sem öðrum, þar á meðal fjár­lögum, og þrátt fyrir marg­ít­rekuð til­mæli hans og raunar umvand­anir við þingið, þá nægja fjár­veit­ingar engan veg­inn til að emb­ættið sinni öllum þeim starfs­sviðum og hlut­verkum sem hér hefur verið lýst og lögin þó mæla fyrir um. Árs­skýrslur emb­ætt­is­ins lýsa fjársvelt­inu mæta vel og þá ekki síst því hve nán­ast öll orka emb­ætt­is­ins fer í að sinna ein­stökum og raunar oft til­vilj­ana­kenndum kvört­unum, en hafin slík mál árið 2018 voru 381 tals­ins og 411 tals­ins árið 2019. Hafin frum­væð­is­mál árið 2018 voru aftur á móti ein­ungis 3 og á árinu 2019 alls engin, slíkur er fjár­skort­ur­inn. Ekki er getið for­at­hug­un­ar­mála árið 2018 en á árinu 2019 tókst þó að hefja alls 5 slík mál, hvorki meira né minna. Fyr­ir­tekin svokölluð OPCAT mál til með­ferðar, tengd áður­nefndum samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um eft­ir­lit með frels­is­svipt­ingu, voru þó aðeins 2 árið 2018, og jafn­mörg árið 2019, ein­ungis 2 tals­ins.

Bók­staf­lega allar stofn­anir og fyr­ir­tæki hins opin­bera starfa í raun­inni án þess að þau lúti hinum minnsta vilja Alþingis til að líta eftir almennum högum þeirra, að fjár­málum þeirra einum slepptum – svo skornar við nögl eru fjár­veit­ing­arnar. Hvað þá að þingið sinni þeirri skyldu sinni, sem það sjálft hefur þó á sig lagt, að láta rann­saka hin ýmsu mál og ferli sem falla utan fjár­sýslu­sviða hins opin­bera, sama þó það hafi falið umboðs­manni sínum að fylgja eftir þeim yfir­lýsta vilja þings­ins, sbr. m.a. 7. gr. lag­anna um emb­ættið, um rann­sóknir mála... Nema sem sagt að mál snúi að fjár­sýslu­sviðum, sem sagt að umboðs­manni Alþingis á sviði end­ur­skoð­unar rík­is­fjár­mála að huga að, þá er ávallt fé fyrir hendi, svo sem lög gera einmitt ráð fyrir.

Þessu má raunar líkja við að almenn fyr­ir­tæki hug­uðu afar vel að innra eft­ir­liti á fjár­sýslu­sviðum sínum, að öllu hinu bók­halds­lega formi og reglu­verki því tengdu, en fram­leiðslu- og þjón­ustu­sviðin væru ann­ars alveg afskipt. Þá engu lík­ara en þetta væru full­valda ríki í rík­inu, sjálfs sín ráð­andi um allt nema að vísu fjár­reið­urnar. Yfir­stjórnir hlýddu þó á kvart­anir og kvein við­skipta­vina en fyrir sakir þröngra fjár­hags­skorða sæju stjórn­irnar sér þess þó engan kost að kanna hvað eig­in­lega væri á seyði – í hinu stóra sam­hengi hlut­anna. Það kæmi því miður ekki til mála að gera heild­stæðar úttektir á rekstri svið­anna, úttektir á hinni eig­in­legu fram­leiðslu og þjón­ustu fyr­ir­tækj­anna, svo að bæta mætti rekstr­ar­hæfn­ina. Ekki frekar en að nokkuð yrði þá hresst upp á ímynd­ina – sjálfa ásjónu heild­ar­rekstr­ar­ins – að hún end­ur­spegl­aði trygga fram­leiðslu og trygga þjón­ustu en ekki skrum. Hvað þá frekar en að hugað væri að þeirri fjár­hags­legu skil­virkni sem einmitt myndi leiða af bættri fram­leiðslu og þjón­ustu – nema nátt­úr­lega ef heild­ar­rekst­ur­inn sner­ist bara um bók­hald og pen­inga­prentun, allt þá sem sagt undir einum og sama hatti, á einu og sama fjár­sýslu­svið­inu, þá ein­ungis undir svo glöggu eft­ir­liti lög­giltra end­ur­skoð­enda víxlar­ans, að eigi myndi fram­leiðslan og þjón­ustan leiða til hruns...

VIII.

LÖG UM UMBOÐSMANN gera sann­ar­lega ráð fyrir að hann sinni þeim argrúa kvart­ana sem honum ber­ast og þá raunar ekki síður þeim málum sem ein­stakir Jeppar á Fjalli eiga ekki per­sónu­legan rétt á að fá svör við vegna aðild­ar­skorts. Umboðs­maður hefur þá einmitt og ávallt á valdi sínu, hvort og þá hvenær hann telji ástæðu til að upp­lýsa Alþingi um, og þá alþjóð, hvað liggi að baki stjórn­sýslu hverri. En svo lengi sem umboðs­maður Alþingis fær ekki fé til að sinna slíku eft­ir­liti, úttektum og rann­sóknum, hvað þá að eigin frum­kvæði, sam­kvæmt lag­anna bók­staf, þá geta lögin vart talist vera annað en lýð­skrum.

Svo sann­ar­lega er lýðnum gefið tæki­færi til að kvarta og kveina! Að hinu leyt­inu, fyrir hinn dauða bók­staf lag­anna í veiga­mestu greinum, þá er umboðs­manni gert ókleift að taka nokkra stjórn­sýslu til heild­stæðrar athug­unar, þó ekki væri nema einmitt í ljósi kvein­staf­anna! Alveg sama þó að lögin mæli bók­staf­lega svo fyrir um, að hann hafi slíkar athug­anir á valdi sínu. Alveg sama hve miklir mein­bugir kunni að vera á fram­kvæmd laga, nán­ast sama hverju fram­kvæmda­valdið kunni að fara fram að geð­þótta sínum og duttl­ungum, þá líða ára­tugir – jafn­vel 24 ár – án þess að umboðs­maður hafi nokkur fjár­hags­leg úrræði að grípa til, alveg sama hve brýnar frum­kvæð­is­at­hug­anir kunni að vera, alveg sama hve hann hafi þrá­beðið um meira fé.

Umboðs­maður á þess þó vissu­lega kost – algjör­lega and­stætt við ákæru­valdið – að ein­fald­lega fella niður hafin mál vegna skorts á fjár­heim­ildum, sem sagt vegna skorts á mann­afla til starfa, jafn­vel að liðnum 24 árum, eftir marg­ít­rek­aðar en árang­urs­lausar beiðnir um fé til lúkn­ingar málum. Enda kveða lögin ekki á um skyldu umboðs­manns til að hafa frum­kvæði að rann­sókn eða athugun mála heldur kveða þau ein­ungis á um heim­ild – reyndar afar ríka og lítt tak­mark­aða heim­ild.

Sérhver refsi­verð hátt­semi skal á hinn bóg­inn bein­línis sæta ákæru, þá raunar ákæru­valds­ins, sbr. 42. grein laga um með­ferð saka­mála, nema annað sé sér­stak­lega ákveðið í lögum... En lög heim­ila ákæru­vald­inu ein­fald­lega hvergi nið­ur­fell­ingu mála á for­sendum fjár­skorts, sama undir hvaða yfir­skini væri – slíkir verkn­aðir fela því ein­fald­lega í sér lög­brot, reyndar alvar­legt brot á jafn­rétt­is­á­kvæðum stjórn­ar­skrár – alveg and­stætt við laga­heim­ildir umboðs­manna Alþingis í hinum ýmsu greinum.

Það leiðir beint af fjár­skorti umboðs­manns Alþingis, að raun­veru­legar stjórn­sýslu­út­tektir emb­ættis hans, á borð við fjöldan allan úttekta emb­ættis rík­is­end­ur­skoð­anda, eru nán­ast óhugs­andi – hvort sem það væru úttektir er vott­uðu frá­bæra stjórn­sýslu, sama þó að gætti stöku aðfinnslna, eða hins vegar að vott­uðu vonda sýslan, jafn­vel arfa­slæma. Hvað þá að umboðs­maður hafi nokkur tök á úttektum er varða kynnu jafn­vel svo viða­mikla og vonda sýslan mála, að hann hefði ástæðu til að gera ákæru­valdi við­vart. Hvað þá hverjar und­ir­tekt­irnar ann­ars yrðu, ef sjálft það sak­sókn­ar­vald væri svo van­hæft vegna ein­dreg­innar aðildar sinnar að úttekt­ar­mál­unum, að engu gæti þá skákað nema sjálfu sér? Í því hróks­valdi, þegar um er að tefla að bók­staf­lega vera, eða ekki vera, hlyti þá ekki krókur að koma á móti bragði og leiknum skjótt að ljúka með skák og mát – frekar en jafn­tefli?

Hvort aftur á móti Barbie og Ken tækju slíkri snilld­ar­lausn á leik­fléttu sem sjálf­gef­inni, það væri vissu­lega önnur saga. Hvort þau myndu una slíku sjálf­dæmi eða sýnd­ar­tafli þar sem aug­ljós­lega væru allir bræður í leik..? Nema fyrir hlé­drægni sakir, í því sama hróks­valdi, að mjök­uðu fram fjár­mála­eft­ir­lit­inu? Vátrygg­ingum lýð­veld­is­ins þá eigi teflt í tví­sýnu með skákun mála, hvað þá til nokk­urs æðra valds... Slyng mála­miðlun! Borð­leggj­andi patt­staða! Við algeran gambít ella að eiga, belli­bragð á byrj­un­ar­reit – þingið þá hrakið, fyrir fórnir á fórnir ofan, af reit á reit, í versta falli með glat­aðri hróker­ingu ákæru­valds­ins. Þá eigi annað í stöð­unni en stilla upp ridd­ara­emb­ætti, til sér­deilis sér­stakrar sak­sóknar – þá ekki einu sinni bisk­upi fórn­andi til bjargar leik­flétt­unni! Stra­tegía víst ein­sýn og fyr­ir­séð. Æ, félli Dallas-fléttan þá ekki betur í kramið... sjálft hið sígilda mann­tafl, þjóðin þá fengi þreytt með sér á nýjan leik... Vor peða­sveit! Skapa­norn­anna! Vart færa myndu oss til og fella oss, gera oss mát – í sjálfan stokk­inn oss þeyta? Í val­þröng slíkri, hvort RÚV..? Síminn, Hring­braut, N4? Æ, eigi á náðir ÍNN vér megum lengur leita. En Netflix! Vorra tíma, daga og nætur, kon­ungs­ríki ser­í­anna! Drottn­ing­ar­bragð! Queen's Gambit! Nornin sú veit, hún veit, HÚN þekkir taf­lið – allt!

Svo lengi sem hin bók­halds­legu reikn­ings­skil rekstr­ar­ins eru í þokka­legu lagi, sjálf fjár­sýsl­anin, hvað sem öðru líður, þá geta stofn­anir og fyr­ir­tæki hins opin­bera algjör­lega farið sínu fram, nán­ast að vild sinni, svo lengi sem vel­farnan J. R. eða Pamelu í Dallas liggur ekki við borð. Nánast sama á hvaða sviði þau starfa, svo sem mýgrútur dæma sannar – ein­ungis svo fremi að tekjur vegi nokkurn vegin salt móti gjöldum. Hér skal þó aðeins vísað til eins arfa­slæms við­fangs, er tekur þó eigi til alveg dæma­lauss skiln­ings hinna ýmsu stofn­ana hins opin­bera á hug­mynd­inni að vera – eða ekki vera – sama hve flestum kann fátt um finn­ast.

IX.

HVAÐ EINSTÖK SMÁMÁL ann­ars varðar, út af fyrir sig, sem höf­undur kann að hafa lagt út af með megn­inu af erindi þessu, og á ýmsan veg, þá er vissu­lega sá mögu­leiki fyrir hendi að ein­stakir alþing­is­menn gætu kynnt sér þau – jafn­vel að þeir gætu spurst fyrir um þau á skrif­stofu Alþingis, hvort nokkur Jeppi á Fjalli hafi lagt inn gæru eina eða tvær, þeim til að ylja sér við og orna. Væri þá kannski ekki úr vegi að for­seti Alþingis léði þeim stækk­un­ar­gler sitt – svo að greina mættu þeir þá á milli þels, togs og ill­hæra til að fá séð gleggri mynd. Fátt fleira myndi þá skorta en góðan fleyg­hamar og eld­spýtna­stokk til að leggja að við­fangs­efn­inu. Væri og ekki verra að hafa með góðan tommu­stokk með lög­giltu milli­metra­máli, þó ekki væri nema til að fá séð allan smá­geran vef­inn í sinni allra fyllstu og réttu hlut­falls­legu mynd.

Þar fyrir utan þá lægi að sjálf­sögðu bein­ast við að ákæru­valdið stefndi höf­undi fyrir brot á hinum ýmsu greinum hegn­ing­ar­laga, enda tak­mörk fyrir því hve hægt er að fara með mikið fleipur, að ekki væri bein­línis talað um reyfara­kenndan skáld­skap – frá því sjón­ar­miði séð, að ákæru­valdið væri sjálfu sér sam­kvæmt og hafn­aði slíkum krufn­ingum sem jafn­vel mætti jafna til kukls á Jóm­frúnni.

Að vera sjálfu sér sam­kvæmt – eða sjálfu sér ósam­kvæmt – varð­aði þá meðal ann­ars skiln­ing ákæru­valds­ins á 148. grein hegn­ing­ar­laga, hvort höf­undur með rangri kæru, röngum vitn­is­burði eða á annan hátt hafi leit­ast við með rang­færslum að koma því til leiðar að sak­lausir sak­sókn­arar verði sak­aðir um refsi­verðan verknað, hvað þá um kukl nokkuð...

Ef sá skyldi vera skiln­ingur ákæru­valds­ins, að vera þó sjálfu sér sam­kvæmt, þá bæri því að minnsta kosti sam­visku sinnar vegna að fara að lögum og und­ir­búa sak­sókn á hendur höf­undi, enda skal sér­hver refsi­verð hátt­semi sæta ákæru nema annað sé sér­stak­lega ákveðið í lögum, sbr.hér áður til­vís­aða 42. grein laga um með­ferð saka­mála – ella verði mál vart mátuð við jafn­ræð­is­regl­una, svo skýr sem hún þó er, að allir menn skyldu að minnsta kosti vera jafnir fyrir lögum.

Kysi ákæru­valdið á hinn bóg­inn að ofþyngja sam­visku sinni og afgreiða þetta erindi bara sem höf­und­ar­ins einka­mál, þá ekki einu sinni einnar sam­loku virði, þá myndi aug­ljós­lega blasa við skýrt brot þess á 42. grein­inni, þá sem sagt stjórn­ar­skrár­brot að sjálf­gefnu. Ella væri ákæru­valdið vart sjálfu sér sam­kvæmt, hvort þá heldur duttl­ungum sínum, við túlkun sína á jafn­ræð­is­regl­unni. Kynni það þó að koma út á eitt, svo margt fleira kynni líka að hanga á spýt­unni, hvort líta skyldi til dæmis til XIV. kafla hegn­ing­ar­laga, hvort jafn­vel ein­hverjar grein­anna númer 130, 132, 135, 138, 139, 140 og 141 gætu komið til álita í svo marg­vís­legu við­fangi – að ull allri inn­lagðri, skinnum og hærum, við­fangs­efnum þæfðum enda­laust.

Ákæru­valdið hlýtur því að gera það upp við sam­visku sína, hvort það vilji fara að geð­þótta sínum við túlkun á 42. grein­inni, sem og þá jafn­vel við túlkun sína á öllum hinum grein­unum líka, eða hins vegar, duttl­ungum sínum sam­kvæmt, láta bara kylfu ráða kasti, hvort þessu emb­ætt­inu eða hinu skyldi falið að salta málið eða súrsa það næstu miss­erin eða árin. Væri þá vissu­lega enn ósvarað spurn­ing­unni undir leið­sögn hvaða sak­sókn­ara málið skyldi þæft eða svæft, sem sagt hverjum væri best treystandi til að gæta að van­hæf­is­reglum jafnt sem að öllum öðrum forms­at­riðum. Að fari það nú ekki allt í fer­kantað kringlótt – jafn­vel heima­skíts­mát.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár