Skattbreytingar auka ráðstöfunartekjur hátekjufólks sexfalt meira en annarra

ASÍ segir að skatt­breyt­ingar sem gengu í gildi um ára­mót skili hátekju­fólki mun meiri ávinn­ingi en tekju­lægri hópum. Um sé að ræða ósam­ræmi í fram­kvæmd skatt­kerfis sem leiði kerf­is­bundið til auk­ins tekju­ó­jafn­aðar.


Hækkun á per­sónu­af­slætti og hækkun á tekju­mörkum í efra skatt­þrepi um liðin ára­mót gerir það að verkum að ráð­stöf­un­ar­tekjur hátekju­fólks aukast um 78 þús­und krónur á ári en lág- og milli­tekju­fólk fær um 12 þús­und krónur á ári vegna breyt­ing­anna. Þetta er nið­ur­staða útreikn­inga Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) á áhrifum skatt­breyt­ing­anna.

Í til­kynn­ingu ASÍ vegna máls­ins segir að um ára­mót hafi per­sónu­af­sláttur hækkað til sam­ræmis við hækkun á verð­lagi und­an­farið ár en efri tekju­mörk hækk­uðu til sam­ræmis við launa­vísi­tölu, eins og lög geri ráð fyrir. „Alþýðu­sam­bandið hefur ítrekað vakið athygli á þessu ósam­ræmi í fram­kvæmd skatt­kerf­is­ins, sem leiðir kerf­is­bundið til auk­ins tekju­ó­jafn­aðar. Þannig nam hækkun per­sónu­af­sláttur 1,9 pró­sent, hann fór úr 52.907 kr. í 53.895 kr. Á sama tíma hækk­uðu tekju­mörk í efra skatt­þrepi um 7,1 pró­sent og greið­ist tekju­skattur í efra skatt­þrepi nú af tekjum yfir 893.713 krónur á mán­uði í stað 834.707 kr. áður.“

ASÍ segir að þróun per­sónu­af­sláttar hafi meiri áhrifi á skatt­byrði eftir því sem tekjur eru lægri og myndi í raun skatt­leys­is­mörk að óbreyttu skatt­hlut­falli, sem líta megi á sem fyrsta þrep tekju­skatts­kerf­is­ins. „Tekju­mörk í efra skatt­þrepi hafa hins vegar ein­ungis áhrif á skatt­byrði tekju­hærri hópa. Þannig má segja að tekju­mörkin í fyrsta þrepi (skatt­leys­is­mörkin) hafi um ára­mót hækkað úr 143.224 krónum á mán­uði í kr. 145.899 eða um 1,9 pró­sent á sama tíma og tekju­mörkin í efra þrepi hækk­uðu úr 834.707 kr. í 893.713 kr. eða um 7,1 pró­sent.“

Misræmið valdi því að ráð­stöf­un­ar­tekjur hátekju­fólks auk­ist mun meira en ráð­stöf­un­ar­tekjur þeirra sem eru með minni tekjur. „Þannig lækk­aði sem dæmi stað­greiddur tekju­skattur og útsvar hjá ein­stak­lingi með 350.000 krónur í mán­að­ar­laun um ára­mótin úr 71.211 krónum á mán­uði í kr. 70.223 krónur og ráð­stöf­un­ar­tekjur þessa ein­stak­lings juk­ust þannig um 988 krónur á mán­uði eða 11.800 krónur á ári sem sam­svarar 0,3 pró­sent aukn­ingu ráð­stöf­un­ar­tekna. Ef litið er á hag þeirra sem eru með tekjur yfir efri tekju­mörk­unum skatt­kerf­is­ins, þ.e. yfir 893.713 kr.,lækkar stað­greiddur tekju­skattur og útsvar hins vegar mun meira hjá þeim eða um 6.476 krónur á mán­uði. Ráð­stöf­un­ar­tekjur þeirra hækka því um ríf­lega 77.700 krónur á ári, sem sam­svarar t.a.m. 0,9 pró­sent aukn­ingu ráð­stöf­un­ar­tekna hjá ein­stak­lingi sem hefur 1.000.000 kr. mán­að­ar­laun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár