Stjórnvöld mótmæla fordæmalausri auglýsingu aflandskrónueigenda

Ráð­herra­nefnd um efna­hags­mál fund­aði í morgun með Má Guð­munds­syni seðla­banka­stjóra vegna aug­lýs­inga frá kröfu­haf­varð­hund­inum Iceland Watch, sem birst hafa í íslenskum fjöl­miðlum að und­an­förnu. Í aug­lýs­ing­unum er varað við áhrifum þess að snúa ekki við laga­setn­ingu sem skikkar aflandskrónu­eig­endur til að gefa eftir hluta eigna sinna eða fest­ast ann­ars inn á vaxta­lausum reikn­ingum í Seðla­banka Íslands.

Í yfir­lýs­ingu frá ráð­herra­nefnd­inni, sem í sitja for­sæt­is­ráð­herra, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, inn­an­ríkis- og utan­rík­is­ráð­herra, er þeim rang­færslum sem birt­ast í aug­lýs­ing­unum mót­mælt. „ Ljóst er að erlendir aðilar, sem telja sig hafa hags­muni af því að ráð­stöf­unum um með­ferð aflandskróna verði breytt, standa að baki þessum aug­lýs­ingum, þar sem einnig er vegið með ósmekk­legum hætti að starfs­heiðri til­tek­inna starfs­manna Seðla­banka Íslands. Ein­stakir stærri aflandskrónu­eig­endur hafa að und­ir­förnu freistað þess að hafa áhrif á alþjóð­legar stofn­anir, láns­hæf­is­mats­fyr­ir­tæki og almenna fjöl­miðlaum­fjöllun en orðið lítið ágengt. “

Birtu heilsíður víða

Aug­lýs­ing­arnar sem um ræðir eru frá Iceland Watch, sem rekið er af hug­veit­unni Institute for Liber­ty.

Iceland­Watch.org verk­efnið vakti fyrst athygli hér­lendis þegar það keypti birt­ingar á Twitter til að koma boð­skap sínum á fram­færi. Aug­ljóst er að til­gang­ur­inn er að gæta hags­muna erlendra kröfu­hafa sem neit­uðu að taka þátt í aflandskrónu­upp­boði Seðla­banka Íslands í sumar sökum þess að þeim fannst gengið sem þar var í boði fyrir skulda­bréf þeirra ekki nógu hátt. Þess í stað voru eignir þeirra settar inn á vaxta­lausa reikn­inga. Það var hægt vegna sér­stakra laga sem Alþingi setti í aðdrag­anda útboð­anna. Laga­setn­ingin var rök­studd með því að aðgerð­irnar þættu nauð­syn­legar til að stuðla að greiðslu­jafn­vægi í íslenska efna­hags­kerf­inu og verja stöð­ug­leika lands­ins.

Þann 14. októ­ber síð­ast­lið­inn birt­ust síðan heil­síðu­aug­lýs­ingar í bæði Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­inu frá Iceland Watch. Aug­lýs­ing­arnar birt­ust einnig á á dönsku í dönskum fjöl­miðlum, m.a. við­skipta­blað­inu Bör­sen, og á ensku í banda­rískum fjöl­miðl­um.

Í aug­lýs­ing­unni voru Íslend­ingar varaðir við því að mis­muna alþjóða­fjár­festum. Þar sagði:„Við höfum séð þetta áður­. Þegar kæru­laus stjórn­völd fyr­ir­gera rétt­ar­rík­inu hverfur erlend fjár­fest­ing og lands­menn gjalda fyrir það. Á Íslandi mis­muna ný lög alþjóð­legum fjár­festum og neyða þá til að selja skulda­bréf sem ­tryggð eru í krónum með miklum afslætti, eða til að láta eignir sínar á reikn­inga sem ber­a enga vext­i. ­Tölum skýrt: Sví­virði­leg ný lög lands­ins mis­muna fjár­festum eftir þjóð­erni þeirra. Frekar en að halda áfram við­ræðum við alþjóð­lega fjár­festa sem reynt hafa að ná ­samn­ingum í góðri trú hefur Ísland stillt þeim upp við vegg.“

Ný auglýsing með Má í aðalhlutverki

Síðustu tvo daga hefur Iceland Watch svo birt nýja aug­lýs­ingu í Morg­un­blað­inu. Nú var hún með mynd af Má Guð­munds­syni seðla­banka­stjóra og spurt hver „greiði fyrir spill­ingu og mis­mun­un­ar­reglur á Íslandi“ og sagt að les­endur gerðu það. Þar var einnig spurt hvort Sturla Pálsson, fram­kvæmda­stjóri hjá Seðla­bank­anum, hafi „notað þekk­ingu sína á nýlega til­kynntri lög­gjöf um gjald­eyr­is­höft sem mis­munar erlendum fjár­festum um að stunda inn­herj­a­við­skipti“.

Í aug­lýs­ing­unni var því haldið fram að mis­mun­un­ar­stefna íslenskra íslensku gjald­eyr­is­haft­anna hafi kostað hvern Íslend­ing á bil­inu 1,7 til 3,1 milljón króna. Þetta hafi komið fram í „nýrri rann­sókn“ sem er þó ekki til­tekið hver hafi fram­kvæmt eða hvernig.

Iceland Watch reyndi einnig að fá aug­lýs­ing­una birta í Frétta­blað­inu en blaðið neit­aði að gera það.

Keimlíkt málflutningi vogunarsjóða

Tveir banda­rískir sjóð­ir, Eaton Vance Corp. og Autonomy Capi­­tal LP, sættu sig ekki við að eignir þeirra hafi verið settar inn á nær vaxta­­­­lausa reikn­inga í refs­ing­­­­ar­­­­skyni fyrir að taka ekki þátt í útboð­un­um. Þess í stað fólu sjóð­irnir lög­­­­­­­manni sínum að kanna grund­­­­völl fyrir mög­u­­­­legri máls­höfðun á hendur íslenska rík­­­­inu auk þess sem þeir hafa kvartað til Eft­ir­lits­­­­stofn­unar EFTA (ESA) vegna laga­­­­setn­ingar sem sam­­­­þykkt voru aðfara­nótt 23. maí síð­­­­ast­lið­ins, og þeir telja að feli í sér eign­­­­ar­­­­upp­­­­­­­töku og brot á jafn­­­­ræð­is­­­­reglu. Fyrsta skrefið í þeirri við­­leitni var að fara fram á það við hér­­aðs­­dóm Reykja­víkur að sér­­fræð­ingar verði skip­aðir til að fara yfir lög­­­mæti þeirra aðgerða sem fram­­kvæmdar voru gegn aflandskrón­u­eig­endum með lögum sem sam­­þykkt voru fyrr á þessu ári.

Íslenska ríkið hefur reynt að koma í veg fyrir að hér­­aðs­­dómur Reykja­víkur skipi sér­­fræð­inga til að meta hvort ríkið hefði efna­hags­­legar for­­sendur fyrir því að neita að skipta aflandskrónum sjóð­anna tveggja á lægra verði en mark­aðs­verði, líkt og Kjarn­inn hefur greint frá.

Mál­flutn­ingur Iceland­Watch.org er keim­líkur mál­flutn­ingi vog­un­ar­sjóð­anna tveggja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár