Tæpir þrír af hverjum fjórum Íslendingum með áskrift að Netflix og 92 prósent alls fólks á aldrinum 18 til 29 ára hafa aðgengi að streymisveitunni. Kjósendur Viðreisnar eru líklegastir til að hafa aðgengi að Netflix en kjósendur Vinstri-grænna ólíklegastir. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR. Könnunin var framkvæmd 23. til 29. maí 2019 og var heildarfjöldi svarenda 932 einstaklingar, 18 ára og eldri.
Áskrifendum Netflix fjölgaði á síðustu árum. Alls eru 72 prósent þjóðarinnar með áskrift að Netflix, samanborið við 67 prósent í maí 2018. Árið 2017 var hlutfallið 59 prósent og í janúar 2016 höfðu um þriðjungur þjóðarinnar aðgengi að Netflix.
Þá eru 92 prósent fólks á aldrinum 18 til 29 ára hafa aðgang að Netflix samanborið við 75 prósent fólks á aldrinum 30 til 49 ára. Einungis hafa 17 prósent fólks á aldrinum 68 ára og eldri aðgang að Netflix.

Fólk á höfuðborgarsvæðinu er enn fremur líklegra til að hafa áskrift að Netflix, það er 76 prósent íbúa á höfuðborgarsvæðinu og 65 prósent fólks á landsbyggðinni. Lítill munur reyndist á aðgengi að Netflix eftir kyni.

Kjósendur Viðreisnar eru þau sem helst hafa aðgengi að Netflix, það er 84 prósent þeirra. Þar á eftir koma Píratar með 80 prósent og Sjálfstæðisflokkurinn með 73 prósent. Kjósendur Vinstri-grænna eru ólíklegust að hafa aðgengi að Netflix þar sem einungsi 61 prósent þeirra hafa aðgengi að streymisveitunni.

Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir