Lítið mældist af loðnu fyrsta mánuð ársins

Samkvæmt nýjum mæl­ingum er stærð loðnu­stofns­ins langt undir þeim mörkum í gild­andi afla­reglu sem þarf að ná svo Haf­rann­sókna­stofnun geti ráð­lagt veiðar.

Bráða­birgða­mat liggur nú fyrir frá mæl­ingum á stærð loðnu­stofns­ins í jan­úar á þessu ári. Stærð hrygn­ing­ar­stofns­ins sam­kvæmt þessum mæl­ingum var um 64 þús­und tonn. Er það langt undir þeim mörkum í gild­andi afla­reglu sem þarf að ná svo Haf­rann­sókna­stofnun geti ráð­lagt veiðar.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá stofn­un­inni.

Matið byggir á mæl­ingum þriggja skipa, RS Árna Frið­riks­sonar, ásamt loðnu­skip­unum Hákoni EA-148 og Polar Amaroq. Í til­kynn­ing­unni segir enn fremur að þrátt fyrir erf­iðar veð­ur­að­stæður hafi náðst með sam­stilltu átaki þriggja mæli­skipa og tveggja leit­ar­skipa, heild­ar­yf­ir­ferð frá Hval­baks­halla fyrir suð­austan land og þaðan norður um og suður fyrir Víkurál út af Vest­fjörðum. Hafís hafi hindrað mjög yfir­ferð í Græn­lands­sundi.

Þann 1. febr­úar síð­ast­lið­inn var byrjað á að ná mæl­ingu á stofn­inum öðru sinni, sam­kvæmt Haf­rann­sókn­ar­stofnun. Polar Amaroq byrj­aði þá yfir­ferð suð­austur af land­inu og mun Aðal­steinn Jónsson SU-011 koma inn í þær mæl­ingar fyrir austan þriðju­dag­inn 4. febr­úar. RS Árni Frið­riks­son mun halda til mæl­inga 3. febr­úar vestur fyrir land og mæla til móts við hin skipin.

Haf­rann­sókn­ar­stofnun gerir ráð fyrir að þessar mæl­ingar geti staðið yfir fram í að minnsta kosti miðjan mán­uð­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár