Heiðar Guðjónsson selur hlut sinn í Sýn og kveður sem forstjóri

Heiðar átti alls 12,72 pró­senta hlut í fjar­skipta- og fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu Sýn fyrir við­skiptin. Þann hlut hefur hann selt fyrir 2,2 millj­arða.

Heiðar Guðjónsson tók við sem forstjóri Sýnar árið 2019 en hann hafði þá verið stjórnarformaður félagsins frá árinu 2014.
Heiðar Guð­jóns­son tók við sem for­stjóri Sýnar árið 2019 en hann hafði þá verið stjórn­ar­for­maður félags­ins frá árinu 2014. Mynd: Sýn

Heiðar Guð­jóns­son fjár­festir og for­stjóri Sýnar hefur selt öll hluta­bréf sín í fyr­ir­tæk­inu og mun láta af störfum sem for­stjóri fyrir lok þessa mán­aðar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Sýnar til kaup­hallar.

Fyrir söl­una átti Heiðar 12,72 pró­senta eign­ar­hlut í fjar­skipta- og fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu, eða alls rúm­lega 34,1 milljón hluti, í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið Ursus ehf. Verð fyrir hvert bréf í við­skipt­unum nemur 64 krónum og heild­ar­virði við­skipt­anna því tæp­lega 2,2 millj­arðar króna. Verð á hvern hlut er 9,4 pró­sentum hærra en dagsloka­gengi bréfa félags­ins á föstu­dag er það var 58,5 krónur á hlut.

Heiðar hefur um langt ára­bil verið einn af stærstu hlut­höfum Sýnar. Fram að söl­unni hafði Heiðar aukið við hlut sinn í mán­uð­inum. Listi yfir stærstu hlut­hafa félags­ins var upp­færður þann 1. júlí síð­ast­lið­inn. Þá átti Heiðar rúm­lega 27.1 milljón hluti í gegnum Ursus ehf, alls 10,12 pró­sent í félag­inu.

Heiðar hefur gegnt stöðu for­stjóra Sýnar frá því í apríl 2019 en hann var áður stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins á árunum 2014 til 2019. Fram kemur á vef mbl.is að Heiðar hafi sent sam­starfs­fólki sínu til­kynn­ingu í morgun þar sem hann greindi frá því að hann hafi orðið fyrir heilsu­bresti fyrr á árinu og í kjöl­farið ráð­lagt að minnka við sig vinnu.

Gavia Invest orðinn stærsti hluthafinn

Gavia Invest er nú orð­inn stærsti hlut­hafi félags­ins eftir við­skipti helg­ar­innar með hátt í 15 pró­senta hlut. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til kaup­hallar. Í til­kynn­ing­unni kemur fram að Gavia Invest sé í eigu þriggja félaga, Capital ehf, E&S 101 ehf og AB 891 ehf. Eigendur þess­ara félaga eru Reynir Grét­ars­son, Hákon Stef­áns­son, Jonathan R. Rubini, Andri Gunn­ars­son, Mark Kroloff og Jón Skafta­son. Jón er enn fremur fyr­ir­svars­maður félags­ins Gavia Invest.

Sýn er stór aðili á fjöl­miðla­mark­aði. Fyr­ir­tækið á og rekur sjón­varps­stöðv­arnar Stöð 2 og Stöð 2 Sport, vef­mið­il­inn Vísi og útvarps­stöðv­arnar Bygljuna, FM957 og X977. Innan veggja fyr­ir­tæk­is­ins er rekin stór frétta­stofa, sam­eig­in­leg frétta­stofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar. Þá á Sýn einnig fjar­skipta­fyr­ir­tækið Vodafone.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár