Pétur mikli og laumufarþegarnir

Danmörk hefur öldum saman verið her­tekin af rottum, eins og fleiri evr­ópskar stór­borgir. Baráttan snýr að mestu leyti við að halda henni í skefjum þar sem hún virð­ist sjá við öllum þeim brögðum sem gegn henni er beitt.

Sumarið 1716 kom Pétur mikli Rússa­keis­ari til Kaup­manna­hafnar. Keis­ar­inn, sem kom sjó­leið­ina, var ekki einn á ferð því honum fylgdu um það bil 30 þús­und her­menn. Líklega hafa aldrei fleiri Rússar verið sam­an­komnir í borg­inni og þeir voru ekki í neinum ,„skreppitúr“ því þeir stóðu við í næstum þrjá mán­uði. En í fylgd­ar­liði keis­ar­ans voru einnig óboðnir gestir.

Erindi keis­ar­ans var ekki fyrst og fremst að skoða sig um og hitta mann og annan. Keis­ar­inn og Friðrik IV Dana­kon­ungur höfðu samið um að ráð­ast í sam­ein­ingu gegn Svíum, „þagga niður í Karli XII Svía­kóngi“ eins og Pétur mikli hafði kom­ist að orði. Keis­ar­inn gaf lítið fyrir hina fág­uðu siði dönsku hirð­ar­innar, í klæða­burði barst hann lítt á en kunni vel að meta mat og drykk gest­gjaf­anna. Sama gilti um rúss­neska her­liðið. Þrátt fyrir allar bolla­legg­ingar keis­ar­ans og Dana­kon­ungs, og und­ir­bún­ing þess að lækka rostann í Svíum varð ekk­ert úr þeim fyr­ir­ætl­unum og Pétur mikli sigldi heim­leiðis seint i októ­ber 1716.

Eins og áður sagði voru í fylgd­ar­liði keis­ar­ans óboðnir gestir og þeir urðu eftir þegar Rússar sneru heim. Í dag lesa Danir um keis­ara­heim­sókn­ina í sagn­fræði­ritum en um afkom­endur hinna óboðnu gesta þarf ekki að lesa í neinum bókum, þeir eru sprell­lif­andi og fleiri en nokkru sinni fyrr. Rottur.

Komu frá Asíu

Laumu­far­þeg­arnir sem komu með Rússa­keis­ara til Dan­merkur 1716 voru hinar svo­nefndu brún­rottur. Þær höfðu lengi þrif­ist í Austur-Asíu en færð­ust smám saman norður á bóg­inn. Í Evrópu var fyrir svartrottan, líka kölluð hús­rotta. Svartrottan kom upp­haf­lega frá Suð­austur- Asíu og talið er að með henni hafi borist til Evrópu ein mann­skæð­asta plága sem herjað hefur á mann­kynið, Svarti­dauði. Talið er að allt að 75 millj­ónir manna hafi lát­ist af völdum plág­unnar, á árunum 1348- 1352, þar af 25- 30 millj­ónir í Evrópu, meira en þriðj­ungur íbúa álf­unnar á þeim tíma. Plágan barst ekki til Íslands en um það bil fimm­tíu árum síðar gaus hún upp aftur og þá varð Ísland hart úti, talið er að Svarti­dauði hafi lagt þriðj­ung þjóð­ar­innar, jafn­vel fleiri, að velli.

Brúnrottan hertók Danmörku

Óhætt er að segja að brún­rottan hafi breiðst út í Danmörku, eins og eldur í sinu. Á örfáum árum var hún komin um allt land og útrýmdi að mestu leyti svartrott­unni, sem er ekki jafn hörð af sér og getur til dæmis ekki lifað í vatni. Í skýrslu frá árinu 1778 var frá því greint að á Lálandi hafi brún­rottur etið allt að fjórð­ungi korns­ins. Það segir sitt.

Brún­rott­urnar fjölga sér ört og geta eign­ast á annað hund­rað afkvæma, og jafn­vel fleiri, á einu ári. Ein „rottu­hjón“ geta þannig hæg­lega eign­ast þús­und afkom­endur á einu ári.

Félag til að berjast gegn rottunum

Árið 1898 var stofnað í Kaup­manna­höfn félag í þeim til­gangi að berj­ast gegn rottu­far­aldr­inum, eins og það var orðað í frá­sögnum blað­anna “For­en­ingen til lovor­dnet udrydd­else af rotter“. Starf­semin skyldi ekki bundin við Kaup­manna­höfn eina enda herj­aði rottu­plágan í öllum lands­hlutum. Lög og vinnu­reglur þessa félags urðu fyr­ir­mynd sam­bæri­legra félaga í mörgum löndum. Samkvæmt hug­myndum félags­ins yrði barist gegn rott­unum um allt land „í sam­stilltu átaki“ eins og það hét, ríki og sveit­ar­fé­lög skyldu styrkja bar­átt­una meðal ann­ars með því að greiða sér­stakt gjald fyrir hvern rottu­hala sem skilað væri inni. Á fyrsta starfs­ár­inu drápu félags­menn rúm­lega eitt hund­rað þús­und rottur í Kaup­manna­höfn einni. Öllum var orðið ljóst að rottan var vágestur sem ekki yrði auð­veld­lega sigr­aður.

Löggjöf

Í mars­mán­uði 1907 voru sam­þykkt í Danmörku lög um bar­áttu gegn rottum. Þar var kveðið á um skipu­lagða bar­áttu gegn þessu mein­dýri, greitt skyldi gjald fyrir hvern afhöggv­inn hala. Þremur árum eftir gild­is­töku lag­anna hafði verið greitt fyrir 4 millj­ónir hala, og virt­ist ekki sjá högg á vatni, sagði eitt blað­anna. Árið 1924 var inn­leidd svo­nefnd rottu­eit­urs­lög­gjöf, í henni fólst að við allar opin­berar bygg­ingar og versl­anir og fyr­ir­tæki, hverju nafni sem nefnd­ist, skyldi með skipu­lögðum hætti lagt út rottu­eitur. Þessi laga­setn­ing hefur margoft verið end­ur­nýjuð, síð­ast í byrjun þessa árs. Skemmst er frá því að segja að allar aðgerðir til að stemma stigu við útbreiðslu og fjölgun rott­anna hafa lít­inn sem engan árangur borið. Fyrir hverja rottu sem drepst koma tvær, eða fleiri, nýjar.

2.júlí árið 2011 varð ský­fall í Kaup­manna­höfn, mörg þús­und kjall­arar í mið­borg­inni og víðar fóru á flot, aldrei í sög­unni höfðu borg­ar­búar orðið vitni að öðru eins. Ekkert mann­tjón varð í þessu úrhelli en sama verður ekki sagt um rott­urnar. Talið er að milljón rottur hafi drep­ist, lang flestar í yfir­fullum hol­ræsarörum, sem að jafn­aði eru þeirra eft­ir­lætis veru­staðir. Þetta skarð sem þarna var höggvið í stofn­inn virt­ist litlu breyta, á undra­skömmum tíma voru rott­urnar, töldu sér­fróðir, orðnar jafn­margar og áður og síðan hefur þeim fjölgað mikið, alls staðar í land­inu. Enginn veit með vissu hve stór rottu­stofn­inn í Danmörku er, en talið að sam­tals séu rott­urnar í land­inu vel á fjórðu milljón, hugs­an­lega tals­vert fleiri. Flestar í höf­uð­borg­inni.

Hvernig stendur á öllum þessum fjölda?

Svarið við þess­ari spurn­ingu er ekki ein­falt. Áður var nefnt að rott­urnar tímg­ast hratt. Lífs­skil­yrði þeirra hafa batnað mikið á und­an­förnum árum, skólplagna- og frá­veitu­kerfi borg­ar­innar er að stórum hluta gam­alt og gisið, það auð­veldar rott­unum lífið. Síðast en ekki síst eru rott­urnar klók kvik­indi sem sjá við flestum þeim brögðum sem reynt er að beita gegn þeim.

Rott­urnar valda miklu tjóni, þær naga auð­veld­lega í sundur plast­rör og sömu­leiðis stein­steypu sem farin er að morkna. Danskir bændur standa margir hverjir ráð­þrota, kettir og hundar mega sín lít­ils í bar­átt­unni, og það virð­ist sama hvað gert er, rott­urnar sjá við öllu.

Smitberar

Engin leið er að meta til fjár tjónið sem rott­urnar valda en það er mikið og fer vax­andi með hverju ári. Alvar­legra er þó að rott­urnar eru smit­berar, á síð­asta ári veikt­ust að minnsta kosti tutt­ugu ein­stak­lingar í Danmörku, af rottu­sýki (lept­ospirose). Ef hland- eða skítur úr rottu kemst í t.d skeinu á fæti, getur það leitt til rottu­sýki. Byrj­un­ar­ein­kennin líkj­ast inflú­ensu, hægt er að ráða nið­ur­lögum sjúk­dóms­ins á byrj­un­ar­stigi með sýkla­lyfjum. Talið er að á síð­asta ári hafi um það bil hálf milljón manna veikst af rottu­sýki, lang flestir í Asíu.

Verður ekki útrýmt

Í grein­ar­gerð með áður­nefndum dönskum lögum um bar­átt­una gegn rott­unum var sér­stak­lega tekið fram að úti­lokað væri að útrýma þeim í Danmörku. Baráttan skuli mið­ast við að halda þessum ófögn­uði í skefjum og reyna með öllum ráðum að sjá til þess að rott­unum fjölgi ekki enn frekar.

Í lokin má geta þess að rott­urnar eru plága í mörgum stór­borgum, meðal ann­ars í París, New York og London. Af og til ber­ast líka rottu­fréttir frá Kína, fyrir nokkrum árum eyðilögðu rottur stóran kornakur í hér­að­inu Hunan. Og það var eng­inn smá flokkur, talið að fjöld­inn hafi verið tveir millj­arðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár