Óttarr Proppé „ánægður með rökstuðning ráðherra“

Heil­brigð­is­ráð­herra tók til máls í umræðum um skipan dóm­ara við Lands­rétt og sagði það ekki þings­ins að ákveða hverjir yrðu skip­aðir. Hann væri sáttur og ánægður með rök­stuðn­ing dóms­mála­ráð­herra í mál­inu.

Óttarr Proppé, heil­brigð­is­ráð­herra og for­maður Bjartrar fram­tíðar, seg­ist vera ánægður með rök­stuðn­ing Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra fyrir því að víkja frá mati hæf­is­nefndar um skipun dóm­ara við Lands­rétt. Það sé ekki hlut­verk Alþingis eða alþing­is­menna að vera ný mats­nefnd eða taka ákvörðun um það hverja skuli skipa í Lands­rétt.

„Ráðherra ber ábyrgð á skipun í dóm­inn,“ sagði Óttarr. Það væri hlut­verk þing­manna að sam­þykkja eða hafna til­lögu ráð­herr­ans. Því væri það þeirra að ákveða hvort þeir séu sáttir við þann rök­stuðn­ing sem ráð­herra komi með fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd. Það sé hann.

Óttarr nefndi sér­stak­lega kynja­sjón­ar­mið í ræðu sinni og sagði það fagn­að­ar­efni og gott vega­nesti að nú yrðu kynja­hlut­föll jöfn í dóm­stól. Það hafi verið honum áhyggju­efni þegar upp­haf­legi list­inn „lak út núna á vor­dögum“ hvað það hafi hallað á konur. „Ég hef tekið undir það með öðrum vítt og breitt úr hinu póli­tíska lands­lagi að það hafi verið alla­vega ástæða til að skoða það sér­stak­lega. Ég fagna því sér­stak­lega í til­lögu hæst­virts ráð­herra.“

Þá sagði Óttarr að það væri því miður ekki útlit fyrir að hægt væri að ná ein­hverri breiðri, póli­tískri sátt um málið. Það sé nokkuð djúp­stæður ágrein­ingur um það.

Hann sagð­ist taka undir meiri­hluta­á­lit stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, en meiri­hlut­inn lagði til að til­laga Sigríðar yrði sam­þykkt.

Greidd verða atkvæði um málið um klukkan 17 í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár