Það munar 28,5 krónum á ódýrasta og dýrasta bensínlítranum

Costco hefur lækkað elds­neyt­is­verð hjá sér á nýjan leik og býður nú við­skipta­vinum sínum upp á mun ódýr­ara bensín og díselolíu en sam­keppn­is­að­il­arnir.

Bensín er ódýrast í Costco.
Bensín er ódýr­ast í Costco. Mynd: EPA

Costco hefur lækkað verð á bens­íni hjá sér í 166,9 krónur á lítra. Samkvæmt síð­unni bens­ín­verð.is er dýr­asti bens­ín­litr­inn hjá Skelj­ungi, en þar kostar hann 195,4 krónur. Það þýðir að mun­ur­inn á dýrasta og ódýrasta bens­ínítra sem fáan­legur er í dag á Íslandi er 28,5 krónur og að lítri af bens­íni kostar 17 pró­sent meira hjá Skelj­ungi en hann kostar hjá Costco.

Vert er að taka fram að Orkan, sem er í eigu Skelj­ungs og rekur 55 sjálfs­af­greiðslu­stöðvar víða um land, selur lítra af bens­íni á 180,1 krónu, 13,2 krónum meira en Costco. Þar er nú ódýrasta bens­ín­verðið utan þess sem býðst hjá Costco. Alls eru tólf elds­neyt­is­dælur við verslun Costco og þeir sem ætla að nýta sér þær þurfa að vera með aðild­ar­kort sem kostar 4.800 krónur á ári.

[adspot]

Costco hefur líka lækkað verð á díselolíu. Lítri af henni kostar nú 158,9 krónur á elds­neyt­is­stöð versl­un­ar­innar. Dýrasti dís­ellítr­inn hjá hinum elds­neyt­is­söl­unum kostar 181,3 krónur. Það er algeng­asta verð á stöðvum Skelj­ungs, N1 og Olís. Því munar 22,4 krónum á ódýrasta og dýrasta dís­ellítr­anum. Orkan kemst næst Costco í verði, og selur dís­ellítr­ann á 167,5 krónur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

eldsneyti

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár