Formaður BSRB: Ekkert þokast nær ásættanlegri niðurstöðu

„Það eru mikil von­brigði að við höfum ekki náð að þok­ast nær ásætt­an­legri nið­ur­stöðu. Það er stutt í að verk­falls­að­gerðir hefj­ist og mörg stór mál sem bíða úrlausnar,“ segir Sonja Ýr Þor­bergs­dóttir, for­maður BSRB.

Kjarasamningar þorra aðildarfélaga BSRB hafa verið lausir frá 1. apríl í fyrra.
Kjara­samn­ingar þorra aðild­ar­fé­laga BSRB hafa verið lausir frá 1. apríl í fyrra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Lítið hefur þok­ast í sam­komu­lags­átt í kjara­við­ræðum BSRB við við­semj­endur und­an­farna daga. Rætt hefur verið um útfærslu stytt­ingu vinnu­vik­unnar hjá vakta­vinnu­fólki og jöfnun launa milli mark­aða án þess að nið­ur­staða hafi náðst. Verkföll aðild­ar­fé­laga banda­lags­ins munu hefj­ast mánu­dag­inn 9. mars ef kjara­samn­ingar nást ekki fyrir þann tíma.

„Það eru mikil von­brigði að við höfum ekki náð að þok­ast nær ásætt­an­legri nið­ur­stöðu. Það er stutt í að verk­falls­að­gerðir hefj­ist og mörg stór mál sem bíða úrlausnar,“ er haft eftir Sonju Ýr Þor­bergs­dóttur, for­manni BSRB, í frétta­til­kynn­ingu frá félag­inu.

Kjara­samn­ingar þorra aðild­ar­fé­laga BSRB hafa verið lausir frá 1. apríl í fyrra, eða í um 11 mán­uði. Aðild­ar­fé­lög banda­lags­ins hafa falið BSRB að semja um stór sam­eig­in­leg mál á borð við stytt­ingu vinnu­vik­unnar, orlofs­mál, launa­þró­un­ar­trygg­ingu, jöfnun launa á milli mark­aða og fleira. Launa­lið­ur­inn og sér­tæk mál eru hins vegar á borði hvers aðild­ar­fé­lags.

Einstök aðild­ar­fé­lög hafa átt fundi með við­semj­endum und­an­farna daga og hefur árang­ur­inn af þeim fundum verið mis­jafn. Góðar fréttir bár­ust frá Sameyki, sem und­ir­rit­aði í gær kjara­samn­ing við Faxa­flóa­hafnir. Viðræður Sameykis við aðra við­semj­endur ganga hins vegar verr. Fundur með samn­inga­nefnd rík­is­ins á þriðju­dag var tíð­inda­lít­ill. „Það verður að segj­ast að þrátt fyrir þessi góðu tíð­indi sem greint er frá hér að ofan þá er ekki mikil bjart­sýni ríkj­andi í okkar her­búðum og und­ir­bún­ingur fyrir verk­fall því í fullum gangi,“ segir í frétt félags­ins.

Fundi aflýst hjá bæjarstarfsmannafélögum

Samn­inga­nefnd Sjúkra­liða­fé­lags Íslands fund­aði með samn­inga­nefnd rík­is­ins í gær þar sem kröfur félags­ins og við­brögð sjúkra­liða við samn­ings­til­boði rík­is­ins voru rædd. Í færslu á Facebook-síðu félags­ins segir að samn­inga­nefndin sé „hóf­lega bjart­sýn“ um fram­gang við­ræðn­anna. Næsti samn­inga­fundur hefur verið boð­aður 2. mars.

Fundur bæj­ar­starfs­manna­fé­laga með samn­inga­nefnd Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, sá fyrsti í rúman mánuð, var afboð­aður stuttu áður en hann átti að hefj­ast á þriðju­dag. Ástæðan var sú að samn­inga­nefnd Sam­bands­ins hafði ekki unnið heima­vinnu sína og því ekk­ert til að ræða á fund­inum, eins og rakið er á Facebook-síðu Kjalar stétt­ar­fé­lags.

Takist samn­ingar ekki fyrir 9. mars munu aðild­ar­fé­lög BSRB hefja boð­aðar verk­falls­að­gerðir. Aðgerð­irnar munu hefj­ast með tveggja daga alls­herj­ar­verk­falli 9. og 10. mars. Þann 9. mars munu ákveðnir hópar einnig hefja ótíma­bundið verk­fall til að leggja áherslu á kröfur félag­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár