Eðlilegt að gera kröfu um ábyrgar fjárfestingar lífeyrissjóða

Krefj­andi tímar eru nú hjá íslenskum líf­eyr­is­sjóðum, sem hafa verið að auka fjár­fest­ingar sínar erlendis að und­an­förnu.

Eðlilegt er að gera kröfu um að íslenskir líf­eyr­is­sjóðir horfi til ábyrgra fjár­fest­inga­kosta í fjár­fest­ingum sínum, og horfi meðal ann­ars til umhverfis- og sam­fé­lags­legra sjón­ar­miða við fjár­fest­ingar sínar.

Þetta er meðal þess sem fjallað er um í ítar­legri grein Krist­jáns Guy Burgess, alþjóða­stjórn­mála­fræð­ings og ráð­gjafa, í nýj­ustu útgáfu Vís­bend­ingar.

Í grein­inni er fjallað um krefj­andi stöðu sem íslenskir líf­eyr­is­sjóðir standa frammi fyrir, þegar kemur að ávöxtun líf­eyris lands­manna.

„En hvernig velja sjóð­irnir fjár­fest­ing­ar­kosti fyrir þessa 1.000-1.500 millj­arða á alþjóð­legum mörk­uðum miðað við núver­andi stærð og þau millj­arða­hund­ruð sem bæt­ast við á næst­unni? Það er ljóst að þeir verða að dreifa áhætt­unni veru­lega og velja fjöl­breyti­lega kosti. Það er aldrei gott að hafa öll egg í sömu körf­unni, jafn­vel þótt karfan sé stór.

Það er full­kom­lega eðli­legt að gera þá kröfu að við allar fjár­fest­ing­ar­á­kvarð­anir skuli sjóð­irnir miða við að hafa sem best áhrif á umhverfi, sam­fé­lag og stjórn­ar­hætti og taka ESG-þætti inn í allar ákvarð­anir. Það er hægt að gera án þess að afsláttur sé gef­inn af ávöxtun, enda sýna sam­an­burð­ar­vísi­tölur að hægt er að fá betri ávöxtun víða með því að velja ESG-fjár­fest­ing­ar­leiðir umfram hefð­bundna sjóði. Vanti sjóð­ina fyr­ir­myndir, má horfa til þess hvernig nor­rænu líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa staðið að málum,“ segir Kristján Guy í grein sinni, og rekur meðal ann­ars hvernig nor­rænir líf­eyr­is­sjóðir hafa sett sér stefnu í þessum málum.

Eignir íslenskra líf­eyr­is­sjóða fóru fyrir fáeinum vikum yfir 4.000 millj­arða króna og munu vaxa veru­lega á næstu árum og ára­tugum. Um 75 pró­sent af þessum eignum er bundið í íslenskum fjár­fest­ingum með til­heyr­andi áhrifum á íslenskan markað, en innan við 25 pró­sentum, 972 millj­örðum króna var fjár­fest erlendis skv. tölum Seðla­bank­ans um eigna­stöðu líf­eyr­is­sjóð­anna í lok jan­úar.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár