Óviðunandi húsnæðisástand á Íslandi

Samkvæmt nýrri skýrslu Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins og Íbúða­lána­sjóðs er staða hús­næð­is­mark­að­ar­ins á Íslandi ólíð­andi. Miklar verð­sveiflur í hús­næð­is­mark­aði hér á landi hafa haft skað­leg áhrif á húsnæð­is­mark­að­inn og skapað óör­yggi.

Miklar verð­sveiflur í hús­næð­is­mark­aði hér á landi hafa haft skað­leg áhrif á húsnæð­is­mark­aði en þær orsakast aðal­lega af ann­ars vegar ytri efna­hags­að­stæðum og hins vegar sveiflum í upp­bygg­ingu húsnæðis, ásamt skorti stjórn­valda á yfirsýn og stefnumótun. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu og Íbúða­lána­sjóðs, í skýrsl­unni er greint frá stöðu hús­næð­is­mála hér á landi og þær áskor­arnir sem þar við blasa.

Þessar sveiflur bitna mest á lág­tekjufólki sem verja stærri hluta tekna sinna í húsnæð­isútgjöld en aðrir samfélagshópar. Mikill skortur er á hús­næði hér á landi, mikil fólks­fjölgun hefur átt sér stað und­an­farin tvö ár en á sama tima hefur fjöldi byggðra íbúða verið undir lang­tíma­með­al­lagi. Stór hópur fólks býr því við þröngan kost og óör­yggi í hús­næð­is­málum. Nú stendur yfir hús­næð­is­þing á Nordica hót­el­inu en þar hafa verið rædd staða og þróun hús­næð­is­mála í dag og meðal ann­ars þessi nýja skýrsla

Íbúðaverð hækkað meira en kaupmáttur

Lands­menn einkum þeir tekju­lægri þurfa að verja of háum hluta af tekjum sínum í hús­næði en sam­kvæmt nýrri könnun þurfa leigj­endur að greiða um 40 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í húsa­leigu. Kjarninn fjall­aði um í morgun erf­iða stöðu leigj­enda, en 92 pró­sent leigj­enda vilja ekki vera á leigu­mark­aði en hafa ekki tök á að kaupa sitt eigið hús­næði. Skortur á eigin fé og litlir raun­ hæfir möguleikar á að afla þess er helsti vandi margra leigj­enda í dag.

Mikil fólksfjölgun og skortur á húsnæði

Mikil fólks­fjölgun hefur átt sér stað hér á landi á síð­ustu árum en lands­mönnum fjölg­aði um 17.000 frá miðju ári 2016 og fram á mitt ár 2018. Þessi mikla fólks­fjölgun skýrist aðal­lega af aðflutn­ingi erlendra ríkis­borg­ara sem er drif­inn áfram af mik­illi eft­ir­spurn eftir vinnu­afli og háu launa­stigi hér á landi. Fólk hefur flutt hingað til lands í enn meira mæli en á árunum 2004–2007 og hefur það aukið þörf á hús­næði mikið. 

Við aðstæður sem þessar skap­ast mik­ill þrýstingur á húsnæð­is­mark­að­inn og sam­kvæmt skýrsl­unni er mikil þörf á að finna við­un­andi lausnir í húsnæð­ismálum sem hæfa fólki af erlendum upp­runa sem er í miklum mæli á leigu­mark­aði. Þeir sem flust hafa til lands­ins að und­anförnu virð­ast almennt ekki þekkja rétt sinn á húsnæð­is­mark­aði í nægi­legum mæli og nýta sér ekki nægi­lega vel þau úrræði sem standa þeim til boða, þar á meðal húsnæð­is­bætur. Mikill fjöldi þessa erlenda vinnu­afls er á leigu­mark­aði en ein­ungis 11% þeirra sem svöruðu á pólsku könnun félags­manna Flóa­banda­lags­ins fá húsnæð­is­bætur.

Aðrir þættir sem hafa áhrif á húsnæðismarkaðinn

Einn af þeim þáttum sem hefur haft ein­kenn­andi áhrif á íbúðamarkað í yfir­stand­andi upp­sveiflu er skammtímaleiga íbúða til ferða­manna. Hluti af þeirri starf­semi er í íbúðum sem eru eingöngu not­aðar til skammtímaleigu og í raun teknar út af hefð­bundnum húsnæð­is­mark­aði. Áætlað er að snemma á árinu hafi um 1.500 til 2.000 íbúðir og her­bergi verið í umfangs­mik­illi útleigu í gegnum vefsíðuna Airbnb og ekki í hefð­bund­inni nýtingu sem íbúðarhúsnæði. Til að setja þessar tölur í sam­hengi voru á árunum 2013 til 2017 sam­tals byggðar um 6.500 íbúðir hér á landi. Því má isegja að fyrir hverjar 3 til 4 íbúðir sem bætt­ust við fram­boð íbúða vegna nýbygg­inga á und­anförnum fimm árum hafi ein íbúð eða her­bergi horfið af mark­aðnum á móti vegna skammtímaleigu.

Breytt ald­urs­sam­setn­ing þjóðar­innar er annar lýðfræði­legur þáttur sem eykur eft­ir­spurn eftir íbúðum sam­kvæmt skýrsl­unni. Með­al­aldur þjóðar­innar fer hækk­andi og áætlað er að fram til ársins 2040 muni fólki eldra en sjötugt fjölga um 31 þúsund á meðan fjöldi þeirra sem eru 40 ára eða yngri breyt­ist lítið sem ekk­ert. Breytt ald­urs­sam­setn­ing þjóðar­innar hefur áhrif á eft­ir­spurn eftir húsnæði, ekki síst þar sem yfir­leitt eru færri ein­stak­lingar í heim­ili hjá eldra fólki en á heim­ilum yngri barna­fjölskyldna. Það þýðir að íbúðum þarf að fjölga meira en sem nemur fólks­fjölgun að því gefnu að fólk vilji vera á sama aldri þegar það flytur úr for­eldrahúsum, stofnar fjölskyldu og flytur loks á dval­ar­stofnun eða hjúkrun­ar­heim­ili og verið hefur hingað til.

Loksins nóg byggt af íbúðum, en ekki þær réttu

Sú staða sem uppi er á leigu­mark­aði end­ur­speglar ekki síst skort á leiguhúsnæði á viðráðan­legu verði fyrir leigj­endur. Félags­legum leiguhúsnæðum og öðrum ódýrum val­kostum á mark­aði hefur ekki fjölgað í takt við þörf á und­anförnum árum. Það hefur haft þau áhrif að lágtekjufólk á í mörgum til­fellum ekki í önnur hús að venda en almennan leigu­markað þar sem leigan er dýrari en í félags­lega hluta mark­að­ar­ins. Það er mat Íbúðalánasjóðs að miðað við núver­andi stöðu á leigu­mark­aði þurfi 5.000 til 7.000 almennar og félags­legar íbúðir til viðbótar við þær sem þegar hafa hlotið stofn­framlög frá sveit­ar­fé­lögum..

Að und­anförnu hefur fram­boð nýbygg­inga á almenn­ um íbúðamark­aði auk­ist víða um land. Á fyrstu sjö mánuðum yfir­stand­andi árs voru 14 pró­sent allra íbúða­við­skipta á almennum mark­aði vegna nýbygg­inga en til sam­an­burðar var þetta hlut­fall aðeins 3 pró­sent árið 2010 og 18 pró­sent við hápunkt síðustu upp­sveiflu árið 2007. Einna mest hefur upp­bygg­ingin verið í sveitar­félögum í nágrenni Reykjavíkur en svo dæmi sé tekið voru 56 pró­sent allra íbúðavið­skipta í Mos­fellsbæ á fyrri hluta ársins vegna nýbygg­inga.

Hins vegar hefur verið gagnrýnt að þær nýju íbúðir sem nú koma inn á mark­að­inn séu of dýrar til að henta tekju­ og eigna­minni hópum. Það er sann­ar­lega erfitt að finna ódýrar, nýjar íbúðir en aðeins um 5 pró­sent þeirra nýbyggðu íbúða sem auglýstar voru til sölu á fyrstu átta mánuðum ársins voru auglýstar á verði innan við 30 milljónir króna og aðeins um 2 pró­sent nýrra íbúða á verði innan við 25 milljónir króna.

Fjölgun húsnæðislausra og utangarðsfólks

Einn alvar­leg­asti vand­inn sem nefndur er í húsnæð­ismálum í skýrsl­unni er fjölgun húsnæð­is­lausna. Sam­kvæmt skýrslu frá vel­ferð­ar­sviði Reykjavíkur­borgar voru í fyrra sam­tals 349 manns skráðir utan­garðs og/ eða heim­il­is­lausir í borg­inni. Það eru 95 pró­sent fleiri en þegar sam­bæri­leg mæl­ing var síðast gerð árið 2012.

Utan­garðs­fólk sem glímir við áfengis og/eða vímu­efna­vanda kemur í raun ekki til greina við úthlutun almenns félag­legs leigu­hús­næðis sam­kvæmt umboðs­manni Alþingis. Reykjavíkur­borg hefur þó á sínum snærum gisti­skýli og sértæk hús­ næð­isúrræði fyrir utan­garðsfólk og af þeim 349 ein­stak­lingum sem voru skráðir utan­garðs voru 58 ein­stak­lingar sagðir búa í langtímabúsetuúrræðum eða 16 pró­sent hópsins.

Þótt Reykjavíkur­borg bjóði upp á slík úrræði í ein­hverjum mæli er það engu að síður nið­ur­staða umboðs­manns Alþingis að borgin tryggi utan­garðs­ fólki ekki lausn við bráðum húsnæð­is­vanda, úrræðin séu ekki nægj­an­leg. Heim­il­is­leysi er alvar­legt lýðheilsu­vandamál og í skýrsl­unni er til­greint að mikil­vægt að veit­endur húsnæðis og heil­brigð­is­þjónustu vinni saman að úrlausn þessa mála, þar sem öruggt húsnæði getur verið veiga­mik­ill þáttur í end­ur­komu fólks inn í samfélagið eftir veik­indi. Rúmur fjórðungur þeirra sem eru utan­garðs hér á landi var að ljúka við stofn­ana­vist.

Markmið stjórnvalda í húsnæðismálum

Í skýrsl­unni er fjallað um að á­byrgð stjórn­valda er rík þegar að kemur að því að tryggja íbúum öryggi og jafn­ræði á hús­næð­is­mark­aði. Stefnu­mót­un, umgjörð og mark­aðs­reglur í hús­næð­is­málum hafa mikil áhrif á lífs­kjör hér á landi. Stefnu­mótun stjórn­valda hefur þó ekki verið nógu skýr á síð­ustu árum en stefnu­mótun um fram­boð á mis­mun­andi búsetu­kostum og aðra þætti sem hafa áhrif á hús­næð­is­markað hefur mikil áhrif á þróun fram­boðs og eft­ir­spurnar á mark­aðn­um.

Fram kemur í skýrsl­unni að félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra er að hefja vinnu við þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um stefnu­mótun á sviði hús­næð­is­mála til næstu fjög­urra ára sem ætlað er að tryggja lands­mönnum öruggt hús­næð­i. Tillagan er unnin sam­kvæmt ný sam­þykktum breyt­ingum á lögum um hús­næð­is­mál. Við gerð til­lög­unnar verður m.a. haft til hlið­sjónar upp­lýs­ingar frá íbúa­lána­sjóð, hús­næð­is­á­ætlun sveit­ar­fé­laga og umræður á hús­næð­is­þing­i. ­Mark­mið stjórn­valda sem til­greind eru í skýrsl­unni er að tryggja jafn­vægi í þróun íbúða­verðs, stöðuga upp­bygg­ingu íbúða í sam­ræmi við þörf og stefnu­mótun til fram­tíðar á hús­næð­is­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár