Samfylkingin íhugar nafnabreytingu

Svo gæti farið að Sam­fylk­ingin fái nýtt nafn á flokks­þingi í októ­ber, sam­kvæmt Evu H. Bald­urs­dóttur, vara­borg­ar­full­trúa flokks­ins.

Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar
Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar

Uppi eru hug­myndir innan Sam­fylk­ingar um nýtt nafn á stjórn­mála­flokknum. Samkvæmt með­limi Sam­fylk­ing­ar­innar er fyr­ir­huguð nafna­breyt­ing hluti af end­ur­skipu­lagn­ingu flokks­ins eftir slæma nið­ur­stöðu síð­ustu kosn­inga.

Eva H. Bald­urs­dóttir, vara­borg­ar­full­trúi Sam­fylk­ing­ar­innar og lög­maður hjá Fjár­mála­ráðu­neyt­inu, bað um nýjar til­lögur að nafni stjórn­mála­flokks­ins á Facebook-síðu sinni í dag. Upp hafa komið nokkrar til­lögur á þræð­inum, þar á meðal Jafn­að­ar­manna­flokkur Íslands.

Í sam­tali við Kjarnann segir Eva nafna­breyt­ing­una vera hluti af end­ur­skipu­lagn­ingu flokks­ins eftir nið­ur­stöðu síð­ustu kosn­inga. Hug­leið­ingar um nafna­breyt­ingu hafi verið í gangi í nokkurn tíma, en til stendur að leggja fram til­lögu á næsta lands­þingi flokks­ins í októ­ber.

Sam­fylk­ingin fékk 5,7% atkvæða í síð­ustu Alþing­is­kosn­ingum í fyrra, sam­an­borið við 12,9% árið 2013 og 29,8% árið 2009. Í kjöl­far nið­ur­staðna kosn­ing­anna sagði Oddný G. Harð­ar­dóttir af sér sem for­maður flokks­ins og Logi Ein­ars­son tók við emb­ætt­inu.

Fylgi flokks­ins hefur auk­ist nokkuð eftir kosn­ingar, ef marka má skoð­ana­kann­anir und­an­farna mán­uði. Í síð­asta þjóð­ar­púlsi Gallup mæld­ist hann í 9,2% og í síð­ustu MMR-könnun mæld­ist hann í 10,6%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár