1.800 íbúðir í uppbyggingu í Reykjavík

Smíði á 922 íbúðum hófst í Reykja­vík í fyrra, sem er svip­aður fjöldi og árið á undan. 3.300 íbúðir þarf á næstu árum til að mæta eft­ir­spurn.

Smíði hófst á 922 nýjum íbúðum í Reykja­vík í fyrra, svip­aður fjöldi og árið 2015. Und­an­farin tvö ár eru 50% yfir með­al­tali fjölda íbúða sem hafin er smíði á, segir í nýrri árs­skýrslu bygg­ing­ar­full­trú­ans í Reykja­vík.

Í ljósi þess að bygg­ing­ar­tími nýrra íbúða er um tvö til þjrú ár má gera ráð fyrir því að full­gerðum íbúðum muni fjölga mikið á þessu ári og næstu tvö árin, að mati Reykja­vík­ur­borgar. Umhverfis- og skipu­lags­svið borg­ar­innar segir um 1.800 íbúðir í upp­bygg­ingu í dag. Samkvæmt því sem borgin greindi frá í lok síð­asta árs er áætlað að 3.300 íbúðir vanti til að mæta þörf á hús­næði í Reykja­vík.

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri sagði á upp­bygg­ing­ar­fundi í ráð­hús­inu í októ­ber síð­ast­liðnum að upp­bygg­ingin framundan í Reykja­vík end­ur­spegl­aði þörf­ina að miklu leyti, en að það þyrfti ein­fald­lega að byggja meira. „„Nú þegar eru 5.500 íbúðir í sam­þykktu deiliskipu­lagi, af þeim eru um 2.000 í upp­bygg­ingu. Um 4.000 íbúðir eru í deiliskipu­lags­ferli og um 8.000 í þróun þannig að við sjáum fram á að geta annað þeirri eft­ir­spurn innan fárra ára – enda sýna kann­anir það að flestir vilja búa í Reykja­vík.“

Merki um ofhitnun og markaður að þorna upp

Arion banki birti nýlega skýrslu sína um íbúða­mark­að­inn, þar sem fram kom að byggja þarf að minnsta kosti átta þús­und íbúðir á næstu þremur árum til þess að halda í við fólks­fjölgun og mæta þeirri eft­ir­spurn sem hefur safn­ast upp á und­an­förnum árum. Grein­ing­ar­deild bank­ans telur ólík­legt að það náist að byggja svo mikið.

p.p1 {margin: 0.0px 0.0px 20.0px 0.0px; font: 18.0px Times; -webkit-text-stroke: #000000} span.s1 {font-kern­ing: none}

Í skýrsl­unni kemur fram að hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi hækkað um 15 pró­sent á árinu 2016 og að sú hækkun hafi að mestu verið drifin áfram af hag­stæðu efna­hags­á­standi, fólks­fjölg­un, kaup­mátt­ar­aukn­ingu, góðu aðgengi að fjár­mögnun og því að of lítið hafi verið byggt af íbúðum á und­an­förnum árum. Grein­ing­ar­deildin spáir því að hús­næð­is­verð hækki um 14 pró­sent á árinu 2017, um 9,7 pró­sent árið 2018 og 7,5 pró­sent árið 2019. Gangi spáin eftir er útlit fyrir að hús­næð­is­verð hækki tals­vert umfram flestrar und­ir­liggj­andi hag­stærðir á borð við kaup­mátt ráð­stöf­un­ar­tekna. Þegar glitti í gul ljós á sumum svæðum þar sem verð hefur hækkað sér­stak­lega mikið og til lengri tíma varar grein­ing­ar­deildin í nið­ur­stöðum sínum við ofhitnun á mark­að­in­um.

Sigurður Jón Björns­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­stýr­ingar Íbúða­lána­sjóðs, fjall­aði einnig um þörf­ina fyrir nýtt hús­næði á nýlegum fundi sjóðs­ins. Þar sagði hann meðal ann­ars að það væru skýr merki um að fram­boð eigna á hús­næð­is­mark­aði væru við það að þorna upp. Eignir selj­ist nú oft á sýn­ing­ar­degi sem sé óeðli­legt ástand. Sig­urður sagði enn fremur að miðað við fjölda íbúða í land­inu, og að níu til tíu pró­sent þeirra skipti um hendur á ári og fjög­urra mán­aða veltu­hraða, þá ættu þrjú þús­und íbúðir að vera til sölu í dag. Talan sé hins vegar nær eitt þús­und. Þetta geti verið merki um ofhitun og Sig­urður sagði að almenn­ingur ætti að stíga var­lega til jarð­ar.

p.p1 {margin: 0.0px 0.0px 0.0px 0.0px; font: 18.0px Times; -webkit-text-stroke: #000000} span.s1 {font-kern­ing: none}

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár