Leigumarkaðurinn minnkaði um fimmtung eftir COVID

Fjöldi þeirra sem búa í leigu­hús­næði dróst saman um rúm 20 pró­sent eftir að heims­far­ald­ur­inn skall á. Samhliða því hefur hús­næð­is­ör­yggi auk­ist og fjár­hagur heim­il­anna batnað.

Mikinn mun má sjá á stærð leigu­mark­að­ar­ins hér á landi eftir að heims­far­ald­ur­inn hófst, en sam­kvæmt könn­unum Zenter og Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) hefur hann minnkað um fimmt­ung á síð­ustu mán­uðum, miðað við stærð hans á árunum 2017-2019.

Zenter og HMS hafa reglu­lega fram­kvæmt kann­anir um stöðu á leigu­mark­aði frá byrjun árs 2017. Þá sögð­ust um 18 pró­sent svar­enda búa í leigu­hús­næði, en ef litið er til áranna 2017, 2018 og 2019 svör­uðu að með­al­tali 16 pró­sent svar­enda þeirri spurn­ingu ját­andi.

Líkt og sjá má á mynd hér að neðan minnk­aði hins vegar hlut­fall þeirra sem búa í leigu­hús­næði hratt eftir að heims­far­ald­ur­inn hófst í mars í fyrra. Í apríl var það komið niður í 13 pró­sent og hefur það hlut­fall hald­ist nokkuð stöðugt í öllum könn­unum síðan þá. Ef nið­ur­stöður könn­un­ar­innar gefa rétta mynd af leigu­mark­aðnum þýðir þetta að hann hefur minnkað um fimmt­ung á þessum tíma.

Jákvæðari í garð leigumarkaðarins

Samkvæmt HMS hefur vísi­tala leigu­verðs lækkað hægt og rólega eftir að far­ald­ur­inn hófst. Í maí og júní hefur hins vegar orðið við­snún­ingur í þeirri þróun og er leigu­verðið byrjað aftur að hækka á ný. Það er þó enn 0,5 pró­sentum lægra en það var fyrir ári síðan.

Þrátt fyrir að færri búi nú í leigu­hús­næði virð­ast við­horf til leigu­mark­að­ar­ins hafa batnað á síð­ustu mán­uðum, en tölu­vert hærra hlut­fall svar­enda könn­un­ar­innar segja nú að mikið sé til af hent­ugu fram­boði af íbúð­ar­hús­næði til leigu en áður.

Sömu­leiðis hefur hlut­fall þeirra sem telja hag­stætt að leigja hækkað nokkuð, þrátt fyrir að það sé ennþá lágt. Í maí töldu 5,5 pró­sent svar­enda að leiga á íbúð­ar­hús­næði væri hag­stæð, á meðan 86,6 pró­sent þeirra töldu það vera óhag­stætt.

Betri fjárhagur og meira öryggi

Samhliða minnkun vinnu­mark­að­ar­ins hefur fjár­hagur svar­enda könn­unar Zenter og HMS einnig batnað tölu­vert. Í síð­ustu könnun, sem fram­kvæmd var í maí, svar­aði átti rúmur fjórð­ungur svar­enda erfitt með að ná endum saman, en sam­svar­andi hlut­fall var 35 pró­sent í apríl í fyrra og 37 pró­sent í apríl árið 2019.

Sömu­leiðis hefur hús­næð­is­ör­yggi svar­enda auk­ist, úr 85 pró­sentum árið 2019 og upp í 92 pró­sent í maí. Hlutfall þeirra sem telja sig ekki búa við hús­næð­is­ör­yggi á sama tíma hefur rúm­lega helm­ing­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár