Á þriðja tug flóttafólks frá Úkraínu þegar komið í umsjá sveitarfélaga

Öll mót­taka flótta­fólks frá Úkraínu hér­lendis miðar að því að það sé komið til þess að vera hér í lengri tíma. Aðgerð­ar­stjóri mót­tök­unnar segir ómögu­legt að segja til um hve mörgum verði tekið á móti og hversu lengi þau verði hér.

Á þriðja tug flótta­fólks frá Úkraínu sem var á vegum Útlend­inga­stofn­unar er þegar komið í svo­kallað milli­bilsúr­ræði á vegum sveit­ar­fé­laga, þaðan sem það fer svo í lang­tíma­úr­ræði á vegum við­eig­andi sveit­ar­fé­lags eða í hús­næði á almennum leigu­mark­aði. Útlend­inga­stofnun er með á sínum vegum 588 Úkra­ínu­menn sem sótt hafa um hæli hér­lendis vegna inn­rásar Rúss­lands í heima­land þeirra.

Gylfi Þór Þor­steins­son, aðgerð­ar­stjóri mót­töku flótta­fólks frá Úkraínu, segir ómögu­legt að segja til um hversu margir muni sækja hér um hæli vegna stríðs­ins. Þessa dag­ana sæki 20-30 manns um vernd frá Úkraínu á degi hverjum. Þá eigi eftir að koma í ljós hve margir sem komið hafi hingað á ferða­manna­visa til 90 daga endi á því að sækja hér um hæli. Hingað fljúgi 50 flug­vélar á viku frá Póllandi.

Þá sé einnig ómögu­legt að segja til um það hversu lengi flótta­fólkið muni halda hér til, en allt starf gangi þó út frá því að það verði hér til lengri tíma.

Alls höfðu 633 sótt um vernd frá Úkraínu í gær, fimmtu­dag, og eins og kom fram í máli Gylfa er stærstur hluti þeirra, eða 588, í úrræðum á vegum Útlend­inga­stofn­unar. Þar af dvelja um 100 á einni hæð Hótel Sögu og aðrir í öðrum úrræðum sem Útlend­inga­stofnun hefur á sínum vegum, en alls eru Útlend­inga­stofnun með 1.500 hæl­is­leit­endur í sinni þjón­ustu.

200 störf en færri börn

Kveðið hefur verið á um að með­ferð umsókna flótta­fólks frá Úkraínu fái hraðmeð­ferð og tekur hún nú nokkrar vikur, en von­ast er til þess að með opnun mót­t­töku­stöðvar í hús­næði Domus Medica verði úrvinnslu­tím­inn enn styttri. Rúmlega mán­uður er síðan fyrsta flótta­fólkið kom hingað frá Úkraínu og er, eins og áður segir, á þriðja tug þegar komið úr úrræðum Útlend­inga­stofn­unar og í milli­bils­á­standið sem Gylfi kallar „skjól“ í nokkrar vikur þar til þeim verður komið var­an­lega fyrir hjá sveit­ar­fé­lög­unum.

Sveit­ar­fé­lögin segir Gylfi spila afar stórt hlut­verk þegar kemur að mál­efnum flótta­fólks­ins, bæði hvað varðar hús­næði og skóla­göngu barna. Það hafi þó komið hans teymi á óvart hversu lít­ill hluti þeirra sem sótt hafi um hæli hér séu börn, eða ein­ungis 27%. Þar af eru, það sem af er, 56 á leik­skóla­aldri, 106 á grunn­skóla­aldri og 36 á fram­halds­skóla­aldri. Álagið á skóla­kerfið virð­ist því, að svö stöddu, ekki ætla að verða jafn mikið og búast hefði mátt við, að því gefnu að börnin dreif­ist á milli sveit­ar­fé­laga. Að sögn Gylfa hafa alls 26 sveit­ar­fé­lög sýnt því áhuga að taka á móti flótta­fólki frá Úkraínu.

Hvað full­orðna fólkið varðar hafi Vinnu­mála­stofnun aug­lýst eftir störfum fyrir flótta­fólkið og hafa yfir 200 störf boð­ist þar í gegn. „Við erum bjart­sýn á að atvinnu­rek­endur séu til í að leggja fólki lið. Það er mik­il­vægt að þetta fólk kom­ist inn í rútínu sem fyrst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár