Vaxtaverkir

Almennir vextir á Íslandi eru him­in­háir miðað við önnur Vest­ur­lönd og lík­ari því sem þekk­ist á eyjum í Karí­ba­haf­inu. Hver er ástæða þess og hvernig er hægt að breyta því?

Miklar breytingar, bæði innanlands og alþjóðlega, á allra næstu árum munu að öllum líkindum skila íslenskum neytendum betri fjármálaþjónustu og lægri vöxtum. Það er umhverfi sem börnin okkar ættu að geta búið við þegar þau komast á fullorðinsár.
Miklar breyt­ingar, bæði inn­an­lands og alþjóð­lega, á allra næstu árum munu að öllum lík­indum skila íslenskum neyt­endum betri fjár­mála­þjón­ustu og lægri vöxtum. Það er umhverfi sem börnin okkar ættu að geta búið við þegar þau kom­ast á full­orð­insár. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Vaxt­ar­stigið á Íslandi hefur verið áber­andi í umræðu stjórn­mála­manna úr öllum flokkum und­an­farin miss­eri. Allir virð­ast sam­mála um að lækka þurfi raun­vexti, en þeir eru langtum hærri hér á landi heldur en í öðrum löndum sem við berum okkur saman við. Ástæður hárra raun­vaxta eru fjöl­þættar og sumum þeirra verður erfitt að breyta. Hins vegar eru ýmsar vís­bend­ingar á lofti um að þeir muni lækka umtals­vert á næstu árum.

Stærsta velferðarmálið

Íslenska hag­kerfið hefur siglt nokkuð lygnan sjó und­an­farin ár með auknum hag­vexti og minnk­andi verð­bólgu. Samhliða bjart­ari horfum hefur póli­tísk umræða um efna­hags­mál á Íslandi einnig tekið nokkrum breyt­ingum og snýst nú í auknum mæli um háa vexti á íbúða­lánum, en lækkun þeirra hefur gjarnan verið nefnd „stærsta vel­ferð­ar­mál Íslend­inga“.

Þessa þróun mátti sér­stak­lega sjá í nýlið­inni kosn­inga­bar­áttu, en þar var lækkun vaxta í ein­hverri mynd á stefnu­skrá allra stjórn­mála­flokk­anna. Aðferðir flokk­anna við lækkun vaxta voru marg­vís­legar en sneru flestar að raun­vöxtum og hvernig mætti gera þá sam­bæri­lega því sem þekk­ist í nágranna­löndum okkar.

Ísland í Karíbahafinu

Vexti má líta á sem verð á fjár­mála­þjón­ustu, þ.e. hversu mikið við þurfum að borga til þess að geta tekið lán. Raun­vextir mæla sama hlut­inn en taka þó til­lit til almennrar verð­hækk­unar í fram­tíð­inni og eiga því að gefa betri mynd af kostn­að­inum af lán­töku.

Ef lítið er um fjár­magn eða mikið um lán­tökur í ákveðnu landi eru lánin þar verð­mæt­ari og vextir hærri. Þetta tvennt er dæmi­gert fyrir þró­un­ar­lönd sem standa í mik­illi upp­bygg­ingu og því eru vextir þar gjarnan hærri en í iðn­ríkjum. Þess vegna virð­ist sér­kenni­legt að almennir vextir hér­lendis, á skand­in­av­ískri eyju með öfl­ugt vel­ferð­ar­kerfi, séu him­in­háir miðað við Evrópu og Norður-Ameríku og lík­ari því sem þekk­ist á eyjum í Karí­ba­haf­inu.

Fjórar ástæður

Háir raun­vextir hafa fylgt Íslend­ingum í ára­bil og eru því langt frá því að vera nýtt vanda­mál. Margar ástæður liggja þar að baki, en eft­ir­far­andi fjórar eru lík­lega veiga­mestar: Óstöðugt fjár­málaum­hverfi, upp­söfnuð fjár­fest­inga­þörf, lágur með­al­aldur og óhag­kvæmni íslenskra banka.

Sveiflu­kennt hag­kerfi með gjald­eyr­is­höftum og fall­valta krónu hefur rýrt traust erlendra aðila og gert þeim erf­ið­ara fyrir að fjár­festa hér á landi. Þar af leið­andi er fjár­magns­flæði til Íslands veru­lega heft og minna um láns­fjár­magn en ann­ars hefði verið.

Innlend fjár­fest­ing hefur einnig setið á hak­anum árin eftir hrun, á sama tíma og spreng­ing í komu ferða­manna hefur sett sinn svip á hús­næð­is­mark­að­inn og inn­viði lands­ins. Nú er svo komið að veru­leg þörf er á upp­bygg­ingu nýrra íbúða og við­haldi inn­viða víða um land, sem eykur eft­ir­spurn eftir frek­ari fjár­magni.

Sömu­leiðis hefur lágur með­al­aldur þjóð­ar­innar stuðlað að háum vöxtum. Vegna hans eru hlut­falls­lega margir Íslend­ingar á aldr­inum 20-40 ára sem þurfa að skuld­setja sig, meðal ann­ars fyrir skóla­göngu og til íbúð­ar­kaupa. Þannig er eft­ir­spurn eftir slíkum lánum meiri hér en í öðrum Evr­ópu­löndum þar sem með­al­aldur er hærri.

Að lokum má svo nefna fákeppni á banka­mark­aði. Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki eru allir örlitlir í alþjóð­legu sam­hengi og hafa ekki þurft að standa í neinni sam­keppni erlendis frá. Þannig er hag­kvæmni í rekstri þeirra ábóta­vant, en lána­kjör bank­anna eru tölu­vert verri en hjá stærri evr­ópskum bönkum sem starfa í virku sam­keppn­isum­hverfi.

Spennandi tímar fram undan

Eins og sést ræðst hátt vaxt­ar­stig Íslands af fjöl­mörgum djúpum þáttum sem erfitt er að breyta skyndi­lega. Hins vegar ekki þar með sagt að það sé óbreyt­an­legt. Háir vextir í litlum ríkjum er ekk­ert nátt­úru­lög­mál, þvert á móti eru vís­bend­ingar á lofti um að þeir eigi eftir að lækka á Íslandi á næstu miss­erum.

Með losun gjald­eyr­is­hafta má vænta þess að erlendar fjár­fest­ingar taki að aukast hér­lendis og sömu­leiðis virð­ast flestir stjórn­mála­flokkar sam­mála um að ráð­ast eigi í fjár­fest­ingar í innviðum og upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis á næstu árum. Einnig er ljóst að hlut­fall ungs fólks á Íslandi muni lækka á næstu árum en það skilar sér að öllum lík­indum í minni eft­ir­spurn eftir íbúða- og náms­lánum, sé tekið til­lit til mann­fjölda.

Til við­bótar við mögu­legar auknar fjár­fest­ingar og minni lán­töku er lík­legt að banka­þjón­usta á Íslandi muni taka stakka­skiptum í náinni fram­tíð. Samkvæmt nýlegri úttekt Sopra Banking er mik­illi hag­ræð­ingu spáð í fjár­mála­fyr­ir­tækjum á heims­vísu og á Íslandi, en þar að auki þykir senni­legt að erlend stór­fyr­ir­tæki komi til með að bjóða lána­þjón­ustu sína á Íslandi. Hvort tveggja yrði til mik­illa hags­bóta fyrir íslenska neyt­endur og myndi skila sér í betri þjón­ustu auk lægri vaxta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár