Langtímavæntingar um verðbólgu enn óbreyttar

Mark­aðs­að­ilar búast nú við meiri verð­bólgu á yfir­stand­andi árs­fjórð­ungi en þeir gerðu áður. Vænt­ingar þeirra til verð­bólgu eftir tvö ár hafa hins vegar ekki breyst.

Þrátt fyrir verri skammtímahorfur búast markaðsaðilar enn við að verðbólgan verði 2,8 prósent eftir tvö ár.
Þrátt fyrir verri skamm­tíma­horfur búast mark­aðs­að­ilar enn við að verð­bólgan verði 2,8 pró­sent eftir tvö ár. Mynd: 123RF

Gert er ráð fyrir því að verð­bólgan nái hámarki á yfir­stand­andi árs­fjórð­ungi og lækki svo með stöð­ugum hætti á næsta ári. Vænt­ingar um verð­bólgu eftir tvö ár hafa hins vegar hald­ist óbreyttar það sem af er ári. Þetta kemur fram í vænt­inga­könnun mark­aðs­að­ila á verð­bólgu sem Seðla­bank­inn gaf út í morgun.

Samkvæmt könn­un­inni er búist við 4,6 pró­senta verð­bólgu að með­al­tali á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins. Þar telja mark­aðs­að­ilar alþjóð­lega verð­þróun vega þyngst inn, en margir þeirra telja einnig hátt fast­eigna­verð og veikt gengi krón­unnar munu eiga sinn þátt. Fáir telja þó að fram­boðs­hnökrar og hár flutn­ings­kostn­aður muni hafa mikil bein áhrif á verð­bólg­una hér­lendis.

Þetta eru hærri vænt­ingar en mark­aðs­að­il­arnir höfðu í síð­ustu vænt­inga­könnun sem gerð var í ágúst, en þá bjugg­ust þeir við að verð­bólgan á yfir­stand­andi árs­fjórð­ungi yrði komin niður fyrir 4 pró­sent.

Mark­aðs­að­ilar Seðla­bank­ans eru 29 tals­ins og telja banka, líf­eyr­is­sjóði, verð­bréfa- og fjár­fest­ing­ar­sjóði, verð­bréfa­miðl­ana og önnur fyr­ir­tæki með starfs­leyfi til eigna­stýr­ingar. Svör feng­ust frá 25 aðilum í könn­un­inni sem birt var í morgun.

Að með­al­tali töldu svar­endur könn­un­ar­innar að verð­bólgan yrði litlu minni í byrjun næsta árs, en að hún færi að minnka með stöð­ugum hætti út árið. Á síð­asta fjórð­ungi næsta árs er svo búist við að verð­bólgan verði komin niður í 3,1 pró­sent.

Aðspurðir hversu mikla þeir töldu verð­bólg­una vera eftir tvö ár töldu mark­aðs­að­il­arnir að hún myndi ná 2,8 pró­sentum. Þetta eru óbreyttar lang­tíma­vænt­ingar frá síð­ustu tveimur vænt­inga­könn­unum, en í byrjun árs var talið að verð­bólgan yrði 2,6 pró­sent eftir tvö ár.

Kjölfestan enn ekki farin

Kjarninn hefur áður fjallað um lang­tíma­verð­bólgu­vænt­ingar, en sam­kvæmt útreikn­ingum Agnars Tómasar Möllers, sjóðs­stjóra hjá Kviku eigna­stýr­ingu, hefur hún ekki enn hækkað fram úr öllu ráði, þrátt fyrir að verð­bólga hafi ekki mælst hærri í níu ár.

Við síð­ustu vaxta­á­kvörðun pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans sagði hún það vera áhyggju­efni að verð­bólgu­vænt­ingar virð­ast hafa tekið að hækka á ný. Of snemmt sé þó að segja til um hvort kjöl­festa þeirra við verð­bólgu­mark­mið sé að veikj­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verðbólga

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár