Heiðarlegra af Viðreisn að segja sig frá ríkisstjórnarsamstarfi

Lilja Alfreðs­dóttir, þing­maður Fram­sóknar, gagn­rýndi Jónu Sólveigu Elín­ar­dóttur, þing­mann Við­reisnar, í umræðum um Brexit á Alþingi í morgun. Hún sagði Jónu gera lítið úr stefnu utan­rík­is­ráð­herra og að Viðreisn hefði svikið kjós­endur.

Lilja Alfreðs­dóttir, vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, spurði Jónu Sólveigu Elín­ar­dóttur, þing­mann Við­reisnar, hvort ekki væri heið­ar­legt af Viðreisn að segja sig frá rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu. Þetta gerð­ist á Alþingi í morgun, í sér­stakri umræðu um Brexit, útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Jóna Sólveig, sem er for­maður utan­rík­is­mála­nefndar Alþingis, byrj­aði ræðu sína á því að þakka máls­hefj­and­anum Rósu Björk Brynj­ólfs­dóttur, þing­manni VG, fyrir umræð­una. „Ég er hrædd um að ef hún hefði beint spurn­ingum til mín hefði hún fengið dálítið önnur svör en þau sem hæst­virtur ráð­herra veitti henni, en það er kannski ekki að furða, enda erum við hæst­virtur ráð­herra ekki í sama flokki. Hæst­virtur ráð­herra er í flokki sem talar fyrir áfram­hald­andi auka­að­ild að Evr­ópu­sam­band­inu í gegnum EES en ég er í Viðreisn sem er galopin fyrir því að kanna og kynna síðan fyrir lands­mönnum þá kosti sem fylgja fullri aðild að ESB, og leyfa þjóð­inni síðan sjálfri að velja hvað hún vill gera í þeim efnum.“

Þetta þótti Lilju með „algjörum ólík­indum, að for­maður utan­rík­is­mála­nefndar komi hér í pontu og geri hrein­lega lítið úr stefnu utan­rík­is­ráð­herra þjóð­ar­innar hvað þennan mála­flokk varðar. Væri ekki miklu heið­ar­legra af Viðreisn að segja sig frá þessu rík­is­stjórn­ar­sam­starfi? Mér finnst þetta óboð­legt,“ sagði hún þegar hún kom í ræðu­stól Alþingis.

Jóna Sólveig kom aftur í ræðu­stól og sagði rétt að árétta að það skipti máli að ólíkum sjón­ar­miðum ólíkra flokka með ólíka sýn væri haldið á lofti í þing­sal. „Til þess erum við kjörin og aðeins þannig virkar lýð­ræðið. Að sjálf­sögðu virði ég hæstv. utan­rík­is­ráð­herra og utan­rík­is­stefnu lands­ins og hún er mjög vel sett fram í stjórn­ar­sátt­mála. En hún á ekki að hamla mál­frelsi og skoð­ana­frelsi þing­manna séu þær settar fram á mál­efna­legan hátt.“

Lilja sagði að sjálf­sögðu ríkja mál­frelsi og það ætti að skipt­ast á skoð­unum. Hins vegar kall­að­ist það á ein­faldri íslensku kosn­inga­svik, þegar flokkur hefði kynnt stefnu eins og vilj­ann til að ganga í Evr­ópu­sam­bandið en engin af þeim mark­miðum náist í rík­is­stjórn­ar­sam­starfi. Þingmenn Við­reisnar voru ósáttir við Lilju og köll­uðu fram í ræðu hennar. „Það er rosa­leg við­kvæmni hérna. Þingmenn Við­reisnar koma hingað og leyfa ekki við­kom­andi þing­manni að klára mál sitt. Það sýnir að maður snertir við ein­hverjum afskap­lega við­kvæmum bletti. Það er auð­vitað ekki nógu gott fyrir hátt­virta þing­menn Við­reisnar.“

Áhrifin á Ísland

Rósa Björk óskaði eftir umræð­unni um Brexit og áhrifin á Ísland í jan­úar síð­ast­liðnum, en umræðan átti sér stað í dag. Hún sagð­ist vilja vita hvað íslensk stjórn­völd hefðu gert til að leggja grunn að fram­tíð­ar­sam­skiptum við Breta, við hverja hafi verið talað innan bresku stjórn­sýsl­unnar og hvaða mál­efni íslensk stjórn­völd vilji leggja áherslu á ef stefnan sé sú að ná sér­samn­ingi við Bretland.

Rósa nefndi einnig það sem fram kemur í skýrslu Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra um utan­rík­is­stefnu Íslands að vænt­ingar gætu verið um enn betri aðgang að breskum mörk­uðum en áður.

„Þetta hefur mér þótt veru­leg bjart­sýni og því er illa svarað á hverju þessi mikla bjart­sýni er byggð. Því miður verð ég að segja að allt er varðar Brexit, sér­stak­lega í skýrslu ráð­herr­ans um utan­rík­is­mál, er almennt orðað og frekar loðið.“

Guð­laugur Þór ítrek­aði mik­il­vægi máls­ins en einnig það að Ísland ræður ekki hvernig við­skiln­aði Bret­lands við Evr­ópu­sam­bandið verður háttað. Þó væri hægt að hafa áhrif og „einmitt þess vegna hef ég síð­ustu mán­uði lagt allt kapp á að eiga við­ræður við þá aðila sem að þessum málum koma.“ Hann hafi rætt við utan­rík­is­mála­stjóra og Brexit-stjóra ESB, auk utan­rík­is­ráð­herra Þýska­lands og Bret­lands.

„Auðvitað blasa við marg­vís­leg úrlausn­ar­efni. Það er engum vafa und­ir­orpið að um er að ræða miklar áskor­anir í ákveðnum efnum en í þess­ari stöðu fel­ast líka tæki­færi. Þau verða ekki nýtt með því að sitja og bíða þess sem verða vill. Innan stjórn­sýsl­unnar hefur á síð­ustu mán­uðum verið unnið hörðum höndum að því að kort­leggja hags­muni okkar með til­liti til útgöngu Breta. Þótt enn sé til­tölu­lega skammt á veg komið í ferl­inu er lík­legt að nið­ur­staða samn­inga Breta og ESB verði frí­versl­un­ar­samn­ingur af nýrri kyn­slóð slíkra samn­inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

evrópumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár