Lykilmaður í Seðlabankanum braut trúnað um hrunhelgina

Sturla Pálsson, fram­kvæmda­stjóri mark­aðsvið­skipta og fjár­stýr­ingar hjá Seðla­banka Íslands, við­ur­kenndi að hafa brotið trúnað þegar hann upp­lýsti eig­in­konu sína, sem þá var lög­maður sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja, um aðgerðir bank­ans í aðdrag­anda setn­ingu neyð­ar­lag­anna. Þetta kemur fram í vitna­skýrslu sem tekin var af Sturlu af sér­stökum sak­sókn­ara árið 2012 og fjallað verður um í Kast­ljósi í kvöld.

Við skýrslu­tök­una var­aði Sturla sjálfur við því að inn­herjar gætu nýtt sér það hversu seint neyð­ar­lögin voru sett. Sturla, sem starfar enn í Seðla­bank­anum, upp­lýsti bank­ann ekki um fram­burð sinn hjá sér­stökum sak­sókn­ara fyrr en eftir að Kastljós spurð­ist fyrir um málið hjá honum. Frá þessu er greint á vef RÚV.

Þar segir að Í vitna­skýrsl­unni yfir sé meðal ann­ars fjallað meðal um aðkomu hans að sím­tali þeirra Geirs H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Davíðs Odds­sonar, þáver­andi for­manns banka­stjórnar Seðla­banka Íslands, þar sem ákveðið var að veita Kaupingi 500 miljón evra lán sama dag og neyð­ar­lögin voru sett.

Í vitna­skýrsl­unni segir:„Sturla kvað að Geir H. Haarde hefði átt að stöðva einum sól­ar­hring fyrr (Guð blessi Ísland ávarpið). Hann kvaðst hafa verið áhyggju­fullur yfir því að bank­arnir skyldu opn­aðir á mánu­deg­inum. Neyð­ar­lögin hefðu átt að koma sól­ar­hring fyrr. Reiknar með að í bönk­unum sé að finna hreyf­ingar sem áttu upp­runa sinn í því að menn töldu góðar líkur á því að þeir færu á haus­inn. Það hefði átt að sam­þykkja neyð­ar­lögin og „Blessa Ísland" á sunnu­dags­kvöldið."

Sagði að einn bankinn væri búinn að kasta inn handklæðinu

Neyð­ar­lögin voru sett 6. októ­ber, eftir lokun mark­aða. Í kjöl­far setn­ingar þeirra féllu alllir þrír stóru íslensku við­skipta­bank­arnir einn af öðrum. Helgina á undan hafði verið mik­ill atgangur í íslenska stjórn­kerf­inu vegna stöðu bank­anna og miklar umræður áttu sér stað milli stjórn­mála­manna, starfs­manna Seðla­banka Íslands, sér­fræð­inga og þeirra sem stýrðu fjár­mála­kerf­inu. Ströng þagn­ar­skylda hvíldi á þeim sem að málum komu hjá hinu opin­bera, þar á meðal Sturlu.

Í vitna­skýrsl­unni er efni sím­tals sem Sturla átti við eig­in­konu sína tveimur dögum fyrir setn­ingu neyð­ar­laga rakið. Samkvæmt frá­sögn RÚV er efni sím­tals­ins svona: „Á bls 1 kemur fram að hugs­an­legt sé að einum banka verði bjargað. Á bls 3 kemur að SÞÁ (Sigurjón Þ. Árnason banka­stjóri Lands­bank­ans) sé hættur að hringja og hann sé búinn að kasta inn hand­klæð­inu, hann sé búinn að gef­ast upp. Einnig kemur fram að það séu bara Kaup­þings­menn núna Lands­bank­inn sé far­inn og ECB (Evrópski Seðla­bank­inn) muni trig­gera það."

Ekki kannað sérstaklega af hálfu Seðlabankans

Eig­in­kona Sturlu var á þessum tíma lög­fræð­ingur Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja, hags­muna­sam­taka allra banka og spari­sjóða á Íslandi, sem hvort tveggja Lands­bank­inn og Kaupþing áttu aðild að.

Sturlu var kynnt efni sím­tals­ins við skýrslu­tök­una hjá sér­stökum sak­sókn­ara. Í vitna­skýrsl­unni segir: „Sturla kvaðst nátt­úru­lega vera að brjóta trúnað með því að ræða þetta við kon­una sína.“

Í svari Seðla­banka Íslands við fyr­ir­spurn Kast­ljóss vegna máls­ins segir að Sturla hafi grein Má Guð­munds­syni seðla­banka­stjóra frá umræddu sím­tali í lok síð­ustu viku. „Það hefur ekki verið kannað sér­stak­lega af hálfu Seðla­bank­ans.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagshrun

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Þegar fjöl­mið­ill velur að sitja á upp­lýs­ingum

Sá maka­lausi atburður átti sér stað í dag að Morg­un­blaðið birti afrit af sím­tali milli Geirs H. Haarde, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Davíðs Odds­sonar, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóra, frá 6. októ­ber 2008. Í sím­tal­inu ræddu þeir um að veita Kaup­þingi, stærsta banka lands­ins, nán­ast allan aðgengi­legan gjald­eyr­is­forða þjóð­ar­innar, 500 millj­ónir evra, til að gefa bank­anum tæki­færi til að reyna að bjarga sér fyrir...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár