Blikur á lofti vegna indverska afbrigðis veirunnar

Ind­verskt afbrigði veirunnar sem er drif­kraft­ur­inn í þeirri skæðu bylgju sem gengur yfir landið, hefur greinst í yfir fjöru­tíu löndum. Vís­bend­ingar eru um að það sé meira smit­andi en önnur og geti valdið alvar­legri veik­indum. Margt er þó enn á huldu.

COVID-veikur maður fær súrefni á sjúkrahúsi í Delí. Súrefni er af mjög skornum skammti sem hefur valdið mörgum dauðsföllum.
COVID-veikur maður fær súr­efni á sjúkra­húsi í Delí. Súrefni er af mjög skornum skammti sem hefur valdið mörgum dauðs­föllum. Mynd: EPA

Vís­bend­ingar eru um að eitt afbrigði kór­ónu­veirunnar sem fyrst upp­götv­að­ist á Indlandi sé meira smit­andi og hafi betri hæfni til að kom­ast hjá ónæm­is­vörnum lík­am­ans en önnur. Rann­sóknir á dýrum benda einnig til að það gæti valdið alvar­legri veik­indum en afbrigði sem hingað til hafa þekkst. Fleiri við­vör­un­ar­bjöllur hafa kviknað varð­andi aðra þætti. Vís­inda­menn leita nú svara við því hvort þetta afbrigði sé drif­kraftur hinnar gríð­ar­stóru ann­arrar bylgju far­ald­urs­ins á Indlandi og hvaða hætta stafi þá mögu­lega af því á alheims­vísu.

Fleiri afbrigði veirunnar á Indlandi hafa einnig vakið athygli vís­inda­manna en eitt þeirra virð­ist nú hafa lang­mesta útbreiðslu.

[adspot]

Sú bylgja far­ald­urs­ins sem nú gengur yfir Indland er sér­lega skæð. Daglega eru að grein­ast hund­ruð þús­unda nýrra smita, 400 þús­und á mánu­dag svo dæmi sé tekið, og í heild eru stað­fest smit yfir 23 millj­ónir. Þetta hefur þegar haft alvar­legar afleið­ingar utan landamæra Indlands, m.a. í nágranna­rík­inu Nepal og nú í Bangla­dess, einu fátæk­asta ríki ver­aldar.

Hið nýja afbrigði sem vís­inda­menn hafa augun sér­stak­lega á hefur fengið skamm­stöf­un­ina B.1.617 og hefur þegar dreifst til um það bil fjöru­tíu landa, m.a. nágranna­ríkj­anna fyrr­nefndu Bret­lands og Singapúr. Það greind­ist fyrst um helg­ina í Bangla­dess. Upp­lýs­ingar um far­ald­ur­inn þaðan eru hins vegar af mjög skornum skammti. Bólu­setn­ing er stutt á veg komin og í lægð sem virð­ist vera í far­aldr­inum í mars og apríl gekk tæki­færið til að bólu­setja marga stjórn­völdum úr greipum því það stólar á bólu­efni frá Indlandi. Ind­verjar bönn­uðu hins vegar útflutn­ing á því tíma­bundið á meðan þeir eru sjálfir að glíma við hina risa­vöxnu öldu smita sem þar gengur nú yfir.

Í Bangla­dess búa um 160 millj­ónir manna og oft í miklu nábýli. Stjórn­völd eru sögð vera að reyna að finna aðrar leiðir til að afla bólu­efnis, því þau eiga ekki von á neinu frá Indlandi að minnsta kosti út júní­mánuð. Helst hafa þau horft til Kína og Rúss­lands í þeim efnum. Landa­mærin milli Bangla­dess og Indlands eru lokuð fyrir ferða­lögum fólks. Hins vegar fara um þau dag­lega miklir vöru­flutn­ingar og þannig hefur veiran átt greiða leið yfir þau. Úti­vistar- og ferða­bönn eru í gildi en nú þegar ein stærsta trú­ar­há­tíð múslima, Eid al-Fitr er að hefj­ast mun fólk streyma úr borg­unum, m.a. höf­uð­borg­inni Dakka, til smá­þorpa um allt land. Mikil bylgja COVID-19 gæti því auð­veld­lega verið í upp­sigl­ingu.

Fyrir hálfum mán­uði voru mörg afbrigði kór­ónu­veirunnar að grein­ast á Indlandi, m.a. hið breska afbrigði, B.1.1.7. Það var á þessum tíma hvað útbreidd­ast í Delí á meðan önnur og ný afbrigði voru að breið­ast út í öðrum hlutum lands­ins. Nú er staðan orðin allt önnur á ekki lengri tíma og B.1.617 hefur farið eins og flóð­bylgja um nær allt landið og hlut­falls­lega að valda flestum smitum. Þetta gæti, að mati far­alds­fræð­inga, þýtt að það sé mun meira smit­andi en önnur.

Í byrjun vik­unnar ákvað Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin svo að setja afbrigðið B.1.617 á lista yfir þau sem fylgj­ast þurfi sér­stak­lega með. Það er aðeins gert þegar grun­semdir hafa vaknað um að þau hagi sér öðru­vísi en önnur, m.a. séu meira smit­andi, valdi alvar­legri veik­indum og hafi aukna hæfni til að kom­ast í gegnum ónæm­is­varnir lík­am­ans.

[links]Kór­ónu­veiran er stöðugt að stökk­breyt­ast. Hún breyt­ist í hvert skipti sem hún fjölgar sér og í hvert skipti sem hún fer úr einum lík­ama yfir í annan. Þannig eru þegar komin fram afbrigði sem eru und­ir­af­brigði þess ind­verska – afbrigði sem hafa fengið skamm­stöfun á borð við B.1.617.2. Slíkt afbrigði er einmitt komið á var­úð­ar­lista í Bret­landi þar sem smitum af völdum þess fjölg­aði um meira en 100 pró­sent á einni viku.

Í grein Nature um þau afbrigði sem helst vekja áhyggjur er einnig minnt á hið suð­ur­a­fríska sem upp­götv­að­ist á síð­asta ári. Vís­bend­ingar eru t.d. uppi um að bólu­efni AstraZeneca veiti minni vörn gegn því en öðrum afbrigðum. Sú rann­sókn varð til þess að stjórn­völd í Suður-Afríku ákváðu að hætta að nota það bólu­efni, að minnsta kosti tíma­bundið. Annað þekkt afbrigði sem sér­stak­lega er fylgst með er P.1 en það upp­götv­að­ist fyrst í Brasilíu og er það sem greind­ist helst í annarri bylgju far­ald­urs­ins þar sem hófst í byrjun árs og sér ekki enn fyrir end­ann á.

Svo skammt er síðan ind­verska afbrigðið (B.1.1617) fór að dreifa sér að rann­sóknir á því eru enn skammt á veg komnar. Hins vegar þykja sterkar vís­bend­ingar um, miðað við hversu hratt það hefur breiðst út og hversu hratt það hefur náð að ýta öðrum afbrigðum úr vegi, að það sé meira smit­andi en önnur.

Afbrigðið upp­götv­að­ist þegar í októ­ber á síð­asta ári en í aðeins örfáum sýnum. Í jan­úar var farið að bera meira á því og í febr­úar var það orðið ríkj­andi í sýnum sem tekin voru í stærstu hér­uðum Indlands. Þróunin varð hröð í fram­hald­inu. Við frek­ari rann­sóknir á veiru­af­brigð­inu hefur svo komið í ljós að það hafi átta stökk­breyt­ingar í gadda­próteini sínu sem geri veir­urnar hæf­ari til þess að kom­ast inn í frumur manns­lík­am­ans. Þá hafa nýj­ustu rann­sóknir, sem fram­kvæmdar voru á rann­sókn­ar­stofu í Þýska­landi sýnt að afbrigðið á auð­veld­ara með en önnur að kom­ast inn í líf­færi fólks sem og lungna­frumur.

En óvissan er þó enn mikil þar sem þýsku rann­sókn­irnar eru fram­kvæmdar á frumum á rann­sókn­ar­stofu en ekki í raun­heimum. Það verður að sögn vís­inda­mann­anna sem fram­kvæmdu rann­sókn­ina að taka til greina þegar dregnar eru álykt­anir. Við rann­sóknir á öðrum dýrum en mann­skepn­unni hafa einnig komið fram vís­bend­ingar um að ind­verska afbrigðið kunni að valda alvar­legri veik­indum en önnur. Enn og aftur setja vís­inda­menn fyr­ir­vara á að draga of miklar álykt­anir út frá þeim nið­ur­stöðum á þessu stigi máls­ins. Í fjórða lagi er svo mögu­legt að mótefni virki lítið eitt verr á þetta afbrigði. Við þá rann­sókn, sem var smá í sniðum, var blóð úr níu manns sem fengið höfðu fyrri bólu­setn­ingu af Pfizer-bólu­efn­inu sýkt með hættu­lausri veiru sem hafði þó að geyma hin stökk­breyttu gadda­prótein ind­verska afbrigð­is­ins. Nið­ur­staðan var sú að mótefnin, sem lík­am­inn fram­leiðir við bólu­setn­ingu, veittu 80 pró­sent minni vörn gegn nokkrum þeirra und­ir­af­brigða af ind­verska afbrigð­inu sem greinst hafa. Í annarri rann­sókn sömu vís­inda­manna kom í ljós að nokkrir heil­brigð­is­starfs­menn sem fengið höfðu bólu­efnið Covishield (ind­versku útgáf­una af AstraZeneca) sýkt­ust af COVID-19, flestir með ind­verska afbrigð­inu. Dæmi eru svo einnig um að fólk sem hafði fengið COVID-19 áður og myndað mótefni sýkt­ist aftur og þá af þessu til­tekna afbrigði.

[adspot]

Síðustu daga hafa um og yfir 4.000 dauðs­föll vegna COVID-19 verið stað­fest dag­lega á Indlandi. Stjórn­völd hafa ekki viljað boða alls­herjar lokun með til­heyr­andi útgöngu­banni og ferða­banni líkt og gert var í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins síð­asta vor. Heil­brigð­is­kerfið er komið langt yfir öll þol­mörk og ljóst að mörg dauðs­fall­anna megi rekja til þess. Súr­efn­is­skortur er enn ríkj­andi og heil­brigð­is­starfs­fólk bugað af álagi.

Nokkur ríki lands­ins hafa tekið sjálf­stæða ákvörðun um lok­anir. Á lands­vísu er slíkt þó ekki í gildi. Sér­fræð­ingar telja að til að alls­herjar lokun bíti þurfi hún að vara í að minnsta kosti 10-15 daga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár