Húsnæðisstuðningur við þá sem þurfa síst á honum að halda

Ríkari helm­ingur þjóð­ar­innar á 99 pró­sent af því eigin fé sem bundið er í fast­eignum. Stórt hlut­fall vaxta­bóta fara til efna­meiri helm­ings­ins. Íbúða­lána­sjóður hvetur til þess að hús­næð­is­stuðn­ingi verði breytt þannig að hann lendi hjá þeim sem þurfi.

Sá helm­ingur þjóð­anna sem er efna­meiri á nán­ast allt eigið fé lands­manna í fast­eignum. Alls var eigið fé þjóð­ar­innar í hús­næði 2.574 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Þar af áttu 50 pró­sent efna­meiri hluti þjóð­ar­innar 2.548 millj­arða króna af því eigin fé, eða 99 pró­sent. Það þýðir að fátæk­ari hluti þjóð­ar­innar á ein­ungis eitt pró­sent af því eigin fé sem orðið hefur til í hús­næð­is­eignum. Þetta kemur fram í tölu Hagstofu Íslands.

Þessi helm­ingur fær einnig 90 pró­sent allra vaxta­bóta sem greiddar eru út árlega. Það þýðir að nán­ast allur stuðn­ingur sem íslenska ríkið veitir hús­næð­is­eig­endum fer til þeirra sem eiga mestu eign­irnar, ekki þeirra sem þurfa mest á stuðn­ingi að halda.

Eigið fé flesta bundið í húsnæði

Alls á efna­meiri helm­ingur þjóð­ar­innar 3.519 millj­arða króna í eigið fé alls. Fátækari helm­ingur þjóð­ar­innar er sam­an­lagt með nei­kvætt eigið fé.

Þorri eig­in­fjár flestra Íslend­inga er bund­inn í hús­næði. Alls áttu þeir 3.343,3 millj­arða króna í eigið fé um síð­ustu ára­mót, og þar af var 77 pró­sent eigið fé í fast­eign. Það er í raun ein­ungis efna­mestu tíu pró­sent lands­manna sem á umtals­verðar eignir umfram fast­eignir. Sá hópur, sem telur rúm­lega 20 þús­und fjöl­skyldur, átti 2.062 millj­arða króna í lok árs 2016, eða 62 pró­sent af öllu eigin fé í land­inu. Eigin fé hans jókst um 185 millj­arða króna á síð­asta ári á meðan að eigið fé allra hinna jókst um 209 millj­arða króna. að þýðir að tæp­lega helm­ingur þeirrar hreinu eignar sem varð til á síð­asta ári fór til tíu pró­sent efna­mestu fram­telj­end­anna.

Virði eigna þessa hóps er reyndar van­met­inn. Þessi hópur á nefni­lega nær öll verð­bréf lands­ins, eða 86 pró­sent slíkra. Í tölum Hag­stof­unnar er þær fjár­mála­legu eignir sem telj­ast til hluta­bréf í inn­lendum og erlendum hluta­fé­lögum á nafn­virði, eign­ar­skatts­frjáls verð­bréf, stofn­sjóðs­eign og önnur verð­bréf og kröfur. Og í töl­unum eru þau metin á nafn­verði, ekki mark­aðsvirði, sem er mun hærra.

Hluti þessa hóps fær greiddar vaxta­bætur frá íslenska rík­inu.

30 þúsund færri fjölskyldur fá vaxtabætur

Á síð­ustu árum hefur mikil hækkun hús­næð­is­verðs skilað því að eigið fé í fast­eignum hefur vaxið ört. Frá því í des­em­ber 2010 hefur hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að mynda hækkað um 94 pró­sent. Hækk­unin hefur verið drifin áfram af skorti á fram­boði, sem hefur verið miklu minna en eft­ir­spurn. Sam­hliða hafa efna­hags­að­stæður batnað og kaup­máttur auk­ist og geta íbúa til að kaupa sér hús­næði þar af leið­andi meiri.

Aukið eigið fé í fast­eignum nýt­ist flestum fyrst og fremst til þess að borga inn á aðra eign, ætli þeir sér áfram að hafa þak yfir höf­uðið. Það skilur ekki mikið eftir milli hand­anna. Und­an­tekn­ing­arnar eru fyrst og fremst þeir hús­næð­is­eig­endur sem flytj­ast erlendis og kaupa aftur á mark­aði sem hefur ekki hækkað jafn mikið og sá íslenski, þeir sem kaupa sér hús­næði á þeim land­svæðum inn­an­lands sem hafa ekki hækkað jafn mikið eða þeir sem erfa hús­næði og selja.

Almennar vaxta­bætur vegna vaxta­gjalda af lánum til kaupa á íbúð­ar­hús­næði, sem ein­stak­lingar greiddu af á árinu 2016, námu 4,3 millj­örðum króna. Þær lækk­uðu um 16,8 pró­sent á milli ára. Alls fengu 26.107 þiggj­endur vaxta­bætur á síð­asta ári, eða 12,1 pró­sent færri en árið áður. Vaxta­bætur hafa sam­tals lækkað um 7,7 millj­arða króna síðan árið 2010 og þeim fjöl­skyldum sem fá þær hefur fækkað um rúm­lega 30 þús­und á saman tíma.

Á sama tíma og sífellt færri fá vaxta­bætur vegna íbúð­ar­hús­næðis þá hafa fast­eigna­gjöld, sem sveit­ar­fé­lög leggja á, hækkað um 50 pró­sent vegna gríð­ar­legra hækk­ana á hús­næð­is­verði. Sam­an­dregið hafa því bóta­greiðslur til hús­næð­is­eig­enda hríð­lækkað og skattar á hús­næð­is­eig­endur hækkað umtals­vert vegna bættra efna­hags­að­stæðna og gríð­ar­legrar hækk­unar á hús­næð­is­verði.

Borgar sig ekki að greiða niður húsnæðisskuldir

Í nýrri úttekt Íbúða­lána­sjóðs, sem kynnt var í gær, kom fram að efna­meiri helm­ingur ein­stak­linga á Íslandi fær nán­ast allar vaxta­bætur sem ríkið greiðir út árlega til slíkra. Árið 2015 fór til að mynda 90 pró­sent slíkra til þeirra sem til­heyra efna­meiri helm­ings þjóð­ar­innar, eða um 4,1 millj­arð króna. Átta pró­sent vaxta­bóta fóru til ein­stæð­inga sem til­heyra rík­ustu tíund­inni.

Í úttekt­inni kom einnig fram að 70 pró­sent vaxta­bóta fari til fólks sem sé eldri en 36 ára. Því eru vaxta­bætur ekki að hjálpa fyrstu kaup­endum að koma þaki yfir höf­uðið og nýt­ast síst efna­minnstu ein­stak­ling­unum á hús­næð­is­mark­aði.

Í úttekt Íbúða­lána­sjóðs segir að´úttektin sýni að ýmsir nei­kvæðir hvatar séu inn­byggðir í vaxta­bóta­kerfið. Þá þurfi að bæta. „Til dæmis getur það í sumum til­fellum haft nei­kvæð nettó­á­hrif að greiða inn á hús­næð­is­lán. Þó að lækkun höf­uð­stóls leiði vissu­lega til lægri vaxta­greiðslna þá dugir það ekki alltaf upp á móti skerð­ingum sem fólk verður um leið fyrir á fjár­hæð vaxta­bóta.“

Þá sé vaxta­bóta­kerfið sett þannig upp að hvati til eigna­mynd­unar sé nei­kvæður. Vegna eigna­skerð­ingar geti það valdið nettó tekju­tapi að greiða inn á íbúða­lán þrátt fyrir að vaxta­greiðslur sparist.

Í úttekt Íbúða­lána­sjóðs segir að á hinum Norð­ur­lönd­unum tíðk­ist líka beinar greiðslur til fólks á fast­eigna­mark­aði en að þar sé stuðn­ing­ur­inn sér­tæk­ari. „Borið saman við Ísland er hlut­fall heim­ila sem fá beinan hús­næð­is­stuðn­ing frá rík­inu mun lægra í Noregi og í Svíþjóð og nokkru lægri í Danmörku.“

Íbúða­lána­sjóður beinir því til stjórn­valda að huga að breyt­ingum á fyr­ir­komu­lagi vaxta­bóta. „Breyta mætti fyr­ir­komu­lagi stuðn­ings­ins með því að beina honum að hluta eða í heild í form start­lána. Slík lán gætu gagn­ast betur við að ná því mark­miði vaxta­bóta að hjálpa lands­mönnum að afla sér íbúð­ar­hús­næðis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár