Mótmæli Mót­mæl­endur söfn­uð­ust saman í apríl eftir að for­sæt­is­ráð­herra, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, varð upp­vís að því að leyna hags­munum sínum í gegnum aflands­fé­lag. Þrátt fyrir að 18 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins hafi strikað yfir nafn hans breytti það engu. Mynd: Pressphotos

Umdeildir þingmenn útstrikaðir án afleiðinga

Kjósendur nýttu sér réttinn til að strika yfir nöfn fram­bjóðenda, en það hafði engin áhrif. Ný stjórnar­skrá hefði innleitt persónu­kjör.

Þótt dæmi sé um að hátt í fimmti hver kjósandi hafi strikað yfir nafn oddvita í nýyfirstöðnum alþingis­kosningunum hefur það engin áhrif. 

Reglur um útstrikanir eru flóknar í núverandi kosninga­kerfi og þarf mismargar útstrikanir til að lækka fram­bjóðanda um sæti, eftir því í hvaða listasæti hann er og hversu margir fram­bjóðendur ná inn á þing af listanum.

Í drögum að nýrri stjórnar­skrá, sem var samþykkt í þjóðar­atkvæða­greiðslu í október 2012, er kveðið á um aukið vægi kjósenda í uppröðun á lista, með svokölluðu persónu­kjöri. Þannig gætu kjósendur valið sér fram­bjóðendur af mismun­andi listum, í stað þess að einskorða sig við einn stjórn­málaflokk óbreyttan: „Kjósandi velur með persónu­kjöri fram­bjóðendur af listum í sínu kjördæmi eða af lands­listum, eða hvort tveggja. Honum er og heimilt að merkja í stað þess við einn kjördæmis­lista eða einn lands­lista, og hefur hann þá valið alla fram­bjóðendur listans jafnt.“

Svo vill til að 9 af þeim 12 sem flestar útstrikanir fengu í liðnum alþingis­kosningum eru andvígir innleiðingu nýrrar stjórnar­skrár. Þá er ekki á dagskrá stjórnar­skrár­nefndar Alþingis, sem hefur unnið með afmarkaðar breytinga­tillögur á núverandi stjórnar­skrá, að innleiða persónu­kjör.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fékk langflestar útstrikanir, eða tæplega 18%, en 20% hefðu þurft að strika út Sigmund Davíð til að færa hann niður um sæti á listanum. Ef Sigmundur hefði einn náð kjöri fyrir flokkinn í kjör­dæminu hefðu útstrikanir þurft að vera 25%, samkvæmt flóknu útstrikana­kerfi.

1. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

Framsóknar­flokki

Norðaustur­kjördæmi

Útstrikanir: 17,99%, 817 talsins

Sigmundur Davíð hafði sagt af sér sem forsætis­ráðherra og var felldur sem formaður Framsóknar­flokksins í kjölfar Wintris-málsins svokallaða, þar sem leki úr panamísku lögmann­stofunni Mossack Fonseca leiddi í ljós að Sigmundur hafði átt leynilegt aflandsfélag ásamt eiginkonu sinni, sem hafði kröfur upp á hálfan milljarð króna gagnvart þrotabúum Lands­bankans. Samkvæmt siða­reglum ráðherra, sem forsætis­ráðherra á að fram­fylgja, ber að greina frá hagsmuna­árekstrum sem þessum opinber­lega. Þrátt fyrir metfjölda útstrikana lýsti Sigmundur því yfir að hann hefði fengið 19% fylgi ef hann hefði leitt Framsóknar­flokkinn frekar en Sigurður Ingi Jóhannsson, en flokkurinn fékk 11,5% á landsvísu og missti 13% og 11 þingmenn frá síðustu kosningum.

2. Gunnar Bragi Sveinsson

Framsóknar­flokki

Norðvestur­kjördæmi

Útstrikanir: 10,65%, 371 talsins

Gunnar Bragi Sveinsson byrjaði ráðherra­feril sinn í utan­ríkis­ráðuneytinu með látum þegar hann boðaði, þvert á kosninga­loforð sjálfstæðis­manna og Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar, formanns Framsóknar­flokksins, að hann myndi slíta viðræðum við Evrópu­sambandið án þess að þjóðar­atkvæða­greiðsla yrði haldin um málið. Gunnar Bragi hefur einnig vakið athygli þegar hann flutti strand­veiðikvóta í eigið kjördæmi, þegar hann gagnrýndi val á ritstjóra staðreynda­vaktar Vísinda­vefsins, þegar hann veitti kunningja sínum úr Skaga­firði þrjár milljónir króna í styrk af skúffufé utan­ríkis­ráðuneytisins til að gera heimildar­mynd og þegar hann lagði niður Þróunar­samvinnu­stofnun og færði verkefni hennar undir ráðuneytið, svo eitthvað sé nefnt.

 3. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Viðreisn

Útstrikanir: 8,21%, 563 talsins

Suðvestur­kjördæmi

Þorgerður Katrín sneri aftur í stjórnmál eftir að hafa verið ráðherra fyrir Sjálfstæðis­flokkinn og vara­formaður flokksins þegar banka­hrunið varð. Þorgerður bauð sig óvænt fram fyrir Viðreisn, eftir að hafa verið í viðræðum við Bjarna Benediktsson um framboð fyrir Sjálfstæðis­flokkinn. Þorgerður missti trúverðug­leika eftir banka­hrunið þegar í ljós kom að eigin­maður hennar hafði fengið lán upp á 1,7 milljarða króna, meðal annars kúlulán til kaupa á hluta­bréfum í Kaupþingi, þar sem hann starfaði. Þorgerður lét ekki í ljós þessa miklu einka­hagsmuni. Á sama tíma og hún hafði gríðar­lega hagsmuni tengda íslensku bönkunum varði hún banka­kerfið opinber­lega og var meðal annars sitjandi forsætis­ráðherra þegar hún sagði Richard Thomas, gagn­rýnanda ríkis­stjórnarinnar og banka­kerfisins, eiga að sækja sér endur­menntun og sakaði hann um annarlega hagsmuni. Þá hafði hún sjálf hins vegar persónu­lega hagsmuni sem hún greindi engum frá, sem hefði brotið alvarlega gegn siða­reglum ráðherra ef þær hefðu þá verið innleiddar.

4. Eygló Harðardóttir

Framsóknar­flokki

Útstrikanir: 4,35%, 172 talsins

Suðvestur­kjördæmi

Sem ráðherra félags- og húsnæðis­mála hefur fallið á borð Eyglóar Harðar­dóttur að útfæra sum stærstu kosninga­loforð Framsóknar­flokksins, meðal annars afnám verð­tryggingar og endur­bætur á húsnæðis­lánakerfinu. Eygló vakti athygli þegar hún neitaði að samþykkja ríkis­fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar. Illa hefur gengið að leysa húsnæðis­vanda ungs fólks og vakti Eygló athygli þegar hún hvatti ungmenni til að búa einfald­lega lengur hjá foreldrum sínum. Reikni­villa Eyglóar vakti einnig mikla athygli. Eftir fund með helstu hagsmuna­aðilum á húsnæðis­markaði hélt hún því fram að ef 10 til 15 aðilar sem kæmu að húsbyggingu myndu allir lækka kostnað sinn um 1% myndi saman­lagður sparnaður vera 10 til 15%. Þetta er hugsana­villa, því hlut­fallið myndi ná jafnt yfir alla og saman­lagður sparnaður verða 1%.

5. Steingrímur J. Sigfússon

Vinstri grænir

Útstrikanir: 3,41%, 155 talsins

NorðvesturkjördæmiEftir að hafa leitt gríðar­lega óvinsæla vinstri stjórn með Jóhönnu Sigurðar­dóttur er Stein­grímur J. einn umdeildasti stjórn­málamaður landsins. Meðal óvinsælla ákvarðana hans er að sækja um aðild að Evrópu­sambandinu, eftir að hafa neitað fyrir kosningarnar 2013 að það myndi gerast, að bjarga Spari­sjóði Kefla­víkur með 25 milljarða króna kostnaði fyrir ríkið og að skipa pólitískan samherja, Svavar Gestsson, yfir samninga­nefnd Icesave. 

 

6. Birgitta Jónsdóttir

Pírötum

Reykjavík norður

Útstrikanir: 2,98%, 198 talsins

Birgitta Jóns­dóttir er fyrirferðar­mesti Píratinn. Deilur innan Pírata fyrr á árinu snerust að hluta um persónu hennar. Kosninga­loforð um stytt kjör­tímabil, sem hún knúði í gegn, hefur verið umdeilt, en Píratar féllu fljótlega frá því. Birgitta hefur meðal annars beðið Skagfirðinga afsökunar fyrir ummæli sín um mafíu þar. Frammistaða hennar í kosninga­þætti RÚV daginn fyrir kosningar var einnig umdeild, þar sem hún sýndi óhefðbundna hegðun, greip fram í, gantaðist og veifaði spjaldi.

7. Björn Valur Gíslason

Vinstri grænum, Norðausturkjördæmi, 2,8%, 127

Björn Valur hefur oft vakið athygli fyrir stórar yfir­lýsingar. Hann var þingmaður í vinstri stjórninni og studdi sem slíkur Icesave-samkomu­lagið. Þá er dæmi um að vandræði hans í viðskiptum hafi komið niður á öðrum fyrir þingmanns­feril hans.

8. Ásmundur Friðriksson

Sjálfstæðisflokki, Suðurkjördæmi, 1,97%, 168

Ásmundur, sem er vara­formaður Oddfellow á Íslandi, hefur varað við múslimum og lagt til að þeir verði rann­sakaðir sérstak­lega út frá því hvort þeir séu hryðju­verkamenn. Þá hefur hann verið í forystu fyrir gagnrýni á útgjöld til hjálpar flótta­mönnum.

9. Guðlaugur Þór Þórðarson

Sjálfstæðisflokki, Reykjavík norður, 1,89%, 161

Guðlaugur Þór missti trúverðug­leika eftir styrkja­málið svokallaða. Árin 2009 og 2010 kom í ljós að hann hafði átt milli­göngu um að útvega 30 milljóna króna styrk frá FL Group og 25 milljóna styrk frá Lands­bankanum til Sjálfstæðis­flokksins árið 2006 án þess að þeir væru gefnir upp. Um svipað leyti var unnið að tilfærslu orku­auðlinda til einka­fyrir­tækisins Reykjavík Energy Invest. Guðlaugur sjálfur var styrkja­kóngur meðal stjórn­málamanna og þáði 25 milljónir króna frá Baugi, FL Group, Fons og fleiri fyrir­tækjum. Hann féll niður um sæti vegna útstrikana í kosningunum árið 2009.

10. Bjarni Benediktsson

Sjálfstæðisflokki, Suðvesturkjördæmi, 1,52%, 274

Bjarni hefur sem formaður Sjálfstæðis­flokksins og þátt­takandi í viðskiptum verið viðloðandi fjölda umdeildra mála. Hann lofaði þjóðar­atkvæða­greiðslu um ESB-málið, en stóð ekki við það. Þá er honum kennt um að ættingjar hans hafi fengið að kaupa Borgun af ríkis­bankanum Lands­bankanum, sem heyrir undir hann, og hagnast þannig verulega. Fjölmargt fleira í viðskipta­fortíð Bjarna, eins og Vafnings­málið og milljarða­afskriftir félaga sem hann tengdist, hefur vakið tortryggni. Þá kom í ljós, eftir Panama­lekann, að Bjarni hafði átt 40 milljónir króna í aflandsfélagi, þrátt fyrir að hafa áður sagt að hann hefði ekki átt félag á aflands­svæðum.

11. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir

Sjálfstæðisflokki, Reykjavík norður, 1,44%, 123

Áslaug, sem er 25 ára, hefur risið hratt í stjórn­málum eftir að hún varð fyrir aðkasti opinber­lega í kjölfar stuðnings síns við frumvarp um sölu áfengis í verslunum, þar sem hún sagðist treysta því að Sjálfstæðis­flokkurinn gerði fólki kleift að kaupa hvítvín með humrinum hvenær sem er. Áslaug sagði síðan í skila­boðum til barna fyrir kosningar að þau ættu að vera minna í skólanum, því heimurinn væru „fullur af peningum“. 

12. Ólöf Nordal

Sjálfstæðisflokki, Reykjavík suður, 1,24%, 111

Ólöf hefur verið í eldlínunni vegna brott­flutnings hælis­leitenda. Þá var hún í Panama­skjölunum. Þar kom í ljós að hún hafði prókúru fyrir aflandsfélag eigin­manns síns. Hún segir félagið samt hafa verið sér óviðkomandi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2016

Mest lesið undanfarið ár