Bandarískum ferðamönnum fækkar mest

Banda­ríkja­menn þykja verð­mætir ferða­menn þar sem þeir eyða hlut­falls­lega miklu þrátt fyrir að stoppa stutt. Þeim hefur þó fækkað veru­lega frá falli WOW air og voru brott­farir Banda­ríkja­manna frá land­inu 36 pró­sent færri í ágúst en í fyrra.

Banda­ríkja­menn voru fjöl­menn­astir allra ferða­manna í ágúst síð­ast­liðnum eða 24,9 pró­sent brott­fara. Þeim fækk­aði hins vegar mest allra þjóð­erna á milli ára eða um alls 35,6 pró­sent milli ára. Í grein­ingu Arion banka á stöðu ferða­þjón­ust­unnar kemur fram að Banda­ríkja­menn séu verð­mætir ferða­menn þar sem þeir eyða hlut­falls­lega miklu þrátt fyrir að dvelja stutt en þeim hefur fækkað veru­lega í kjöl­far falls WOW air.

Rúmlega þriðjungi færri Bandaríkjamenn en í fyrra

Brott­förum Banda­ríkja­manna fækk­aði um 35,5 pró­sent í síð­asta mán­uði á milli ára eða tæp­lega 35 þús­und færri brott­farir en í fyrra, sam­kvæmt taln­ingu Ferða­mála­stofu og Isavia.

Ef tíma­bilið jan­úar til ágúst er skoðað þá hefur brott­förum banda­ríska ferða­manna fækkað um 30,4 pró­sent á milli ára eða alls 147 þús­und færri brott­ferðir Banda­ríkja­manna en á sama tíma­bili í fyrra.

Samkvæmt grófum útreikn­ingum Arion banka þá flutti WOW air um 40 pró­sent þeirra ferða­manna sem sóttu landið heim á síð­asta ári frá Norður-Ameríku. Mikil fækkun í komum þeirra síðan í mars kemur þar af leið­andi ekki á óvart.[adspot]

Neysluhegðun bandarískra ferðamanna breyst

Í nýrri ferða­þjón­ustu­út­tekt Arion banka kemur fram að Banda­ríkja­menn sem komu með WOW air á síð­asta ári dvöldu ívið skemur en aðrir, gistu oftar í íbúðum og á hostelum og eyddu heldur lægri fjár­hæðum en þeir sem komu með öðrum flug­fé­lögum. Samkvæmt Arion banka eru þeir þó verð­mætir þar sem þeir eyða hlut­falls­lega miklu þrátt fyrir að dvelja stutt.

Frá falli WOW air í mars hafa tveir af hverjum þremur ferða­mönnum komið til lands­ins með Icelandair en þegar WOW air var sem stærst var hlut­deild Icelandair komin niður í um 40 til 50 pró­sent.

Samkvæmt úttekt Arion banka hefur á síð­ustu miss­erum orðið breyt­ing í far­þega­sam­setn­ingu Icelandair sem hefur meðal ann­ars orðið til þess neyslu­hegðun þeirra banda­rísku ferða­manna sem koma til lands­ins hefur tekið stakka­skiptum.

Þeir dvelja nú mun lengur á land­inu og þá sér­stak­lega á hót­elum, auk þess sem þeir eyða tölu­vert meiri pen­ingum. Frá apríl til júní eyddu Banda­ríkja­menn langstærstum hluti af heild­ar­út­gjöldum erlendra ferða­manna eða alls 28,9 pró­sent og voru útgjalda­hæsta þjóðin. Alls eyddu banda­rískir ferða­menn 24.618 millj­ónum á þessu tíma­bili.

Nýtt flugfélag mun skipta sköpum

[links]Grunnspá Arion banka um ferða­þjón­ust­una hér á landi á næsta ári gerir ráð fyrir að ferða­mönnum muni fjölga um 2 pró­sent á árinu 2020. Þeir telja að kyrr­setn­ing MAX flug­vél­anna muni draga þann dilk á eftir sér að umsvif Icelandair verða svipuð á næsta ári og á þessu en félagið hafði ætlað sér að hafa fjórtán Boeing 737 Max vélar í rekstri sum­arið 2020. Þeir telja að þróun ferða­manna­straums­ins til lands­ins muni ráð­ast að miklu leyti af því hvort að stofnað verði nýtt íslenskt milli­landa­flug­fé­lag.

Þann 6.sept­em­ber síð­ast­lið­inn til­kynnti hin banda­ríska Michele Roos­evelt Edwards, stærsti hlut­hafi USA­er­ospace Associ­ates LLC, að WOW air muni hefja lág­far­gjalda­flug­rekstur til Banda­ríkj­anna og Evr­ópu í næsta mán­uði. USAa­er­ospace Associ­ates LLC hefur samið um kaup á eignum úr þrota­búi WOW air og sam­kvæmt Edwards er fyrsta flugið áformað milli Dul­les flug­vallar í Was­hington í Banda­ríkj­unum og Kefla­vík­ur­flug­vallar í októ­ber.

Í grein­ingu Arion banka segir að ef taki WOW air 2.0 til starfa gera áætl­anir for­svars­manna félags­ins ráð fyrir að stærð félags­ins árið 2020 verði sam­bæri­leg stærð WOW air árið 2014. Árið 2014 var WOW air með fjórar vélar í rekstri þar sem það flutti um hálfa milljón far­þega í leiða­kerfi sínu. 

Fjöldi banda­rískra ferða­manna sem koma hingað til lands­ins á næsta ári mun því að miklu leyti ráð­ast af því hvort að flug­fé­lag tekst hér á loft.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár