Hyggjast krefja Boeing um 17 milljarða í bætur

Gengi hluta­bréfa í Icelandair lækk­aði í morgun eftir fréttir gær­kvölds­ins um tap félags­ins. Það hyggst krefja Boeing um bætur vegna tjóns af kyrr­setn­ingu MAX-8-vél­anna.

Icelandair hyggst krefja Boeing um 17 millj­arða króna í bætur vegna tjóns af kyrr­setn­ingu MAX-8-vél­anna en for­stjór­inn áætlar að vél­arnar verði teknar aftur í notkun í nóv­em­ber. RÚV greinir frá.

Bogi Nils Bogason for­stjóri Icelandair fór yfir stöð­una á kynn­ing­ar­fundi á Hótel Natura í morgun og sagði að mark­mið Icelandair væri að fá allt tjónið bætt hjá Boeing.

Gengi hluta­bréfa í Icelandair lækk­aði um 9 pró­sent í 89 millj­óna króna við­skiptum í morgun, sam­kvæmt RÚV. Kjarninn greindi frá því í gær að alls hefði Icelandair Group tapað 89,4 millj­ónum dölum, eða um ell­efu millj­örðum króna, á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2019. Heild­ar­tekjur félags­ins juk­ust frá sama tíma­bili í fyrra og Icelandair flutti 39 pró­sent fleiri far­þega á öðrum árs­fjórð­ungi en á sama fjórð­ungi árið áður.

Eig­in­fjár­hlut­fall félags­ins lækkar úr 25 pró­sent i 28 pró­sent frá ára­mótum þrátt fyrir að hluta­fjár­aukn­ing upp á um 5,6 millj­arða króna hafi átti sér stað á tíma­bil­inu. Þetta mál lesa út úr hálfs­árs­upp­gjöri Icelandair Group sem birt var í kvöld.

Þar kemur fram að ástæðan fyrir slöku upp­gjöri sé kyrr­setn­ing MAX-véla félags­ins en þær hafa ekki flogið frá 12. mars síð­ast­liðnum. Alls eru áhrif kyrr­setn­ing­ar­innar meti á 45,7 millj­ónir dala, eða um 6,1 millj­arða króna.

Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands er haft eftir Boga Nils Bogasyni, for­stjóra Icelandair, að stefnt hafi verið að því að MAX-vél­arnar myndu sam­svara 27 pró­sent af sæta­fram­boði félags­ins á árinu 2019. „Því er sú staða sem komin er upp vegna kyrr­setn­ingar MAX vél­anna for­dæma­laus og hefur veru­leg áhrif á rekstur og afkomu félags­ins. Í þessum aðstæðum höfum við lagt höf­uð­á­herslu á að lág­marka tjón félags­ins og áhrif kyrr­setn­ing­ar­innar á far­þega og íslenska ferða­þjón­ustu með því að bæta leigu­vélum við flota félags­ins í sumar. Þá hefur það verið for­gangs­verk­efni hjá okkur að tryggja flug­fram­boð til og frá Íslandi og þannig hefur far­þegum Icelandair til Íslands fjölgað um 39 pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi sam­an­borið við sama tíma­bil í fyrra. Þrátt fyrir þessar mót­væg­is­að­gerðir, sem hafa komið í veg fyrir stór­felldar nið­ur­fell­ingar á flugi, hefur orðið tals­verð röskun á flug­á­ætlun okkar og starf­sem­inni allri. Þetta hefur haft áhrif á far­þega okkar og valdið flóknum úrlausn­ar­efnum innan félags­ins. Starfs­fólk Icelandair á mikið hrós skilið fyrir frammi­stöðu sína við mjög erf­iðar aðstæður á háanna­tíma þar sem allir hafa lagst á eitt að leysa eins far­sæl­lega úr málum og mögu­legt er.“

Í apríl keypti banda­ríski sjóð­ur­inn PAR Capital Mana­gement 11,5 pró­sent hlut í Icelandair í kjöl­far hluta­fjár­aukn­ingar. Þá und­ir­rit­aði félagið kaup­samn­ing vegna sölu á Icelandair Hotels og tengdum fast­eignum í júlí. Bogi segir að hvort tveggja styrki stöðu Icelandair Group og sé mik­il­væg stað­fest­ing á góðum lang­tíma­horfum félags­ins og fram­tíð­ar­tæki­færum í íslenskri ferða­þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár