Kröfu um ó­gildingu starfs­leyfis Arnar­lax endanlega vísað frá

Lands­réttur stað­festi nið­ur­stöðu Héraðs­dóms Reykja­víkur og vísar frá kröfum veiði­rétta­hafa í Haf­fjarðar­á. Veiði­réttar­haf­arnir höfðu kraf­ist þess að starfs- og rekstrar­leyfi Arnar­lax í Arnar­firði yrði ó­gilt.

Lands­réttur hefur stað­fest nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur og vísað frá kröfum fyr­ir­tækj­anna Akurholt og Geit­eyrar, sem eru veiði­rétt­ar­hafar í Haf­fjarð­ará, á hendur Arn­ar­laxi, Mat­væla­stofnun og Umhverf­is­stofnun. Veiðiréttar­haf­arnir höfðu kraf­ist þess að starfs- og rekstr­ar­leyfi Arnarlax í Arn­ar­firði yrði ógilt. Nið­ur­staða Lands­réttar er end­an­leg nið­ur­staða dóm­stóla, sam­kvæmt Kristínu Edwald hæstaréttarlögmanni sem flutti málið fyrir hönd Arnarlax.

Veiðiréttarhafarnir hafi ekki orðið fyrir tjóni af starfsemi Arnarlax

Hér­aðs­dóm­ur Reykja­vík­ur féllst, þann 18. jan­úar síð­ast­lið­inn, á kröf­ur Arn­ar­lax, Mat­væla­stofn­un­ar og Um­hverf­is­stofn­un­ar og vís­aði frá kröf­um fyr­ir­tækj­anna Ak­ur­holts og Geit­eyr­ar. Í niður­stöðu Hér­aðs­dóms kom fram að kröf­ur veiði­rétt­ar­haf­anna mið­uðu að því að fá dóm sem legði bann við að lax­eldi í sjó­kví­um væri stundað á Íslandi. Vísaði dóm­ur­inn til þess að lög­gjaf­inn og stjórn­völd hefðu um ára­tuga­skeið tekið með í reikn­ing­inn áhrif fisk­eld­is á nátt­úru­lega laxa­stofna í veiðiám á Íslandi, við ákv­arð­ana­töku um hvort og á hvern hátt og í hversu mikl­um mæli fisk­eldi skyldi heim­ilað. Í dóm­inu kom einnig fram að stað­bundin áhrif starf­semi Arnarlax nái ekki til þess haf­svæðið þar sem Haf­fjarð­ará rennur til sjávar og er því nið­ur­staða dóms­ins sú að veiði­rétt­ar­haf­arnir hafi ekki orðið fyrir tjóni vegna starf­sem­innar. Veiði­rétt­ar­haf­arn­ir kærðu um­rædda niður­stöðu Hér­aðs­dóms til Lands­rétt­ar.

Arnarlax sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu í dag þar sem greint er frá nið­ur­stöðu Lands­réttar. Í til­kynn­ing­unni segir að nið­ur­staða Lands­réttar byggir á því að veiði­rétt­ar­haf­arnir sem kröfð­ust ógild­ingar leyfa Arnarlax hefðu ekki lögvarða hags­muni af að fá dóm umkröfur sínar. „Nið­ur­staða íslenskra dómstóla er því sú að veiðiréttar­haf­arnir hafi ekki orðið fyrir tjóni af starf­semi Arnarlax og að þeir hafi ekki sýnt fram á að starf­semin skap­aði hags­munum þeirra sérstaka hættu,“ segir Kristín Edwald hæsta­rétt­ar­lög­maður sem flutti málið fyrir hönd Arnar Lax.[adspot]

Jafn­framt segir í til­kynn­ing­unni að til viðbótar því að hafa þurft að greiða sinn eigin lögmanns­kostnað þurfa veiðiréttar­haf­arnir einnig að greiða málskostnað Arnarlax, Mat­væla­stofn­unar og Umhverf­is­stofn­unar, bæði fyrir héraðsdómi og Landsrétti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár