Persónuafsláttur hækkaður, tryggingagjald lækkað og barnabætur auknar

Fjár­laga­frum­varpið gerir ráð fyrir að rík­is­sjóður verði rek­inn með 29 millj­arða afgangi á næsta ári. Tekjur hans aukast um 52 millj­arða en gjöld um 55 millj­arða á árinu.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kynnir frumvarp til fjárlaga 2019.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra kynnir frum­varp til fjár­laga 2019. Mynd: Bára Huld Beck

Afgangur af rekstri rík­is­sjóðs verður 29 millj­arðar króna á næsta ári sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur sem verið er að kynna. Alls er gert ráð fyrir því að tekjur rík­is­sjóðs auk­ist um 52 millj­arða króna milli ára en útgjöld um 55 millj­arða króna.

Á meðal þeirra breyt­inga sem boð­aðar eru í frum­varp­inu eru hækkun á per­sónu­af­slætti um eitt pró­sentu­stig umfram lög­bundna 12 mán­aða hækkun vísi­tölu og að hækkun þrepa­marka efra skatt­þreps verði miðuð við vísi­tölu neyslu­verðs. Í til­kynn­ingu segir að við þetta verði jafn­ræði milli ólíkra tekju­hópa gagn­vart skatt­kerf­inu meira og skatt­greiðslur almenn­ings lækka um 1,7 millj­arða króna.

Þá á að hækka barna­bætur um 1,6 millj­arða króna frá gild­andi fjár­lögum sem er 16 pró­sent hækkun milli ára. Auk þess er gert ráð fyrir nýju þrepi skerð­ingar á á barna­bótum sem er ætlað að tryggja að hækk­unin skili sér fyrst og fremst til lág­tekju- og lægri milli­tekju­hópa. Vaxta­bætur verða einnig hækk­aðar um 13 pró­sent frá áætlun um umfang þeirra á þessu ári.

Trygg­inga­gjaldið verður lækkað í byrjun næsta árs um 0,25 pró­sent og aftur um sömu pró­sentu­tölu í árs­byrjun 2020. Sam­an­lagt munu þessi tvö lækk­un­ar­skref skila 9,3 pró­sent lækkun á gjald­inu.

Stuðningur vegna húsnæðis verður samtals 25,4 milljarðar

Stuðn­ingur vegna hús­næðis á að aukast um 900 millj­ónir króna á næsta ári og verður þá 25,4 millj­arðar króna alls. Sá stuðn­ingur er veittur eftir nokkrum leiðum, til dæmis í formi hús­næð­is­bóta, með stofn­fram­lagi til bygg­ingar almennra íbúða og útgreiðslu vaxta­bóta.

Framlög til heil­brigð­is­mála verða aukin um 12,6 millj­arða króna á árinu 2019 en þar vega þyngst fram­kvæmdir við nýjan Lands­spít­ala. Alls er áætlað að 7,2 millj­arðar króna fari í þær á árinu. Þá stendur til að auka fram­lög til félags-, hús­næðis- og trygg­inga­mála um 13,3 millj­arða króna.

Fjár­fest­ingar í innviðum verða aukna meðal ann­ars með 5,5 millj­arða króna aukn­ingu til sam­göngu­mála vegna tíma­bund­ins átaks í sam­göngu­málum á árunum 2019-2021 sem fjár­magnað verður með tíma­bundnum umfram­arð­greiðslum fjár­mála­fyr­ir­tækja líkt og boðað var í gild­andi fjár­mála­áætlun. Gert er ráð fyrir að fram­lög til sam­göngu- og fjar­skipta­mála verði aukin um níu pró­sent á árinu 2019 en fram­lög til mála­flokks­ins verða ríf­lega 43,6 millj­arðar króna.

Vaxtagjöld ríkissjóðs hafa lækkað um 26 milljarða

Skuldir rík­is­sjóðs hafa lækkað hratt síð­ustu ár. Á sex ára tíma­bili hafa þær lækkað um sam­tals 658 millj­arða króna. Þar skiptir mestu greiðslur frá slita­búum föllnu bank­anna vegna stöð­ug­leika­samn­ing­anna sem und­ir­rit­aðir voru árið 2015. Þegar skuld­irnar voru sem mestar, árið 2011, voru þær 86 pró­sent af lands­fram­leiðslu en verða 31 pró­sent í lok árs 2018. „Frá miðju ári 2017 til miðs árs 2018 lækk­uðu skuldir rík­is­sjóðs um 88 ma.kr. en það sam­svarar því að skuldir hafi lækkað um 10 millj­ónir á klukku­stund.“ segir í til­kynn­ing­unni.

Skuldir rík­is­sjóðs munu fara undir við­mið fjár­mála­reglna laga um opin­ber fjár­mál í fyrsta sinn á næsta ári og útlit er fyrir að vaxta­gjöld verði um 26 millj­örðum krónum lægri á næsta ári en þau voru árið 2011.

Í til­kynn­ing­unni segir að lokum: „Auk þess sem skuldir rík­is­sjóðs hafa verið lækk­aðar hafa háar fjár­hæðir verið greiddar inn á líf­eyr­is­skuld­bind­ingar, en þessar aðgerðir auka sjálf­bærni rík­is­fjár­mál­anna til langs tíma litið og koma í veg fyrir að núlif­andi kyn­slóðir taki út lífs­kjör á kostnað þeirra sem á eftir koma. Áformuð stofnun Þjóð­ar­sjóðs með laga­setn­ingu á þessu þingi, sem ætlað er að safna upp arði af orku­auð­lindum, getur stutt við þessa stefnu um sjálf­bærni opin­berra fjár­mála.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár