Lögreglan segir enga tilraun hafa verið gerða til að leyna því sem var á upptökum

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir að fyrstu upp­lýs­ingar hennar sem feng­ust á vett­vangi í Ásmund­ar­sal á Þor­láks­messu, þar sem ráð­herra var á meðal geasta, hafi verið á þann veg að um einka­sam­kvæmi væri að ræða.

Halla Bergþóra Björnsdóttir er lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins.
Halla Bergþóra Björns­dóttir er lög­reglu­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Mynd: Skjáskot/RÚV

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir enga til­raun hafa verið gerða til að leyna því sem fram kom á upp­tökum úr búk­mynda­vélum lög­reglu­manna sem komu á vett­vang í Ásmund­ar­sal á Þor­láks­messu. Eft­ir­lits­nefnd með störfum lög­reglu hafi fengið tæm­andi end­ur­rit af sam­ræðum lög­reglu­manna á vett­vangi fylgdi með til nefnd­ar­innar strax í upp­hafi skoð­unar hennar á mál­inu og þegar hún hafi beðið um nýtt ein­tak af upp­töku úr búmynda­vélum hafi rétt ein­tak verið sent til nefnd­ar­innar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni sem send var út í til­efni af frétta­flutn­ingi af nið­ur­stöðu nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu (NEL) varð­andi starfs­hætti lög­reglu.

RÚV greindi frá því í gær að NEL telji að hátt­semi þeirra veggja lög­reglu­þjóna sem fóru í Ásmund­ar­sal á Þor­láks­messu geti telist ámæl­is­verð og til­efni sé til að senda þann þátt til með­ferðar lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Á búk­mynda­vél eins þeirra heyr­ist hann segja: „Hvernig yrði frétta­til­kynn­ingin....40 manna einka­sam­kvæmi og þjóð­þekktir ein­stak­lingar..., er það of mikið?“

Málið á rætur sínar að rekja til þess að lög­reglan greindi frá því í upp­lýs­inga­pósti úr dag­bók lög­reglu að morgni aðfanga­dags 2020 að lög­regla hefði verið kölluð til klukkan 22:25 á Þor­láks­messu vegna sam­kvæmis í sal í útleigu í miðbæ Reykja­vík. Í póst­inum stóð að veit­inga­rekstur í salnum væri í flokki sem ætti að vera lok­aður á þessum tíma vegna sótt­varn­ar­reglna. „Í ljós kom að á milli 40-50 gestir voru sam­an­komin í salnum, þar á meðal einn hátt­virtur ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands. Töluverð ölvun var í sam­kvæm­inu og voru flestir gest­anna með áfengi við hönd. Lög­reglu­menn veittu athygli að eng­inn gest­anna var með and­lits­grímur fyrir and­liti. Lög­reglu­menn sögðu að nán­ast hvergi voru fjar­lægð­ar­tak­mörk virt. Lög­reglu­menn sáu aðeins 3 spritt­brúsa í salnum. Lög­reglu­menn ræddu við ábyrgð­ar­menn skemmt­un­ar­innar og þeim kynnt að skýrsla yrði rituð. Þá var gestum vísað út. Þegar að gestir gengu út voru flestir búnir að setja upp and­lits­grímu. Gest­irnir kvödd­ust margir með faðm­lögum og ein­hverjir með kossum. Einn gest­anna var ósáttur með afskipti lög­reglu og líkti okkur við nas­ista.“

[adspot]Um tíu­leytið á aðfanga­dags­morgun fóru að birt­ast fréttir, á Vísi og vef Frétta­blaðsins, um að ráð­herr­ann í sam­kvæm­inu hefði verið Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Fyrstu upplýsingar að þetta væri einkasamkvæmi

Aðstand­endur Ásmund­ar­salar, Aðal­heiður Magn­ús­dóttir og Sig­ur­björn Þor­kels­son, greindu frá því í yfir­lýs­ingu sem þau sendu á fjöl­miðla í gær að ekki hafi verið brotið gegn reglum um fjölda­tak­mark­anir í salnum á Þor­láks­messu á síð­asta ári.

Enn fremur sagði í til­kynn­ing­unni að ekki hafi verið brotið gegn reglum um opn­un­ar­tíma umrætt kvöld og að ekk­ert sam­kvæmi hafi verið haldið í lista­safn­inu umrætt kvöld. Aftur á móti hafi verið brotið gegn ákvæði um grímu­skyldu.

Í til­kynn­ingu lög­reglu í dag segir að það sé grund­vall­ar­triði að við­halda því góða trausti sem lög­reglan nýtur. Eftirlit með störfum lög­reglu sé einn af horn­steinum þess að við­halda því trausti. „Hvað varðar afhend­ingu gagna til nefnd­ar­innar er rétt að taka fram að tæm­andi end­ur­rit af sam­ræðum lög­reglu­manna á vett­vangi fylgdi með til nefnd­ar­innar strax í upp­hafi. Nefndin hafði þar af leið­andi umrædd sam­töl, sem vísað er til í nið­ur­stöðum hennar, undir höndum allan tím­ann. Rétt er að hluti af upp­tökum úr búk­mynda­vélum á vett­vangi var án hljóðs. Þegar nefndin gerði athuga­semd við það var rétt ein­tak sent til nefnd­ar­innar. Engin til­raun var gerð til að leyna því sem fram kom á upp­tök­unum.

Hvað varðar nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar um að vís­bend­ingar séu um að dag­bók­ar­færsla hafi verið efn­is­lega röng telur emb­ættið mik­il­vægt að taka fram að fyrstu upp­lýs­ingar lög­reglu sem feng­ust á vett­vangi voru á þann veg að um einka­sam­kvæmi væri að ræða og var það því skráð sem slíkt í dag­bók lög­reglu. „Hins vegar leiddi frek­ari rann­sókn máls­ins í ljós að svo var ekki. Markmið með birt­ingu upp­lýs­inga úr dag­bók­ar­færslum er að fjalla um verk­efni lög­reglu eins og þau birt­ast á hverjum tíma. Eðli máls sam­kvæmt geta mál skýrst eða tekið aðra stefnu eftir því sem rann­sókn miðar áfram.“

Hvað varðar nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar um að hátt­semi til­tek­inna starfs­manna emb­ætt­is­ins geti talist ámæl­is­verð þá hefur Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu tekið það til með­ferðar og sett í far­veg. „Að öðru leyti getur emb­ættið ekki veitt upp­lýs­ingar um mál­efni ein­stakra starfs­manna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár