Gengur um miðbæ í mótun

Örlygur Ómar Árnason hefur gengið um mið­borg Reykja­víkur ára­tugum saman. Hann saknar ferða­mann­anna.

Miðbærinn hefur breyst til betri vegar
Mið­bær­inn hefur breyst til betri vegar Örlygur saknar þó túristana sem glæddu eitt sinn mið­borg­ina lífi Mynd: Heiða Helgadóttir

Ég er lítið að bralla þessa dag­ana þar sem ég er sjö­tíu og eins árs og er elli­líf­eyr­is­þegi. Ég reyni sem mest að hafa það náð­ugt. Ég þvæ þvott og þríf heim­ilið á meðan konan er í vinn­unni.

Annars geng ég dag­lega um mið­bæ­inn og hef gert svo ára­tugum skiptir. Ég gekk kannski ekki á hverjum degi þessi ár sem ég var enn að vinna en almennt hef ég sótt mikið í mið­bæ­inn. Upp­á­haldið mitt er Lauga­veg­ur­inn og Aust­ur­stræti, þar labba ég upp og niður og út um allan bæ.

Í göngu­ferð­unum fylgist ég vel með fram­kvæmdum í mið­bænum. Ég fer og skoða hvernig gengur að byggja hót­elin og svona. Ég hef því séð á þessum árum hvernig mið­bær­inn hefur breyst, það er komið svo miklu meira líf í borg­ina. Við hjónin bjuggum á Kárastíg í nokkur ár, þá var ekk­ert um að vera. Núna síð­ustu fimmtán ár …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár