Sýn selur fjarskiptainnviði fyrir meira en sex milljarða króna

Erlendir fjár­festar hafa eign­ast fjar­skipta­inn­viði hér­lendis sem áður voru í eigu Sýnar. Áhugi er á að kaupa sömu inn­viði af hinum stóru fjar­skipta­fyr­ir­tækj­unum.

Heiðar Guðjónsson er forstjóri Sýnar.
Heiðar Guð­jóns­son er for­stjóri Sýnar. Mynd: Sýn

Fjöl­miðla- og fjar­skipta­fé­lagið Sýn hefur selt svo­kall­aða óvirka far­síma­inn­viði sína til ónefndra erlendra fjár­festa á yfir sex millj­arða króna. Sýn leigir svo inn­við­ina til baka frá nýjum eig­endum. Frá þessu er greint í til­kynn­ingu sem birt var í Kauphöll Íslands í nótt. Þar segir enn fremur að allur virkur far­síma­bún­aður verði áfram í eigu Sýnar. Með óvirkum innviðum er átt við t.d. raf­kerfi og senda­turna í far­síma­kerfi fjar­skipta­fyr­ir­tækja. Virki bún­að­ur­inn er svo fal­inn í því sem send­arnir á turn­unum bjóða upp á.

Samn­ing­arnir munu styrkja efna­hags­reikn­ing Sýnar og lausa­fjár­stöðu félags­ins, sem rekið hefur verið með tapi und­an­farin ár. Þeir eru með fyr­ir­vara um sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Áður hefur verið greint frá því að sjóður í stýr­ingu banda­ríska fram­taks­sjóðs­ins Digital Colony væri sá aðili sem væri að reyna að kaupa hina óvirku far­síma­inn­viði Sýnar. Félagið hefur einnig haft áhuga á að kaupa slíka frá Nova og í sept­em­ber í fyrra greindi Kjarninn frá því að fjár­festar hefðu lagt fram ófor­m­­legar fyr­ir­­spurnir til Sím­ans um mög­u­­leg kaup á Mílu, sem heldur utan um fjar­skipta­inn­viði Símans, en að engar ákvarð­anir hefðu verið teknar um söl­una.

[adspot]Því er mögu­legt að allir fjar­skipta­inn­viðir þriggja stærstu fjar­skipta­fyr­ir­tækja lands­ins verði komnir í ann­arra eigu innan skamms.

Þungur rekstur síðustu ár

Sýn tap­aði 405 millj­ónum króna á síð­asta ári. Það er tölu­vert minna tap en félagið skil­aði af sér árið 2019, þegar það tap­aði 1.748 millj­ónum króna. Sam­an­lagt tap sam­stæð­unnar á tveimur árum er því tæp­lega 2,2 millj­arðar króna.

Árið 2019 réð mestu að virð­is­rýrnun við­skipta­vildar vegna fjöl­miðla sam­stæð­unnar var færð niður um tæp­lega 2,5 millj­arða króna, en á móti kom líka ein­skipt­is­sölu­hagn­aður vegna sölu á fær­eyska félag­inu P/F Hey upp á 872 millj­ónir króna.

[links]Tekjur félags­ins juk­ust um tæpan millj­arð króna á milli ára og voru í heild 20,8 millj­arðar króna á síð­asta ári. Í fyrra féllu allar nýjar tekjur Sýnar til vegna dótt­ur­fé­lags­ins Endor, upp­­­­lýs­inga­­­­fyr­ir­tækis í hýs­ing­ar- og rekstr­ar­lausnum sem stýrir ofur­­­­tölv­um, sem Sýn keypti í lok árs 2019, og kom inn í sam­stæðu­reikn­ing félags­ins á árinu 2020. Kaup­verðið á Endor var 618 millj­ónir króna en getur enn tekið breyt­ingum eftir afkomu þess, og tekjur þess voru 2,4 millj­arðar króna í fyrra. Ef Endor hefði ekki komið inn í sam­stæðu­reikn­ing­inn í fyrra hefðu tekjur dreg­ist saman um 1,4 millj­arða króna.

Með því að selja fjar­skipta­inn­viði verður hægt að skila að minnsta kosti hluta ávinn­ings­ins, rúm­lega sex millj­örðum króna, til hlut­hafa í gegnum end­ur­kaup á bréfum eða arð­greiðslur.

Allir aðrir tekju­stofnar Sýnar dróg­ust enda saman á milli ára. Mestur var sam­drátt­ur­inn í fjöl­miðla­hluta Sýn­ar, en tekjur hans dróg­ust saman um 559 millj­ónir króna á milli ára. Frá lokum árs 2018 hafa tekjur vegna fjöl­miðla Sýnar lækkað um rúm­lega einn millj­arð króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár