Viðskipti með Sýn nífölduðust dagana fyrir frétt um kaup á innviðum

Mikill áhugi vakn­aði á meðal fjár­festa á hluta­bréfum í Sýn fimm dögum áður en frétt birt­ist um að banda­rískir fjár­festar væru langt komnir með að kaupa óvirka far­síma­inn­viði félags­ins. FME getur hvorki stað­fest né neitað að málið sé til skoð­unar.

Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar.
Heiðar Guð­jóns­son, for­stjóri Sýnar. Mynd: Sýn

Við­skipti með hluta­bréf í Sýn tæp­lega níföld­uð­ust og verð þeirra jókst um 14 pró­sent í byrjun mán­að­ar­ins, nokkrum dögum áður en Við­skipta­blaðið birti frétt um að banda­rískir fjár­festar væru að ljúka kaupum á óvirkum far­síma­innviðum félags­ins. Verð­hækkun félags­ins var langt umfram verð­hækkun mark­að­ar­ins á tíma­bil­inu, en Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans gefur ekki upp hvort hluta­bréfa­kaupin séu til skoð­unar hjá yfir­völdum eða ekki.

Hugsanlegur söluhagnaður upp á 6 milljarða

Samkvæmt frétt Við­skipta­blaðs­ins, sem birt­ist 11. febr­úar er félag í stýr­ingu banda­ríska fram­taks­sjóðs­ins Digital Colony langt komið með að ljúka kaupum á svoköll­uðum óvirkum far­síma­innviðum Sýnar og Nova fyrir um 13 millj­arða íslenskra króna.

Kjarninn hefur áður fjallað um fyr­ir­hug­aða sölu Sýnar á innviðum, en sam­kvæmt fjár­festa­til­kynn­ingu sem félagið sendi frá sér í lok októ­ber í fyrra gæti sölu­hagn­aður félags­ins numið 6 millj­örðum króna. Sýn hafði svo í hug að end­ur­leigja þessa inn­viði frá nýju eig­end­unum til 20 ára.

[links]Við­skipta­blaðið greinir frá því að félagið sem hygð­ist kaupa inn­við­ina ynni að því að fjár­magna kaupin að hluta með útgáfu skulda­bréfs í krónum upp á 8 til 9 millj­arða króna. Þessi fjár­fest­ing hafi verið kynnt líf­eyr­is­sjóðum og öðrum inn­lendum fjár­festum á síð­ustu vikum af fyr­ir­tækja­ráð­gjöf Kviku banka sem hafi umsjón með fjár­mögn­un­inni hér á landi.

[adspot]

Meiri viðskipti og hærra verð

Á sama tíma hefur áhugi fjár­festa á hluta­bréfum í Sýn auk­ist tölu­vert. Á milli 4. og 11. febr­úar keyptu þeir að með­al­tali fyrir um 98,3 millj­ónir íslenskra króna í félag­inu á hverjum degi, en til sam­an­burðar hefur aðeins verið keypt fyrir um 11,4 millj­ónir króna á hverjum degi frá árs­byrjun að 4. febr­úar. Því nán­ast nífald­að­ist magn við­skipta síð­ustu fimm dag­ana áður en frétt Við­skipta­blaðs­ins birt­ist.

Samhliða auknum áhuga á hluta­bréfum í Sýn hefur verð þeirra einnig hækkað tölu­vert á síð­ustu dögum. Hækk­un­ina má sjá á mynd hér að ofan, en þar sést að verðið í fyr­ir­tæk­inu, sem hafði lækkað Um 10 pró­sent frá árs­byrjun til 4. febr­úar, hækk­aði um 14 pró­sent á örfáum dögum. Þessi hækkun var langt umfram hækkun vísi­tölu tíu stærstu fyr­ir­tækja Kaup­hall­ar­innar, sem hækk­aði um 5 pró­sent á sama tíma­bili. Engar til­kynn­ingar bár­ust frá félag­inu á vef Kaup­hallar á þessu tíma­bili.

FME hvorki staðfestir né neitar

Samkvæmt lögum um inn­herja­svik er fjár­festum óheim­ilt að ráð­stafa hluta­bréfum eða öðrum fjár­mála­gern­ingum á mark­aði ef þeir búa yfir upp­lýs­ingar sem eru óop­in­berar en myndu hafa áhrif á hluta­bréfa­verð ef þær væru gerðar opin­berar. Einnig er óheim­ilt að láta þriðja aðila slíkar upp­lýs­ingar í té og ráð­leggja þriðja aðila að ráð­stafa hluta­bréfum á grund­velli upp­lýs­ing­anna.

Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans hefur eft­ir­lit með fram­kvæmd þess­ara laga, en stofn­un­inni er heim­ilt að krefja ein­stak­linga um allar upp­lýs­ingar og gögn sem það telur nauð­syn­leg. Í svari við fyr­ir­spurn frá Kjarn­anum segir upp­lýs­inga­full­trúi Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að ekki sé hægt að svara því ját­andi eða neit­andi að til­tekið mál sé til skoð­unar eða ekki, þar sem rík þagn­ar­skylda ríkir á Seðla­bank­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár