Starfsfólki sagt upp á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri

Forseti ASÍ gagn­rýnir hag­ræð­ing­ar­að­gerðir sem bitna fyrst og fremst á starfs­fólki að hennar mati. Heilsu­vernd tók við rekstri Öldr­un­ar­heim­ila Akur­eyrar í apríl á þessu ári.

Frá Akureyri.
Frá Akureyri. Mynd: Pixabay/Michelle Maria

Tilkynnt hefur verið um upp­sagnir starfs­manna á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Hlíð á Akureyri. Helga Guðrún Erlends­dóttir, hjúkr­un­ar­for­stjóri Heilsu­vernd hjúkr­un­ar­heim­ila, stað­festir í sam­tali við Kjarnann að upp­sagnir hafi átt sér stað á Hlíð en Heilsu­vernd hjúkr­un­ar­heim­ili sjá um rekstur Hlíðar. Guðrún gat ekki sagt með vissu hver fjöldi upp­sagna hefði verið.

Logi Már Ein­ars­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, vakti athygli á mál­inu á Facebook síðu sinni í kvöld þar sem hann sagði að sam­kvæmt sínum heim­ildum hefði verið til­kynnt um upp­sagnir 26 starfs­manna á hjúkr­un­ar­heim­il­unum á Akureyri. Lyk­il­starfs­menn hafi verið í hópi þeirra sem sagt var upp.

„Í mörg ár hefur rík­is­valdið van­fjár­magnað mála­flokk­inn með þeim afleið­ingum að Akur­eyr­ar­bær neydd­ist til að segja upp samn­ingi um rekstur heim­il­inna, enda erfitt að rétt­læta að greiða tap ár eftir ár með pen­ingum sem áttu að fara í önnur mik­il­væg og jafn­vel lög­bundin verk­efni. Í stað þess að ríkið tæki við rekstr­inum einsog tíðkast víða um land, ákvað heil­brigð­is­ráð­herra og rík­is­stjórnin að bjóða hann út og einka­hluta­fé­lag tók við honum fyrir nokkrum vikum. Og nú er sem sagt hag­ræð­ingin hafin,“ sagði Logi í færslu sinni.

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, birti upp­sagn­ar­bréf eins starfs­manns sem unnið hafði á hjúkr­un­ar­heim­il­inu Hlíð í 20 ár. Í færslu sinni á Facebook segir Drífa að nú ætli Heilsu­vernd hjúkr­un­ar­heim­ili að ná fram hag­ræð­ingu með upp­sögnum. „Svei þeim og svei arð­væð­ing­unni! Nú á að losa sig við “dýra” starfs­fólkið og ná “hag­ræð­ingu”. Starfs­fólkið er fyrst til að taka skell­inn, þetta líðst með vit­und og vilja ríkis og sveit­ar­fé­lags­ins!“

Heilsu­vernd tók við rekstri Öldr­un­ara­heim­ila Akur­eyrar í apríl á þessu ári. Á Akureyri rekur það nú dvalar- og hjúkr­un­ar­heim­ilið Hlíð og hjúkr­un­ar­heim­ilið Lög­manns­hlíð í Gler­ár­hverfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár