Tíu ára rússíbanareið

Áratug eftir að hrun­tím­inn hófst er staðan á Íslandi mjög góð. Freistni­vandi gæti hins vegar verið til staðar fyrir stjórn­mála­menn til að greiða ekki niður skuldir heldur eyða pen­ingum í vin­sæl verk­efni.

Um þessar mundir eru tíu ár frá því að fyrstu alvar­legu ein­kennin komu fram um það - opin­ber­lega - að ekki væri allt með felldu í íslensku hag­kerfi. Hluta­bréfa­verð féll í kaup­höll­inni í októ­ber 2007, fast­eigna­við­skiptum snar­fækk­aði og gengi krón­unnar hóf að gefa eftir.

Það þarf ekki að rekja í smá­at­riðum það sem gekk á fram á haust 2008. Hrunið, með neyð­ar­laga­setn­ingu 6. októ­ber og síðan fjár­magns­höftum í nóv­em­ber sama ár, kom eins og sprengja inn í íslenskt efna­hags­líf með til­heyr­andi erf­ið­leikum. Gengið hrundi, atvinnu­leysi rauk upp. Nýr veru­leiki blasti við. Við­spyrna frá botni blasti við.

Heppni og róttækar aðgerðir

En núna, tíu árum eftir að hrun­tím­inn hófst í reynd, er staðan allt önnur og betri. Hag­vöxtur hefur verið við­var­andi frá árinu 2010 og var kröft­ugur í fyrra, yfir sjö pró­sent.

Allt frá árinu 2011 hefur vöxtur ferða­þjón­ust­unnar knúið áfram öfl­ugan hag­vöxt. Ferða­mönnum á ári hefur fjölgað úr innan við 450 þús­und árið 2010 í 2,3 millj­ónir á þessu ári. Flestar spár gera ráð fyrir áfram­hald­andi vexti og fjölgun ferða­manna. Merki um að aðeins sé að hægja á hag­vexti hafa komið fram en spár Seðla­banka Íslands gera þó ráð fyrir 3,7 pró­sent hag­vexti á þessu ári.

Atvinnu­leysi er lítið sem ekk­ert, eða á milli 2 til 4 pró­sent, og launa­hækk­anir hafa verið miklar und­an­farin ár. Þá hefur mik­ill afgangur verið á við­skiptum við útlönd, þökk sé ferða­þjón­ust­unni að miklu leyti, og verð­bólga hefur í næstum fjögur ár hald­ist undir 2,5 pró­sent. Hún mælist nú 1,9 pró­sent á árs­grund­velli.

Fast­eigna­verð hefur rokið upp, einkum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en verð­hækk­unin nemur um 18 til 20 pró­sentum á und­an­förnu ári. Spár gera ráð fyrir áfram­hald­andi hækk­unum næstu þrjú ár, en nýleg spá grein­enda Íslands­banka gerir ráð fyrir 12 pró­sent hækkun á næsta ári og 5 pró­sent árið þar á eftir. Þetta teljst miklar hækk­anir í sögu­legu sam­hengi, og mjög miklar í alþjóð­legum sam­an­burði.

Með öðrum orðum; staðan er góð á flesta mæli­kvarða.

Varir ekki að eilífu

Jafnvel þó margt bendi til þess að hag­vaxt­ar­skeiðið muni halda áfram næstu árin, þá eru samt blikur á lofti í ákveðnum hlut hag­kerf­is­ins. Einkum og sér í lagi í útflutn­ingi og í hinum svo­nefnda alþjóða­geira. Fyr­ir­tæki sem eru að selja vörur og þjón­ustu úr landi glíma nú við erf­ið­leika vegna þess hve gengi krón­unnar er orðið sterkt, og greina má kæl­ing­ar­á­hrif í ferða­þjón­ustu sömu­leiðis.

Ferða­menn finna vel fyrir því hvað verð­lag á Íslandi er hátt, þessi miss­erin.

Til lengdar litið virð­ist blasa við að þessi upp­gangur sem hefur ein­kennt efna­hags­málin á Íslandi und­an­farin miss­eri getur ekki varað að eilífu. Spennan í hag­kerf­inu er mikil og vöntun á vinnu­afli víða, ekki síst í mann­virkja­geir­anum. Ný rík­is­stjórn stendur frammi fyrir krefj­andi hag­stjórn­ar­verk­efni þar sem þarf að passa að spennan verði ekki of mikil, á sama tíma og það þarf að huga að mennta-, nýsköp­unar-, sam­göngu-, og heil­brigð­is­málum, ekki síst.

Allt kostar það pen­inga að bæta stöð­una sem fyrir er en stjórn­völd munu vafa­lítið þurfa að meta hvað telj­ist hinn gullni með­al­vegur. Stjórn­ar­sátt­mál­inn ber þetta með sér. Þar er ekki full­yrt mikið um hvað eigi að gera.

Freistnivandi?

Annað sem má telja jákvæðan vanda er að arð­greiðslur frá dótt­ur­fé­lögum rík­is­ins munu vafa­lítið aukast mikið á næstu árum. Tugir millj­arða eru lík­legir til að koma frá dótt­ur­fé­lög­unum, þar helst Íslands­banka, Lands­bank­anum og Lands­virkjun, í rík­is­kass­ann.


Í því árferði sem nú ríkir - þar sem mikil spenna er í hag­kerf­inu - þá gæti þetta skapað hálf­gerðan freistni­vanda fyrir stjórn­mála­menn. Þeir gætu freist­ast til að greiða ekki niður skuldir heldur frekar stuðla að fjár­fest­ingum og ýmsum vin­sælum verk­efnum sem gætu fært þeim atkvæði í kass­ann í kosn­ingum.

Það er um margt merki­legt að hugsa til þess hvernig til hefur tek­ist við end­ur­reisn­ina á íslenska hag­kerf­inu. Íslend­ingar ættu þó að muna, að það er ekki á vísan að róa, þegar kemur að góðu gengi í hag­kerf­inu. Þá má heldur ekki gleyma að neyð­ar­laga­setn­ingin og fjár­magns­höftin, fyrir um níu árum, sköp­uðu ein­stakar aðstæður til að bæta úr afar erf­iðri stöðu. Þetta gátu aðrar þjóðir ekki gert. Ekki síst þess vegna ættu stjórn­völd að fara að öllu með gát, sýna auð­mýkt og var­færni, frekar en að leggja upp í nýja rús­sí­ban­areið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár