Bensínlítrinn gæti kostað 327 krónur í sumar

JPMorgan spáir því að heims­mark­aðs­verðið á einni tunnu af hrá­olíu muni fara upp í 125 Banda­ríkja­dali á næsta árs­fjórð­ungi. Gerist það má búast við að verðið á bens­ín­lítr­anum hér á landi muni nema 327 krónum.

Verðið á bens­íni og olíu gæti hækkað um fimmt­ung hér á landi á næstu mán­uðum og numið 327 krónum, að því gefnu að hrá­vöru­verðs­spár banda­ríska fjár­fest­inga­bank­ans JPMorgan gangi upp og gengi krón­unnar við Banda­ríkja­dal hald­ist óbreytt. Þetta kemur fram ef nýj­ustu upp­lýs­ingar úr Bens­ín­vakt Kjarnans eru nýttar.

Hraðar hækkanir eftir innrásina

Financial Times greindi frá nýj­ustu spá JPMorgan í vik­unni, en sam­kvæmt henni hefur inn­rás Rússa í Úkraínu leitt til mik­illa verð­hækk­ana á hrá­ol­íu­verði, sem er nú komið upp fyrir 100 Banda­ríkja­dali á hverja tunnu. Sömu­leiðis hefur heims­mark­aðs­verðið á jarð­gasi hækkað tölu­vert, en Rússland er þriðji stærsti olíu­fram­leið­andi heims­ins og stærsti selj­andi á jarð­gasi til Evrópu.

[adspot]

Samkvæmt bank­anum hefur lítil fjár­fest­ing í fram­leiðslu­getu olíu og jarð­gass leitt til þess að ekki sé hægt að bregð­ast við nýlegum verð­hækk­unum með auk­inni fram­leiðslu, sem myndi jafna út verðið. Auk þess hefur gengið hratt á olíu- og gas­birgðir síð­ustu miss­erin, svo búist er við ört hækk­andi verð­lagi á næst­unni.

Bensínvaktin spáir 327 kr. á lítrann

Kjarninn hefur, í sam­starfi við hug­bún­að­ar­fyr­ir­tækið Seið, haldið úti reglu­legri Bens­ín­vakt, þar sem bens­ín­verð hér­lendis er reiknað út frá lík­legu inn­kaupa­verði, opin­berum gjöldum og hluti olíu­fé­lag­anna.[links]

Samkvæmt þeim útreikn­ingum – sem hægt er að kynna sér betur með því að skoða und­ir­liggj­andi gögn og reikni­módel á Excel sniði – hafa að með­al­tali um 17 pró­sent af sölu­verði bens­íns runnið til olíu­fé­laga síð­ustu tvö árin. Í febr­úar var hlutur þeirra tæp­lega 16 pró­sent, eða rúm­lega 43 krónur á lítr­ann.

Til við­bótar bæt­ast svo opin­ber gjöld, en það eru meðal ann­ars almennt og sér­stakt bens­ín­gjald, sem nema sam­tals um 77 krónum á hvern lítra, og kolefn­is­gjald sem nemur um tíu krónum á hvern lítra. Þar að auki er virð­is­auka­skattur, sem er afreikn­aður 19,35 pró­sent.

Að þessum for­sendum gefnum, auk þess sem gert er ráð fyrir að gengi Banda­ríkja­dals við krón­una yrði óbreytt, má búast við að verðið á bens­ín­lítr­anum hér á landi muni nema 327 krónum á næsta árs­fjórð­ungi, ræt­ist verð­spár JPMorgan. Þetta jafn­gildir um 20 pró­senta hækkun frá núver­andi verð­lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvaktin

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár