Spænskt öryggisfyrirtæki njósnaði um Assange í sendiráði Ekvador

Fyr­ir­tækið kom upp mynda­vélum með hljóð­bún­aði og tók upp fjöl­marga fundi sem Assange átti með lög­fræð­ingum sínum og heim­sækj­endum.

Njósnað var um Julian Assange, stofn­anda Wikileaks, á meðan hann dvaldi í sendi­ráði Ekvador í London. Njósnað var um Assange allan sól­ar­hring­inn frá des­em­ber 2017 til mars 2018. Þetta kemur fram í frétt El País.

Samkvæmt gögn­unum sem blaða­menn­irnir hafa undir höndum var skjölum, mynd­böndum og hljóð­brotum af Assange safnað af spænska örygg­is­fyr­ir­tæk­inu Undercover Global S. L.. Fyr­ir­tækið sá um örygg­is­gæslu við sendi­ráðið á árunum 2012 til 2018.

[adspot]Fyr­ir­tækið kom upp mynda­vélum með hljóð­bún­aði og tók upp fjöl­marga fundi sem Assange átti með lög­fræð­ingum sínum og heim­sækj­endum. Assange ræddi við lög­fræð­inga sína um laga­legar aðgerðir sem hann gæti tekið og mögu­lega flótta­að­gerðir úr sendi­ráð­inu til Rúss­lands eða Kúbu. Hins vegar hafi Assange ekki viljað flýja því það myndi telj­ast sem ósigur, að því er kemur fram í frétt­inni.

[links]Samkvæmt frétt­inni var nánar fylgst með Assange eftir að Lenin Moreno varð for­seti Ekvador í maí 2017. Moreno veitti einmitt breskum yfir­völdum aðgengi að Assange svo þau gætu hand­tekið hann.

Assange reyndi að hindra njósnir

Örygg­is­fyr­ir­tækið skrif­aði dag­lega skýrslu um Assange, hvað hann hafði gert þann dag­inn og jafn­vel í hvaða skapi hann hafi verið. Í skýrsl­unum var skrifað um við­brögð Assange við dóm­inum gegn Manning og var Assange sam­kvæmt þeim afar stress­aður og upp­spenntur í kjöl­far fregna af dóm­inum. Einnig er skrifað um fund Assange með Pamelu Anderson. Þau hafi deilt upp­lýs­ingum með því að skrifa miða og notað tæki sem hafi brenglað raddir þeirra, að því er kemur fram í frétt­inni.

Ljóst er að Assange hafi verið afar var um sig og reynt að hindra að hægt væri að njósna um hann, þar sem hann hafi kveikt á tæk­inu sem brengl­aði raddir hans og gesta hans. Hins vegar hafi tækið ekki komið í veg fyrir að örygg­is­fyr­ir­tækið hafi getað hlustað á allar sam­ræður hans, sam­kvæmt frétt El País. Jafn­framt hafi fyr­ir­tækið getað þysjað inn á miða hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Assange

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár