Fjölmargir fengið blýeitrun í kjölfar bruna Notre Dame

Frönsk yfir­völd hafa tíma­bundið stöðvað vinnu við Notre Dame dóm­kirkj­una í París í kjöl­far til­kynn­inga um blý­eitrun. Talið er að fjöl­margir verka­menn sem hafi unnið að við­gerðum kirkj­unnar auk nokk­urra íbúa í nágrenni hennar hafi fengið blý­eitrun.

Frá bruna Notre Dame þann 15. apríl
Frá bruna Notre Dame þann 15. apríl Mynd: EPA

Frönsk yfir­völd hafa tíma­bundið stöðvað vinnu við Notre Dame dóm­kirkj­una í París í kjöl­far til­kynn­inga um blý­eitrun þeirra sem unnu að við­gerðum hennar. Kirkjan brann að hluta í apríl síð­ast­liðnum og hafa frönsk yfir­völd unnið að við­gerðum við hana síðan. Talið er að fjöl­margir verka­men sem unnið hafi að við­gerðum kirkj­unnar auk íbúa í nágrenni hennar hafi orðið fyrir blý­eitrun. Le Monde greinir frá.

Stétta­fé­lög verka­mann­anna sem vinna að við­gerð­unum, auk ýmissa frjálsra félaga­sam­taka, kalla eftir því að kirkjan verði ein­angruð vegna heil­brigð­is­váar. Frönsk yfir­völd ætla sér að fara í aðgerðir til að tryggja öryggi þeirra sem vinna að við­gerðum kirkj­unnar áður en sú vinna hefst að nýju og borg­ar­stjóri Parísar hefur lofað því að sporna gegn auk­inni mengun frá kirkj­unni.

[adspot]400 tonn af blýi í þaki kirkjunnar

Blý­eitr­unin stafar af þeim 400 tonnum af blýi sem voru í þaki kirkj­unnar og losn­uðu við brun­ann. Ýmis umhverf­is­vernd­ar­sam­tök krefj­ast þess að kirkjan verði ein­angruð í heild sinni þar sem núver­andi aðstæður ógni íbúum í nágrenni kirkj­unnar auk þeirra vinnu­manna sem vinni að við­gerðum kirkj­unnar.

Verka­lýðs­sam­tök í Frakk­landi krefj­ast þess einnig að yfir­völd láti heilsu verka­manna og íbúa í for­gang þó það þýði að við­gerðum kirkj­unnar verði lokið síðar en áætlað var. Samtökin, CGT, segja að svæðið umhverfis kirkj­una sé afar mengað. Sér­fræð­ing­arnir sem sáu um að fjar­lægja gler kirkj­unnar eftir bruna hennar eru þeir sem mest urðu fyrir blý­eitr­un­inni og var hlut­fall blýs í blóði þeirra sér­stak­lega hátt.

Viðgerðir hefjast að nýju um miðjan ágúst

Sér­fræð­ingar heil­brigð­is­yf­ir­valda í Frakk­landi hafa farið um fjórða, fimmta og sjötta hverfi Parísar til að taka sýni. Sýnin verða notuð til þess að greina hversu víð­tæk blý­meng­unin sé.

Við­gerðir kirkj­unnar munu hefj­ast að nýju um miðjan ágúst. Yfirvöld í Frakk­landi segja að þá muni vera búið að koma á nýjum örygg­is­bún­aði sem muni tryggja öryggi bæði þeirra sem vinna að við­gerðum kirkj­unnar og íbúum í nágrenni hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár