Fullt afnám hafta kynnt í dag – Ríkisstjórnin fundar í hádeginu

Tillögur til að afnema höft að öllu leyti verða lagðar fyrir rík­is­stjórn­ar­fund í hádeg­inu í dag. Hrinda þarf þeim í fram­kvæmd áður en mark­aðir opna í fyrra­málið.

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Benedikt Jóhannesson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra og Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Boðað hefur verið til rík­is­stjórn­ar­fundar í hádeg­inu í dag með skömmum fyr­ir­vara. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er efni hans til­lögur um aðgerðir í átt að fullu afnámi fjár­magns­hafta.

Blaða­manna­fundur verður hald­inn síð­degis þar sem málið verður kynnt almenn­ingi og fjöl­miðlum. Fund­ur­inn fer fram í ráð­herra­bú­staðnum klukkan tvö og boð­uðu bæði Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra og Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra til fund­ar­ins. Ljóst er að klára þarf þau skref sem þarf að stíga í aðgerð­unum í dag til að hægt verði að koma þeim í gagnið áður en mark­aðir opna í fyrra­málið, til að alls jafn­ræðis sé gætt.

Fjár­magns­höft hafa í gildi hér­lendis frá því í nóv­em­ber 2008. Þau voru sett í kjöl­far banka­hruns­ins þegar gengi krón­unnar féll skarpt og nauð­syn­legt varð að hindra útflæði fjár­magns úr íslensku efna­hags­kerfi. Á und­an­förnum árum hefur verið unnið að því að minnka þær krónu­eignir í eigu erlendra aðila sem voru innan hafta m.a. með víð­feðmu sam­komu­lagi við kröfu­hafa föllnu bank­anna um að þeir myndu greiða þorra inn­lendra eigna sinna til rík­is­sjóðs í formi stöð­ug­leika­fram­laga gegn því að fá að losa um aðrar eignir sínar.

Á síð­ustu árum hefur svo orðið algjör efna­hags­legur við­snún­ingur á Íslandi, aðal­lega vegna auk­ins ferða­manna­straums. Sá við­snún­ingur hefur leitt til þess að eitt þeirra vanda­mála sem ótt­ast að myndi verða við afnám hafta, að krónan myndi veikj­ast mikið, er ekki vanda­mál lengur. Nú er krónan þvert á móti orðin það sterk að margir inn­lendur atvinnu­vegir myndu þiggja það með þökkum ef hún veikt­ist og stjórn­völd hafa verið að und­ir­búa sér­stakar aðgerðir til við­náms vegna styrk­ingu krón­unnar.

Sagði afnám framundan á næstu vikum eða mánuðum

Slakað hefur verið á fjár­magns­höftum á síð­ast­liðnum rúma ári í nokkrum skrefum. Heim­ildir líf­eyr­is­sjóða til að fjár­festa utan Íslands hafa verið rýmkaðar og heim­ildir almenn­ings og fyr­ir­tækja til að stunda gjald­eyr­is­við­skipti og fjár­festa utan hafta hafa líka verið auknar í litlum skrefum frá ágúst­mán­uði 2016. Frá og með síð­ustu ára­mótum má almenn­ingur til að mynda fjár­festa fyrir allt að 100 millj­ónum króna utan íslensks hag­kerfis. Þrátt fyrir þessi skref var ljóst að höft voru enn til staðar og Seðla­banki Íslands hafði áfram stíft eft­ir­lits­hlut­verk og ýmis tól til inn­grips ef hann teldi þess þurfa.

Hafta­málin hafa verið til umræðu í þing­inu á und­an­förnum dögum. Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði í vik­unni í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma að verið væri að und­ir­búa aðgerðir til við­náms í gjald­eyr­is­málum vegna styrk­ingar krón­unnar. Afnám hafta gæti átt sér stað á næstu vikum eða mán­uðum. Nú er ljóst að mun styttra er í þær aðgerðir en áður var af látið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjármagnshöft

Fréttirfjármagnshöft

Fallið frá mála­ferlum vegna aflandskrónu­eigna

Fjórir fjár­fest­inga­sjóðir sem ætl­uðu sér að fara í mál við íslenska ríkið vegna lög­gjafar um með­ferð aflandskrónu­eigna hafa fallið frá því. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu. Sjóð­irnir höfðu fengið heim­ild frá Hæsta­rétti til að leggja spurn­ingar fyrir dóm­kvadda mats­menn vegna máls­ins en hafa nú fallið frá þeirri beiðni. Hæsti­réttur hafði heim­ilað sjóð­unum að bera upp fimm...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár