Papco segir upp heilli vakt vegna Costo-áhrifa á klósettpappírssölu

Eini papp­írs­fram­leið­andi Íslands selur mun minni kló­sett­pappír en hann gerði áður en að Costco opn­aði. Sam­drátt­ur­inn er 20-30 pró­sent.

Eini papp­írs­fram­leið­andi Íslands, Papco, hefur sagt upp sex manns, eða heilli vakt, vegna sam­dráttar sem orðið hefur í sölu, sér­stak­lega á kló­sett­pappír. Sam­drátt­ur­inn bein afleið­ing af opnun versl­unar Costco í Kauptúni í Garðabæ í maí, en síðan þá nemur sam­dráttur í sölu á vörum Papco 20-30 pró­sent. Papco er eini fram­leið­andi kló­sett­papp­írs hér­lendis. Sú fram­leiðsla er seld bæði undir vöru­merki Papco en einnig undir vöru­merkjum stærstu smá­sala lands­ins, t.d. Krón­unnar og Bónus. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar er rætt við Alex­ander Kárason, sölu­stjóra neyt­enda­sviðs Papco. Hann segir Papco hafa reynt að kom­ast í sam­starf við Costco en beiðnum þess efnis hafi ekki verið svarað. Samkvæmt athug­unum fyr­ir­tæk­is­ins sé Costco að selja sinn eigin kló­sett­pappír, sem fram­leiddur er undir merkjum Kirkland, á lægra verði hér­lendis en fyr­ir­tækið selur hann í Bret­landi. „Verðið sem fyr­ir­tækið býður hér á landi er undir kostn­að­ar­verði. Það er heims­mark­aðs­verð á pappír, og því er auð­velt að sjá hvernig í þessu liggur. Ef við ætl­uðum að keppa við þetta verð eða fram­leiða pappír fyrir þá á þessu verði værum við að borga með vör­unum.“

Hann segir að ódýr kló­sett­pappír sé oft not­aður til að „lokka fólk inn í versl­anir“. Það gæti verið á ferð­inni í til­felli Costco sem selji vör­una undir mark­aðsvirði. Þessi staða komi hart niður á ung­linga- og barna­starfi íþrótta­fé­laga sem selji kló­sett­pappír í fjár­öfl­un­ar­skyni.

Málið er einnig til umfjöll­unar í Frétta­blað­inu. Þar er rætt við Richard Krist­ins­son, fram­kvæmda­stjóra­Mjallar Friggjar, sem fram­leiðir upp­þvotta­lög, þvotta­efni og aðrar hrein­læt­is­vörur. Hann seg­ist ekki ótt­ast að koma Costco hafi langvar­andi áhrif á rekstur fyr­ir­tæk­is­ins. Það sé lítið á neyt­enda­mark­aði.

Áhrif opn­unar Costco á Íslandi hafa verið gríð­ar­leg. Stærsti smá­sali lands­ins, Hagar, hefur tví­vegis sent frá sér afkomu­við­vörun frá því að Costco opn­aði og hluta­bréfa­verð í félag­inu hefur hrunið, og lækkað alls um 36 pró­sent. Í gær lækk­aði það aftur skarpt, um 4,2 pró­sent, og hefur nú ekki verið lægra í fjögur ár. Sú lækkun var, sam­kvæmt Frétta­blað­inu, rakin til frétta­flutn­ings um að þýska versl­un­ar­keðjan Aldi hafi áhuga á að opna verslun hér­lendis.

Þá selur Costco sjötta hvern bens­ín­lítra sem seldur er á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en fyr­ir­tækið býður umtals­vert lægra verð en skráð verð sam­keppn­is­að­ila þess eru. Skráðu olíu­fé­lögin, N1 og Skelj­ungur, birta hálfs­árs­upp­gjör sín á næstu vikum og mun þá koma í ljós hver skamm­tíma­á­hrif opn­unar Costco voru á rekstur félag­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár