Hrein og ódýr orka er allt sem þarf

Bill Gates hefur útbúið stærð­fræði­jöfnu til að sýna fram á að minni mengun frá orku­fram­leiðslu er meg­in­lausnin þegar kemur að mildun lofts­lags­breyt­inga.

Bill Gates hefur sett mikið af sínu eigin fé í fjárfestingar í endurnýjanlegum orkugjöfum.
Bill Gates hefur sett mikið af sínu eigin fé í fjár­fest­ingar í end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum. Mynd: EPA

Millj­arða­mær­ing­ur­inn Bill Gates hefur útbúið stærð­fræði­jöfnu sem hann segir að sé lyk­ill­inn að því að stöðva útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda út í and­rúms­loftið. Bill eyðir sínum helm­ingi árlegs bréfs þeirra Melindu Gates á vefnum gatesnotes.com í lofts­lags­málin. Hann seg­ist vera upp­tek­inn af orku­notkun og hefur und­an­farið fjár­fest mikið í verk­efnum sem lúta að fram­leiðslu hreinnar orku.

Bill Gates er meðal rík­ustu og áhrifa­mestu ein­stak­linga í heimi en hann var einn stofn­enda Microsoft. Í lok síð­asta árs stofn­aði Gates stóran fjár­fest­inga­sjóð sem á að fjár­festa í hreinni orku­fram­leiðslu. Í sjóðnum eru margir millj­arðar doll­ara. Gates er hins vegar raun­sær og gerir sér grein fyrir að það verður ekki til neitt „orku­krafta­verk“ á næstu árum eins og efa­semda­menn um lofts­lags­breyt­ingar hafa kallað það.

Stærð­fræði­jöfn­una sem Gates hefur búið til má nota til útskýr­ingar á því hvernig mann­kynið eykur eða minnkar gróð­ur­húsa­á­hrifin. Sé einn liður jöf­un­unnar núll verða gróð­ur­húsa­á­hrifin núll, sem er mark­miðið til til fram­tíðar.

Jafnan er ein­föld. Öðru­megin höfum við liði sem eru marg­fald­aðir með hvor öðrum: Fólks­fjöldi (P), þjón­ustur sem fólk notar (S), orku­notkun þjón­ust­unnar (E) og mengun sem verður til við orku­fram­leiðsl­una (C). Hinumegin er svo útkoman sem er koldí­oxíðið sem við blásum út í and­rúms­loftið og veldur gróð­ur­húsa­á­hrif­unum. Útkoman þarf að vera núll svo einn lið­anna verður á end­anum að vera núll.

Þá er hægt að fara í gegnum jöfn­una, lið fyrir lið, til að kom­ast að raun um hvernig er hægt að fá útkom­una núll. Fólks­fjöld­inn (P) er sem stendur sjö millj­arðar og reiknað er með að fjöldi fólks árið 2050 verði níu millj­arðar. „Ekki séns að það verði núll,“ skrifar Bill Gates.

Næst tekur hann fyrir þjón­ust­una sem fólk notar (S). „Þetta er allt: matur, föt, hiti og raf­magn, hús, bílar, sjón­vörp, Taylor Swift-plötur og svo fram­vegis.“ Þetta er með öðrum orðum tala sem getur ekki lækkað, að mati Gates. Orkan (E) sem þessar þjón­ustur notar er hins vegar eitt­hvað sem hægt er að tak­marka. Spar­neytn­ari bílar, spar­ljósa­perur og fleiri upp­finn­ingar munu verða til þess að orku­þörfin minnkar. Fólk hefur einnig verið að breyta venjum sínum í auknum mæli í þeim til­gangi að spara orku. „Fólk hjólar, notar hópakst­ur­sakreinar þjóð­vega og hitar hús sín örlítið minna,“ skrifar Gates.

Eina stærðin sem er eftir er orku­fram­leiðslan (C). Það er magn meng­unar sem verður til við fram­leiðslu orkunnar. „Megnið af orku­fram­leiðslu heims­ins, fyrir utan vatns­af­sl­virkj­anir og kjarn­orku, verður til með bruna jarð­efna­elds­neytis og kola. Útblástur þess­ara aflgjafa er gríð­ar­legur. Hér eru hins vegar einnig góðar fréttir,“ skrifar Gates enn fremur og bendir á að nýjar og grænar tækni­lausnir muni gera okkur kleift að fram­leiða útblást­urs­lausa orku með virkjun sól­ar­ljóss og vinds.

Gates seg­ist vera bjart­sýnn á að nýjar leiðir í orku­fram­leiðslu verði til í fram­tíð­inni. Hann spáir því að innan 15 ára muni mann­kynið finna upp nýja og hreina orku­lind sem muni bjarga jörð­inni okkar og knýja heim­inn í fram­tíð­inni. Og það „sér­stak­lega ef ungt fólk tekur þátt,“ skrifar hann. 

„Vanda­málið sem við stöndum frammi fyrir er stórt; jafn­vel stærra an fólk gerir sér grein fyrir. En það eru tæki­færin líka. Ef okkur tekst að finna leiðir til að fram­leiða ódýra hreina orku þá mun það gera miklu meira en að stöðva lofts­lags­breyt­ing­arnar. Það mun breyta lífi fátæk­asta fólks­ins í heim­inum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár