Hlutafjárútboði Icelandair frestað fram í ágúst

Icelandair hefur ekki náð sam­komu­lagi við helstu kröfu­hafa sína líkt og stefnt var á að myndi ger­ast fyrir dag­inn í dag. Gangi frek­ari við­ræður í júlí ekki vel mun félagið óska eftir greiðslu­stöðvun.

Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason er for­stjóri Icelandair. Mynd: Skjáskot/RÚV

Icelandair hefur ekki náð sam­komu­lagi við leigu­sala, Boeing og færslu­hirði eins og staðan er í dag, en upp­gef­inn frestur sem félagið hafði gefið sér til að ljúka slíkum við hag­að­ila rennur út í dag, 29. júní.

Í til­kynn­ingu sem send hefur verið til Kaup­hallar Íslands kemur fram að Icelandair muni reyna áfram að ná sam­komu­lagi við þá hag­að­ila sem eftir á að semja við í júlí­mán­uði og stefnir nú að því að ætlað hluta­fjár­út­boð, sem átti upp­haf­lega að hefj­ast í dag, fari nú fram í ágúst­mán­uði.

í til­kynn­ingu Icelandair til Kaup­hallar Íslands í morgun kemur fram að ef við­ræður sem nú standa yfir við lána­drottna, leigu­sala, Boeing og aðra hag­að­ila skili ekki árangri muni félagið þurfa að feta aðra slóð og án aðkomu stjórn­valda. Slíkt gæti tekið allt að tólf mán­uði og Icelandair myndi þurfa að óska eftir greiðslu­stöðvun á meðan að á því stæði.

Í til­kynn­ing­unni segir félagið vinni nú með íslenskum stjórn­völdum, Íslands­banka og Lands­bank­anum, sem báðir eru í eigu íslenska rík­is­ins og eru stærstu inn­lendu kröfu­hafar flug­fé­lags­ins, við útfærslu rík­is­á­byrgðar á láni til félags­ins. „Lána­fyr­ir­greiðsla íslenskra stjórn­valda verður þó meðal ann­ars háð sam­komu­lagi við kröfu­hafa og að félagið nái mark­miðum sínum um öflun nýs hluta­fjár.“

Þar segir að samn­inga­við­ræður við hag­að­ila hafi þok­ast áfram á und­an­förnum vikum og gætu skilað nið­ur­stöðu á næstu dögum haldi við­ræð­urnar áfram á upp­byggi­legum nótum. „Með því að ljúka sam­komu­lagi við fyrr­nefnda aðila í júlí­mán­uði mun Icelandair Group hefja hluta­fjár­út­boð í ágúst. Fari svo að samn­inga­við­ræður skili ekki til­ætl­uðum árangri, mun félagið þurfa að ljúka fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu án aðkomu íslenskra stjórn­valda. Slíkt ferli gæti tekið allt að tólf mán­uði og á meðan á því stæði þyrfti félagið að fresta öllum greiðslum til fjár­mögn­un­ar­að­ila félags­ins.“

[adspot]Handbært fé Icelandair Group er nú tæp­lega 21 millj­arður króna, um 150 millj­ónir Banda­ríkja­dala, sem er umfram þriggja mán­aða rekstr­ar­kostnað miðað við núver­andi aðstæður. Það er mat Icelandair, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni, að fjár­hags­leg end­ur­skipu­lagn­ing sem byggir á gagn­kvæmum samn­ingum við kröfu­hafa sé ákjós­an­leg­asta leið félags­ins til að tryggja hags­muni allra aðila, þar með talið hlut­hafa, fjár­mögn­un­ar­að­ila, birgja, við­skipta­vina og starfs­fólks.

Fresturinn rennur út í dag

Kjarninn greindi frá því í morgun að Icelandair Group þyrfti að vera búið að ná sam­komu­lagi við íslenska rík­ið, lán­veit­end­ur, leigu­sala og aðra hag­að­ila fyrir lok dags í dag, 29. júní, um fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ingu, sam­kvæmt til­kynn­ingu sem félagið sendi frá sér 15. júní síð­ast­lið­inn.

Sú til­kynn­ing var send í þeim til­gangi að upp­lýsa um að fyrri áætl­an­ir, settar fram á hluta­hafa­fundi Icelandair 22. maí síð­ast­lið­inn, um að ljúka gerð þeirra samn­inga 15. júní hefði frest­ast um tvær vik­ur. Þau eru for­senda þess að Icelandair geti ráð­ist í hluta­fjár­út­boð til að safna vel á þriðja tug millj­arða króna, en sam­kvæmt upp­haf­legri áætlun félags­ins átti það útboð að hefj­ast í dag.

Í til­kynn­ing­unni 15. júní til­greindi Icelandair að greint yrði frá nýrri tíma­línu atburða þegar við­ræður við hag­að­ila um end­ur­skipu­lagn­ingu væru á loka­metr­un­um.

Engin slík tíma­lína hafði verið birt í til­kynn­inga­kerfi Kaup­hallar Íslands á síð­ast­liðnum tveimur vik­um. Að óbreyttu hefði Icelandair því þurft að hand­sala sam­komu­lag við alla ofan­greinda hag­að­ila í dag, eða fresta enn frekar áformum sínum um að ljúka fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu með hluta­fjár­út­boði.

Til­kynn­ing um breytta tíma­línu var svo send til Kaup­hallar Íslands klukkan 8:45 í morgun.

Kapp­hlaup við tím­ann

Það nær algjöra stopp sem varð á flug­um­ferð í heim­inum sam­hliða útbreiðslu COVID-19 og sú mikla óvissa sem er uppi um ferða­­þjón­­ustu vegna þessa hefur haft gríð­­ar­­leg áhrif á Icelanda­ir. Félagið hefur notið fjöl­margra úrræða stjórn­­­valda eins og hluta­­bóta­­leið­­ar­innar og styrkja til að segja fólki upp í mæra mæli en nokk­­urt annað fyr­ir­tæki.

Samt hefur blasað við lengi að Icelandair þarf að ná sér í nýtt fé til að lifa af. Og það ætlar fyr­ir­tækið að gera í hluta­fjár­­út­­­boði sem á að hefj­­ast í lok mán­að­­ar. Þar ætlar það sér að sækja allt að 200 millj­­ónir dali, um 28 millj­­arða króna á gengi dags­ins í dag.

Lyk­il­breyta í því að geta sótt það fé var að semja upp á nýtt lyk­il­­starfs­­fólk. Samn­ingar þeirra þóttu óhag­­stæðir í augum fjár­­­festa og draga úr sam­keppn­is­hæfni Icelanda­ir.

Þar hefur náðst árang­ur. Aðfara­nótt síð­ast­lið­ins föstu­dags var skrifað undir nýjan lang­tíma­samn­ing við Flug­freyju­fé­lag Íslands (FFÍ). Félags­menn FFÍ eiga þó enn eftir að sam­þykkja samn­ing­inn.

Flug­­­menn og flug­­­virkjar Icelandair voru þegar búnir að semja um lang­­tíma­kjara­­samn­inga. Því stóðu flug­­freyjur og -þjónar fyr­ir­tæk­is­ins einir eftir af lyk­il­­stéttum sem þurfti að ná nýju sam­komu­lagi við, sem gæti liðkað fyrir fjár­­hags­­legri end­­ur­­skipu­lagn­ingu Icelanda­ir.

Eiga eftir að semja við lán­veit­end­ur, leigusala, ríkið og Boeing

Á hlut­hafa­fundi Icelandair þann 22. maí síð­ast­lið­inn, þar sem veitt var heim­ild til að auka hlutafé félags­ins svo mikið að núver­andi hlut­hafar gætu þynnst niður í 15,3 pró­sent eign­ar­hlut, var kynnt áætlun um hvernig hin fjár­hags­lega end­ur­skipu­lagn­ing myndi fara fram. Sam­kvæmt henni átti að und­ir­rita sam­komu­lag við alla hag­að­ila 15. júní, birta átti lýs­ingu á hluta­fjár­út­boð­inu og kynn­ingu til vænt­an­legra hlut­hafa 16-22. júní og útboðið sjálft átti svo að hefj­ast 29. júní, eða í dag, og standa fram á fimmtu­dag. Sú tíma­lína hefur ekki stað­ist og 15. júní síð­ast­lið­inn var greint frá því að sam­komu­lag við hag­að­ila væri ekki í höfn. Ný tíma­lína gerði ráð fyrir að það myndi klár­ast fyrir lok dags 29. júní. Öll önnur skref frest­ast í sam­ræmi við það. Til­kynn­ingin sem send var út í dag segir svo að ljúka þurfi sam­komu­lagi við hag­að­ila í júlí svo að hægt sé að ráð­ast í hluta­fjár­út­boðið í ágúst. Engar nákvæm­ari dag­setn­ingar eru til­greindar.

Til að hluta­fjár­­út­­­boðið fari fram og geti mög­u­­lega skilað til­­ætl­­uðum árangri þarf margt að ger­ast. Í fyrsta lagi þarf að semja við lán­veit­endur, færslu­hirði og leig­u­­sala.

Stærstu lán­veit­endur Icelandair eru rík­­is­­bank­­arnir tveir, Íslands­­­banki og Lands­­bank­inn, og banda­ríski bank­inn CIT Bank.

Við­­mæl­endur Kjarn­ans telja borð­­leggj­andi að þessir kröf­u­hafar þurfi að breyta kröfum í hlutafé til að hægt verði að ná í nýtt hlutafé í rekst­­ur­inn. Ekki sé til­­hlýð­i­­legt að kröf­u­hafar sitji einir eftir með að fá allt sitt, þegar allir aðrir sem tengj­­ast Icelandair þurfa að taka á sig aðlögun vegna aðstæðna. Hið minnsta þurfi að veita félag­inu langt greiðslu­hlé og breyta ýmsum skil­­málum í lána­samn­ing­um, mög­u­­lega á þann veg að um verði að ræða breyt­i­­lega samn­inga sem verði ein­fald­­lega breytt í hlutafé náist ekki ákveð­inn árangur í rekstr­­ar­við­­snún­­ing­i.

[adspot]Það á einnig eftir að ganga frá sam­komu­lagi við íslenska ríkið um fyr­ir­greiðslu, en það hefur þegar gefið óljóst vil­yrði um að eiga sam­­tal um veit­ingu lána­línu eða ábyrgð á lánum til félags­­ins. Sú fyr­ir­greiðsla er hins vegar bundin við að hag­­stæð nið­­ur­­staða liggi fyrir í samn­inga­við­ræðum við lán­veit­end­­ur, leig­u­­sala og birgja og að hluta­fjár­­út­­­boðið gangi vel.

[links]Gangi allt ofan­­greint eftir er því verk­efni ólokið að semja við flug­­­véla­fram­­leið­and­ann Boeing um að losna undan kaup­­samn­ingum á þeim Boeing 737 Max vélum sem Icelandair hefur enn ekki fengið afhend­­ar, og um frek­­ari skaða­bætur vegna þeirra sem félagið hefur þegar keypt en getur ekki notað vegna kyrr­­setn­ingar á vél­un­­um. Þær við­ræður hafa verið skil­­greindar „í gangi“ af Icelanda­ir. Í til­kynn­ing­unni í dag segir að nið­ur­staða í þeim við­ræðum gæti legið fyrir á næstu dögum „haldi við­ræð­urnar áfram á upp­byggi­legum nótum.“ Sömu sögu sé að segja um við­ræður við flug­véla­leigu­sala og færslu­hirði.

Klárist þetta allt saman þarf að sann­­færa fjár­­­festa um að setja tugi millj­­arða króna inn í Icelandair í hluta­fjár­út­boði sem nú er áætlað að fari fram í ágúst.

Þar er helst horft til íslenskra líf­eyr­is­­sjóða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár