Elon Musk býr í 37 fermetra smáhýsi

Þriðji rík­asti maður ver­aldar er fluttur inn í smá­hýsi. Hann á það ekki einu sinni heldur leigir það. Elon Musk, for­stjóri Tesla, hefur staðið við stóru orðin og selt flestar fast­eignir sínar.

Elon Musk er ólík­inda­tól og heldur stöðugt áfram að koma á óvart. Hann er nú að mati Forbes þriðji rík­asti maður heims en býr hvorki í höll né penthouse-íbúð heldur í 37 fer­metra leigu­hús­næði.

Smáhýsið er reyndar í eigu fyr­ir­tækis sem Musk á sjálfur, SpaceX. Þangað flutti hann nýverið og sagði: „Þetta er bara alveg ágætt.“

[adspot]

Í fyrra hét Musk, sem er for­stjóri Tesla, því að selja næstum allar eigur sínar, þar á meðal sex stór íbúð­ar­hús sem hann átti í Kali­forníu. Hann seg­ist aðeins eiga eitt hús í dag en þar býr hann þó ekki.

Smáhýsið sem hann leigir af SpaceX er í Boca Chica í Texas, í nágrenni SpaceX-verk­smiðj­unnar þar sem geim­flaugar fyr­ir­tæk­is­ins eru fram­leiddar. Þetta er ein­inga­hús, hannað og fram­leitt af nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæk­inu Boxabl. Það er skipu­lagt eins og stúdíó-íbúð í opnu rými.

Musk er vell­auð­ugur og í fyrra, þegar hann var orð­inn rík­asti maður heims, var hann gagn­rýndur harð­lega fyrir auð­söfn­un­ina. Hans svar við þeirri gagn­rýni var að selja allar fast­eign­irnar sem hann hefur nú staðið við að mestu.

Húsið sem hann á enn er þó engin smá­smíði heldur um 1.500 fer­metra ald­ar­gam­alt sveita­setur mitt á milli San Francisco og Silicon Valley. Hann seg­ist vera til­bú­inn að selja það, en aðeins ef stór fjöl­skylda kaupi og búi þar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár