Gylfi hefur fengið 50 milljónir frá ráðuneytum og undirstofnun Ásmundar Einars

Á þremur árum hefur Gylfi Arn­björns­son, fyrr­ver­andi for­seti ASÍ, fengið greiddar rúmar 50 millj­ónir króna frá félags­mála­ráðu­neyt­inu, Vinnu­mála­stofnun og mennta­mála­ráðu­neyt­inu. Ásmundur Einar Daðason var félags­mála­ráð­herra þegar greiðslur þaðan og frá Vinnu­mála­stofnun voru inntar af hendi. Þegar Ásmundur Einar fór yfir í mennta­mála­ráðu­neytið fylgdi Gylfi honum þangað.

Hafði ætlað sér að draga úr vinnu
Hafði ætlað sér að draga úr vinnu Gylfi, sem er orð­inn 65 ára, segir að hann hafi ætlað að draga úr vinnu en svo séu verk­efnin svo skemmti­leg. Mynd: Hörður Sveinsson

Gylfi Arn­björns­son, fyrr­ver­andi for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, hefur frá því í júní­mán­uði 2020 fengið greiddar 50,6 millj­ónir króna fyrir störf fyrir ráðu­neyti Ásmundar Einars Daða­sonar eða und­ir­stofn­anir þess. Greiðsl­urnar hefur Gylfi fengið vegna vinnu sinnar sem ráð­gjafi í átaks­verk­efnum í kjöl­far Covid far­ald­urs­ins, vegna mót­unar fram­tíð­ar­skipu­lags nýs mennta- og barna­mála­ráðu­neytis og vegna verk­efna við efl­ingu verk­náms og fram­halds­skóla.

Gylfi var for­seti ASÍ í tíu ár, frá árinu 2008 til 2018, og áður fram­kvæmda­stjóri sam­bands­ins. Eftir mik­inn ólgu­sjó í emb­ætti framan af árinu, þar sem meðal ann­ars stjórn VR, Verka­lýðs­fé­lag Akraness og aðal­fundur Fram­sýnar lýstu yfir van­trausti á hendur Gylfa, til­kynnti hann í júní 2018 að hann myndi ekki bjóða sig fram til end­ur­kjörs. Hann lét af emb­ætti for­seta ASÍ í októ­ber 2018.

Sótti um fjölda starfa

Nafn Gylfa var í fram­hald­inu títt nefnt þegar sagt var frá umsækj­endum í ýmsar stöður á vegum hins opin­bera næstu miss­eri. …

Kjósa
41
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár