Svindlað með fiskafurðir

Rann­sóknir benda til þess að teg­unda­svik eigi sér stað með um þriðj­ung sjáv­ar­af­urða sem seld eru í mörgum af helstu við­skipta­löndum Íslend­inga en íslenskir veit­inga­staðir hafa heldur ekki komið vel út úr rann­sóknum.

Sjáv­ar­af­urðir eru meðal þeirra mat­væla sem mest er svindlað með en vöru­svik í við­skiptum með mat­væli er stórt alþjóð­legt vanda­mál, sam­kvæmt sér­fræð­ingi Matís. Rann­sóknir benda meðal ann­ars til þess að teg­unda­svik eigi sér stað með um þriðj­ung sjáv­ar­af­urða sem seld eru í mörgum af helstu við­skipta­löndum Íslend­inga.

Í grein sem Jónas Rúnar Við­ars­son, sér­fræð­ingur um örugga virð­is­keðju mat­væla hjá Matís, skrifar og birtir á vef­síðu Matís segir hann að hér sé um að ræða mikið hags­muna­mál fyrir íslenska fram­leið­endur þar sem íslenskt sjáv­ar­fang eigi í sam­keppni við „svikin mat­væli“, auk þess sem „svikin mat­væli“ séu hugs­an­lega seld sem íslensk fram­leiðsla.

Fimmta ráð­stefnan í tengslum við verk­efnið FoodIntegrity var haldin í Nantes í Frakk­landi um miðjan nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Á ráð­stefn­unni voru kynntar nýj­ustu rann­sóknir og lausnir til að takast á við mat­væla­svik. Þátt­tak­endur voru rúm­lega 300 tals­ins, frá 40 löndum. Í tengslum við verk­efnið var fram­kvæmd könnun víðs­vegar um Evrópu þar sem farið var í fjölda veit­inga­húsa og sýni tekin til teg­unda­grein­ingar, með erfða­grein­ingu. Íslensku veit­inga­stað­irnir sem lentu í úrtak­inu komu ekki vel út, sam­kvæmt Jónasi Rúnari.

Keila seld sem skötuselur

Það sem er nýtt í þeim nið­ur­stöðum, sem birtar voru fyrir ára­mót, er að helm­ingur þess teg­unda­svindls – sem greint var hér á landi – var með inn­fluttan fisk. Jónas Rúnar segir í sam­tali við Kjarnann að vin­sælt sé að svindla með tún­fisk, hann sé not­aður í sushi og þá sé ódýr­ari fiskur not­aður í stað­inn fyrir þann dýr­ari. „Það var líka verið að selja löngu sem þorsk, stein­bít sem hlýra og keilu sem skötu­sel. Menn gera ekki grein­ar­mun á þessu,“ segir Jónas Rúnar.

Matís er þátt­tak­andi í FoodIntegrity-verk­efn­inu og í þeim hluta ráð­stefn­unnar sem snéri að mat­væla­svikum í tengslum við sjáv­ar­af­urðir var skoðað sér­stak­lega af hvaða toga slík svik eru helst, hvernig svikin fara fram, hversu mikil þau eru og hvernig má greina þau og koma upp um þau.

Jónas Rúnar segir að ljóst sé að svik með sjáv­ar­fang séu stórt vanda­mál en rann­sóknir hafa leitt í ljós að teg­unda­svindl með sjáv­ar­af­urðir er allt að 30 pró­sent. „Það telst einnig til mat­væla­svika þegar fiskur er seldur undir fölsku flaggi, þar með talið afli frá sjó­ræn­ingja­veiðum, ef nauð­ung­ar­vinna er stunduð við fram­leiðsl­una og þar sem hrein­læt­is­kröfum/mat­væla­ör­yggis er ekki gætt,“ segir í grein Jónasar Rúnars.

Svindl í öllum vöruflokkum

Jónas Rúnar segir að litlar breyt­ingar hafi verið gerðar hjá eft­ir­lits­að­ilum, nema að núna sé þó meiri með­vit­und um mat­væla­svik. Hann telur að fylgj­ast þurfi betur með því hvað selt er á veit­inga­stöðum en ef að það eigi að gera það almenni­lega þá þurfi að setja meira fjár­magn í eft­ir­litið. Sú spurn­ing komi alltaf upp: „Hver á að borga?“

Hann segir að ekki sé ein­ungis svindlað með fisk­teg­undir. „Við sjáum svindl í öllum vöru­flokkum en algengt er að svindlað sé með vörur eins og ólífu­olíu, hun­ang, fisk, krydd og alkó­hól,“ segir hann.

Meiri meðvitund um matvælasvindl nú en áður

Jónas Rúnar bendir á að sum lönd séu búin að auka eft­ir­litið til muna og sé Bretland gott dæmi um það. Þar vinni 80 manna hópur ein­ungis við að upp­ræta svindl af þessu tagi. Jónas Rúnar telur mik­il­vægt að taka mat­væla­svik föstum tökum, þetta snerti neyt­endur og hafi skekkj­andi áhrif á sam­keppn­is­stöðu.

„Eitt helsta fram­lag FoodIntegrity verk­efn­is­ins í þeirri bar­áttu eru gagna­grunnar þar sem hægt er að fá upp­lýs­ingar um mat­væla­svindl og hvaða tól og tæki eru til staðar til að koma upp um slík svik. Auk þess er búið að gefa út sér­staka hand­bók og smá­forrit,“ segir hann í grein­inni.

En þrátt fyrir að margt mætti betur fara, að mati Jónasar Rúnars, þá telur hann að verið sé að stíga skref í rétta átt hér á landi. Þegar FoodIntegrity-verk­efnið byrj­aði fyrir fimm árum hafi lítil með­vit­und verið um mat­væla­svindl en nú finni hann fyrir breyttu við­horfi til þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár