Bankasýsla ríkisins hótaði Arion banka lögbanni

Banka­sýsla taldi arð­greiðslu á hluta­bréfum Arion Banka til hlut­hafa brjóta í bágu við samn­ing­bund­inn rétt ríks­ins.

Banka­sýsla rík­is­ins skoð­aði alvar­lega í byrjun árs­ins að krefj­ast lög­banns á arð­greiðslum á hluta­bréfum Arion banka í Valitor til hlut­hafa bank­ans. Stofn­unin taldi arð­greiðsl­una brjóta í bága við samn­ings­bund­inn rétt rík­is­ins sam­kvæmt hlut­hafa­sam­komu­lagi frá 2009. Frá þessu er greint í Mark­aðnum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins um við­skipti og efna­hags­mál, í dag. Er meðal ann­ars vitnað til minn­is­blaðs um þessi mál, sem blaðið fékk afhent frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu á grund­velli upp­lýs­inga­laga.

[links]Banka­sýsla skrif­aði minn­is­blaðið til Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra þann 15. jan­úar síð­ast­lið­inn. Í minn­is­blað­inu segir að það hafi verið mat Banka­sýsl­unnar að fjár­festa­hóp­ur­inn sem keypti um 30 pró­senta hlut í Arion Banka í mars í fyrra- Goldman Sachs og vog­un­ar­sjóð­irnir Attesor, Och- Ziff og Taconic- hafi haft auga­stað á Valitor og „hafi með kaupum sínum á hlutum í Arion þegar farið að huga að því hvernig unnt væri að ná und­ir­tökum í Valitor“. Í öðru minn­is­blaði frá ráð­herra frá 14. febr­úar segir Banka­sýslan að Arion banki gæti verið að fara á mis við 20 til 40 pró­sent af virði eign­ar­hlutar síns í Valitor með því að greiða hluta­bréf sín að stærstum hluta út í formi arðs í stað þess að selja allt hlutafé bank­ans í Valitor í opnu ferli líkt og ákjós­an­legt væri.
[adspot]
Í umfjöllun Mark­að­ar­ins kemur fram að meiri­hluti hlut­hafa Arion banka, Kaup­þings og fyrr­nefnds fjár­festa­hóp höfðu áform um að aðgreina korta­fyr­ir­tækið frá banka­sam­stæð­unni áður en kæmi að hluta­fjár­út­boði og skrán­ingu bank­ans á mark­aði en and­staða innan stjórn­kerf­is­ins varð til þess að sú áform urðu að engu. Í bréfi sem Paul Copley, for­stjóri Kaup­þings, skrif­aði Katrínu Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Bjarna fjár­mála­ráð­herra 14. mars síð­ast­lið­inn kemur fram að Kaupþing telur stuðn­ing ríks­ins nauð­syn­legan til að tryggja vel heppn­aða aðgrein­ingu í þess­ari stöðu. Vegna áhyggna stjórn­valda af arð­greiðsl­unni hefði Kaupþing því breytt afstöðu sinni og styddi ekki lengur áformin.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Banka­sýsla rík­is­ins gerir athuga­semdir við sölu­ferli Arion Banka en full­trúi Banka­sýslu ríks­ins í Arion banka krafð­ist þess í des­em­ber síð­ast­liðnum að innri end­ur­skoð­andi Arion banka yrði falið að gera form­lega athugun á sölu bank­ans á hlut sínum í breska mat­væla­fram­leið­and­anum Bakkavör. Banka­sýsla rík­is­ins mat svo að rík­is­sjóður hafi tapað 2,6 millj­örðum króna vegna þess hvernig staðin var að söl­unni, í gegnum óbeinan eign­ar­hlut sinn í Arion banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár