Vildu „tryggja samfellu“ í eignaumsýslunni

Stjórn­ar­for­maður Lind­ar­hvols og Rík­is­end­ur­skoð­andi eru bræður, og því ákvað Sveinn Arason Rík­is­end­ur­skoð­andi að víkja í end­ur­skoð­un­ar­hlut­verki fyrir Lind­ar­hvol. Ákveðið var að semja við Íslög um eigna­um­sýslu fyrir rík­is­sjóð.

Sveinn Arason Rík­is­end­ur­skoð­andi lýsti sig van­hæfan til að end­ur­skoða árs­reikn­ing Lind­ar­hvols, eigna­halds­fé­lags íslenska rík­ins, sem ann­ast umsýslu eigna sem komu í fang rík­is­ins frá slita­búum föllnu bank­anna. Félagið var stofnað 15. apríl í fyrra og heldur á tug­millj­arða eignum fyrir hönd rík­is­ins.

Ástæðan fyrir því að Sveinn ann­að­ist ekki end­ur­skoðun árs­reikn­inga Lind­ar­hvols var sú að bróðir hans, Þór­hallur Arason, er stjórn­ar­for­maður Lind­ar­hvols. Vinnan við end­ur­skoðun árs­reikn­ings félags­ins tafð­ist nokkuð vegna þessa, en Sigurður Þórð­ar­son, fyrr­ver­andi Rík­is­end­ur­skoð­andi, var feng­inn í það að ann­ast end­ur­skoðun árs­reikn­ings­ins.

Í árs­reikn­ingi Lind­ar­hvols kemur fram að Steinar Guð­geirs­son hrl. hafi í fyrra fengið tæp­lega 40 millj­ónir króna í sinn hlut frá Lind­ar­hvoli á átta mán­aða tíma­bili, eða tæp­lega 5 millj­ónir króna á mán­uði. Pen­ing­arnir fóru til Íslaga, lög­manns­stofu sem Steinar á, en hann hefur pró­kúru fyrir hönd Lind­ar­hvols, sam­kvæmt gögnum um fyr­ir­tækið.

Innsendir reikningar skoðaðir

Í svari við fyr­ir­spurn til Sigurðar, segir hann að hann hafi yfir­farið reikn­inga Lind­ar­hvols í takt við við­ur­kenndar starfs­að­ferðir við end­ur­skoðun. „Við end­ur­skoðun árs­reikn­ings Lind­ar­hvols ehf. fyrir árið 2016 voru gerðar þær kann­anir á bók­haldi félags­ins sem ég taldi nauð­syn­legar og í því sam­bandi skipu­lagði og hag­aði ég end­ur­skoð­un­inni í sam­ræmi við alþjóð­lega end­ur­skoð­un­ar­staðla. Árs­reikn­ing­ur­inn er árit­aður án athuga­semda. Varðandi fyr­ir­spurn þína voru skoð­aðir allir reikn­ingar sem Íslög ehf. sendi félag­inu vegna árs­ins 2016. Þeir voru allir árit­aðir af stjórn­ar­manni Lind­ar­hvols ehf. sem var með prók­uru­um­boð fyrir félagið. Þá var skoðað af minni hálfu að reikn­ingar inn­sendir frá félag­inu væru í sam­ræmi við samn­ing milli aðila,“ sagði Sigurður.

Í stjórn félags­ins sitja auk Þórhalls, Ása Ólafs­dótt­ir, með­stjórn­andi, og Haukur C. Bene­diks­son, með­stjórn­andi.

Baðst afsökunar á seinum skilum

Eins og greint var frá á vef Kjarnans 27. sept­em­ber þá sendi Kjarninn fyr­ir­spurn til Þór­halls í mars, þar sem óskað var eftir upp­lýs­ingum um starf­semi félags­ins á síð­asta ári, og nið­ur­brot á kostn­aði og verk­efn­um. Þór­hallur svar­aði með eft­ir­far­andi hætti, 17.mars: „Sæll Magnús og takk fyrir tölvu­póst­inn. Stjórn Lind­ar­hvols ehf. er vinna að frá­gangi árs­reikn­ings félags­ins fyrir árið 2016 og er sú vinna að klár­ast á næstu dög­um. Þegar þeirri vinnu er lokið verður árs­reikn­ing­ur­inn birtur með upp­lýs­ingum um allan kostnað félags­ins ásamt frek­ari nið­ur­broti. Mun senda þér reikn­ing­inn um leið og hann liggur fyr­ir. Kær kveðja, f.h. Lind­ar­hvols ehf. Þór­hallur Ara­son, stjórn­ar­for­mað­ur.“ Árs­reikn­ing­ur­inn var ekki sendur í takt við það sem Þór­hallur hafði lýst, og ítrek­uðum fyr­ir­spurnum var ekki svar­að.

Eftir að árs­reikn­ingnum var form­lega skilað, 12. sept­em­ber, þá baðst Þór­hallur afsök­unar á því að hafa ekki skilað reikn­ing­unum fyrr, og svar­aði fyr­ir­spurn­inni efn­is­lega, eins og hann sagð­ist ætla að gera innan nokk­urra daga í mars­mán­uði. „Ég biðst afsök­unar á því að hafa ekki sent þér árs­reikn­ing­inn eins og til stóð fyrr, en hann er hér með­fylgj­andi. Beðið var eftir að Rík­is­end­ur­skoðun myndi senda hann til RSK, en hann var mót­tek­inn 12. sept­em­ber 2017 og er birtur þar opin­ber­lega í árs­reikn­inga­skrá með öllum upp­lýs­ingum í fram­hald­inu,“ sagði Þór­hallur.

Hann segir að stjórn Lind­ar­hvols ehf. hafi gert samn­ing við Íslög ehf. um að ann­ast m.a. þjón­ustu vegna umsýslu, fulln­ustu og sölu, á þeim stöð­ug­leika­eignum sem Lind­ar­hvoli var falin umsýsla með. „Sú þjón­usta inn­felur dag­legan rekstur, lög­fræði­að­stoð, umsjón og samn­inga­gerð, útlagðan kostnað o.s.frv. Vinnan er unnin af lög­mönnum og öðru starfs­fólki Íslaga ehf. Var það m.a. gert með vísan til þess að lög­menn stof­unnar þ.á.m. Steinar Þór Guð­geirs­son hrl. kom að gerð stöð­ug­leika­samn­ing­anna við þau slitabú sem inntu þau af hendi auk þess að hafa haft umsjón með mót­töku og dag­legum rekstri þess­ara eigna, fyrst í umboði Seðla­banka Íslands og svo í umboði rík­is­sjóðs. Lögmenn stof­unnar þekkja því vel for­sögu máls­ins sem og ein­stakar eignir. Stjórn Lind­ar­hvols taldi einnig mjög mik­il­vægt að gætt væri að sam­fellu við með­ferð og rekstur þess­ara eigna, sem var ætl­aður mjög skammur tími til að leysa úr verk­efn­inu,“ segir Þór­hallur. Ekki liggur fyrir hvenær eigna­sölu Lind­ar­hvols lýkur.

Sam­kvæmt árs­reikn­ingnum þá nam rekstr­ar­kostn­að­ur­ Lind­ar­hvols 56,5 millj­ónum í fyrra.

Óhætt er að segja að skatt­greið­endur eigi mikla hags­muni í starf­­semi Lind­­ar­hvols og að þar sé vandað til verka við hámarka virði eigna og ann­ast fag­lega eigna­um­sýslu.

Miklar eignir

Í fang rík­­is­ins, eftir upp­gjör slita­búa föllnu bank­anna, komu eignir upp á 384,3 millj­­arða króna, mest mun­aði þar um 95 pró­­sent eign­­ar­hlut í Íslands­­­banka og veð­skulda­bréf og afkomu­­skipta­­samn­ing vegna Arion banka, upp á sam­tals ríf­­lega 105 millj­­arða króna.

Aðrar eignir nema, þar á meðal hluta­fjár­­­eign­ir, lán og aðrar eign­ir, nema tæp­­lega 100 millj­­örðum króna. Allt laust fé sem borist hefur félag­inu rennur inn á reikn­ing félags­­ins hjá Seðla­­banka Íslands, sam­kvæmt grein­ar­gerð sem skilað var til Alþingis á dög­un­um.

Í grein­­ar­­gerð­inni segir að sam­tals hafi um 140 millj­­arðar króna runnið inn á reikn­ing­inn í Seðla­­bank­­anum frá því árið 2016. „Frá því í febr­­úar 2017 og fram til ágúst­loka hafa greiðslur inn á stöð­ug­­leik­a­­reikn­ing­inn numið 56.448 millj­­ónum króna. Staðan á reikn­ingnum þann 3. febr­­úar var 6.641 milljón króna. Alls hefur 58.700 millj­­ónum verið ráð­stafað til nið­­ur­greiðslu skulda á tíma­bil­inu, skulda­bréf sem rík­­is­­sjóður gaf út til end­­ur­fjár­­­mögn­unar Seðla­­banka Íslands var greitt upp að fullu en eft­ir­­stöðvar þess námu 28,5 ma.kr. Þá voru um 30 ma.kr. ráð­stafað til upp­­­kaupa á skulda­bréfa­­flokknum RIKH 18 sem rík­­is­­sjóður gaf út til end­­ur­fjár­­­mögn­unar fjár­­­mála­­stofn­ana. Sam­an­­dregið frá því að fram­­sal stöð­ug­­leika­­eign­anna átti sér stað í upp­­hafi árs 2016 og til og með 25. ágúst 2017 hafa greiðslur inn á stöð­ug­­leik­a­­reikn­ing­inn ásamt greiðslum inn á reikn­inga dótt­­ur­­fé­laga numið sam­tals ríf­­lega 140 millj­örðum króna. Þar af var 17 millj­örðum króna ráð­stafað til rík­­is­­sjóðs til að mæta töp­uðum banka­skatti og um 120 millj­örðum króna hefur verið ráð­stafað til nið­ur­greiðslu skulda,“ segir í grein­­ar­­gerð­inni.

Árs­reikn­ingur Lind­ar­hvols.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár