Hætta á að tölvuþrjótar hafi komist yfir tölvupósta frá starfsmönnum HR

Rektor HR til­kynnti starfs­fólki skól­ans það eftir hádegi í dag að mögu­leiki væri á því að tölvu­póstar, jafn­vel ár aftur í tím­ann, væru í höndum tölvu­þrjóta. Ekki er þó ljóst hvort svo sé eða ekki, eða hvort afleið­ingar af því verði ein­hverjar.

Sérfræðingar frá Syndis og Advania hafa tekið þátt í að skoða málið undanfarna daga.
Sér­fræð­ingar frá Syndis og Advania hafa tekið þátt í að skoða málið und­an­farna daga.

Samkvæmt þeim upp­lýs­ingum sem nú liggja fyrir um tölvu­árás­ina á Háskól­ann í Reykja­vík í síð­ustu viku er talin „hætta á að tölvu­þrjótum hafi tek­ist að kom­ast yfir tölvu­pósta starfs­manna háskól­ans, að hluta eða í heild, mögu­lega ein­hver ár aftur í tím­ann,“ sam­kvæmt tölvu­pósti sem Ragn­hildur Helga­dóttir rektor skól­ans sendi starfs­mönnum í dag.

„Hversu miklar líkur eru á þetta hafi raun­veru­lega gerst er þó enn sem komið er ómögu­legt að segja,“ segir í tölvu­pósti rekt­ors, en starfs­fólk upp­lýs­inga­tækni­s­viðs skól­ans hefur unnið að því, í sam­starfi við sér­fræð­inga hjá Syndis og Advania, að greina árás­ina, hættu á gagna­leka og lík­lega atburða­rás, aftur og fram í tím­ann.

Í tölvu­pósti rekt­ors segir að komið hafi í ljós að HR hafi frá því í byrjun júní verið á lista yfir póst­þjóna með til­tek­inn veik­leika og sá veik­leiki hafi lík­lega verið not­aður til að kom­ast inn á vef­þjón­inn. Sömu­leiðis hefur komið í ljós að frá því í júní hafi tölvu­þrjótar tvisvar komið spilli­for­riti inn á póst­þjóna HR.

„Ekki er hægt að full­yrða að um sömu aðila hafi verið að ræða í bæði skiptin. Í lok ágúst var spilli­for­rit á póst­þjónum HR í a.m.k. fjóra daga, en í tæpan sól­ar­hring í síð­ustu viku. Ekki eru til atburða­skrár frá þessum dögum í ágúst og því ekki hægt að rekja hvað spilli­for­ritið gerði á þessum tíma og hvort það hafi afritað tölvu­pósta og sent úr húsi,“ segir rektor, sem segir að sér þyki afar leitt að þessi staða sé uppi.

Netþjónn tekinn úr umferð

Í póst­inum frá rektor segir að annar net­þjón­anna sem varð fyrir árás í ágúst hafi verið í notkun síð­ustu daga, en verði nú tek­inn úr umferð, sem gæti valdið trufl­unum á póst­kerfum skól­ans næstu daga.

„Sér­stakar var­úð­ar­ráð­staf­anir hafa verið í kringum þennan póst­þjón alla vik­una frá því að árásin upp­götv­að­ist og því er talið ólík­legt að leki hafi stafað frá honum frá því að við urðum vör við árás­ina,“ segir rektor og bætir við að leit að sporum eftir sams­konar spilli­for­rit á öllum öðrum net­þjónum og kerfum HR utan þess­ara tveggja póst­þjóna hafi ekki skilað neinu.

Sem áður segir er ekki ljóst hvort tölvu­póstar hafi lekið út, þó hætta sé talin á því. Rektor útskýrir í póst­inum hvernig slíkur leki út á netið gæti mögu­lega farið fram og segir að það gæti verið á ýmsan máta.

„Tölvu­póstar gætu verið birtir á opnum vef­svæðum með leit­ar­við­móti, þeir gætu birst á huldu­vefnum, starfs­menn og aðrir aðilar sem fjallað er um í tölvu­póstum starfs­manna gætu fengið senda pósta með afritum af tölvu­póstum og hót­unum um leka ef lausn­ar­gjald væri ekki greitt o.s.frv. Ef til þess kæmi að við fáum upp­lýs­ingar um slíkan gagna­leka yrðu allir hlut­að­eig­andi látnir vita af því strax. Við munum einnig halda ykkur upp­lýstum um þróun máls­ins, eftir því sem myndin skýrist,“ segir rektor.

Enn hæfilega bjartsýn – en búa sig undir hið versta

„Þó þessar upp­lýs­ingar megi túlka sem svo, að hlutir horfi nú til verri vegar er rétt að benda á að sér­fræð­ingar segja að ekki hafi mikið breyst varð­andi líkur á að um gagna­leka hafi verið að ræða,“ segir í skila­boðum rekt­ors til starfs­manna skól­ans.

Þar segir að stjórn­endur skól­ans séu enn hæfi­lega bjart­sýn, voni það besta en und­ir­búi sig fyrir það versta með ráð­gjöfum sínum og haldi áfram grein­ingu og fyr­ir­byggj­andi aðgerðum„til að koma í veg fyrir að eitt­hvað þessu líkt geti gerst aftur.“

„Þetta er óþægi­legt fyrir okkur öll og mér þykir afar leitt að þessi staða sé uppi. Ég minni á að við vitum ekki hvort ein­hverjir póstar voru afrit­aðir og þó svo væri hvort ein­hver hygg­ist gera eitt­hvað við afritin. Við erum að vera var­færin og upp­lýsa um allt strax. Það, ásamt því að neita að borga lausn­ar­gjald og neita að skamm­ast okkar fyrir að verða fyrir árás sem eru algengar og úti um allt, er það besta sem við getum gert í stöð­unni og í bestu sam­ræmi við það hvernig vinnu­staður við viljum vera.

Svo það er línan, auk þess að læra af reynsl­unni og styðja vel hvert við annað,“ segir rektor, sem lætur þess að end­ingu getið að til­kynn­ingar um málið sem hægt verði að deila til sam­starfs­fólks utan háskól­ans, ef fólk vilji, verði settar á vef skól­ans síðar í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

tölvuárás

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár